Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2022, Page 4
4 | | 21. september 2022
Aglow hreyfingin
snertir líf milljóna kvenna og
karla um alla allan heim. Aglow
hópur hefur starfað í Eyjum í þrjá-
tíu og tvö ár. Orðið Aglow þýðir
að glóa eða brenna og er tekið úr
Rómverjabréfinu 12.11 þar sem
stendur:; .. verið brennandi í and-
anum. Þjónið Drottni. Árið 1967
komu fjórar konur í Seattle saman
og töluðu um þörfina á að styrkja
konur úr mismunandi kirkjudeild-
um, biðja saman og ná til annarra
kvenna. Aglow hópar eru starfandi
í 170 löndum á fjögur þúsund
stöðum. Ég hef hitt konur frá öll-
um heimshornum á alþjóðlegum
ráðstefnum Aglow. Það sem vakti
áhuga minn var að sjá kraftmikl-
ar konur tilbúnar að framganga
með djörfung á framandi slóðum.
Aglow hefur starfað gegn mansali,
í fangelsum og meðal þurfandi
kvenna víða um heim. Mikil
fræðsla um Islam og Ísrael og
samskipti fólks, stöðu karla og
kvenna. Karlahópar hafa risið
upp sem og starf fyrir yngra fólk.
Mikil áhersla er á að biðja fyrir
nærumhverfi sínu og hafa konur
hér farið reglulega í bænagöngu til
að biðja fyrir Eyjum. Við höfum
fund fyrsta miðvikudagskvöld í
mánuði, byrjum á hressingu og
samfélagi, síðan syngum syngjum
við og svo er fræðsla eða frásögn.
Stundum fáum við gesti á fundina.
Í Eyjum er starfandi bænahópur
sem hittist vikulega meirihluta
ársins. Margar okkar sem störfum
í Aglow höfum fundið þar stað
til að vaxa og styrkjast andlega í
öruggu umhverfi. Þar finnum við
fyrir kærleika Guðs. Við höfum
séð konur snertar og læknast fyrir
bæn. Aglowkonur í Eyjum hafa
átt einstakt kærleikssamfélag og
hefur verið yndslegt yndislegt að
finna einingu í Kristi og að það
skiptir ekki máli hvaða kirkju við
sækjum. Aglow á Íslandi hefur
starfað síðan árið 1987 og um
næstu mánaðarmót mánaðamót
hittast Aglowkonur í Skálholti
til samfélags og uppbyggingar.
Næsti Aglowfundur í Vestmanna-
eyjum verður miðvikudagskvöldið
5. október kl. 20:00 í safnað-
arheimili Landakirkju, og eru
nýjar konur sérstaklega boðnar
velkomnar.
Þóranna Margrét
Sigurbergsdóttir,
formaður Aglow Vestmannaeyjum
Aglow hreyfingin snertir líf milljóna
Þóranna Margrét
Sigurbergsdóttir
FASTIR PENNAR:
Í æfingasalnum er hann leið-
togi þegar hann stýrir æfing-
um, en ekki síður þegar hann
stýrir sínum eigin æfingum
og áskorunum. Gísli Hjartar-
son tók á sig mikla líkamlega
áskorun um síðustu helgi þar
sem hann stundaði æfingar
í 24 klukkustundir samfleytt
og án hvíldar. Hann skiptist
á að æfa á þremur tækjum;
vindhjóli, róðravél og skíða-
vél. Margir lögðu leið sína í
æfingasalinn og tóku nokkra
hringi með honum á tækj-
unum. En enginn kemst með
tærnar þar sem hann hefur
hælana. Þessa áskorun tók
hann ekki á sig bara að gamni
sínu, heldur var markmiðið
að safna í styrktarsjóð Píeta
samtakanna. Það eru samtök
sem vinna gegn sjálfsskaða
og sjálfsvígum. Verkefnið er
verðugt og Gísli er Eyjamaður-
inn að þessu sinni.
Fullt nafn: Gísli Hjartarson, oft
kallaður Gilli Foster.
Fjölskylda: Kvæntur Jóhönnu
Jóhanns. Svo á ég eina dóttur,
Vigdísi Hind og þrjú fósturbörn
Aðalbjörgu Andreu, Gabríel og
Víði Heiðdal.
Hefur þú alltaf búið í Eyjum?
Já, fyrir utan þann tíma er ég bjó
annarsstaðar (Grimsby, Bremerha-
ven og Akureyri).
Mottó: Fyrstu tvö sem mér detta í
hug eru: Ég er að vinna í sjálfum
mér, fyrir sjálfan mig, með sjálf-
um mér og If it doesn’t challenge
you it won’t change you.
Síðasta hámhorf eða guilty plea-
sure: Við Jóhanna erum er núna
að klára Manifest og erum þegar
búin í House. Ætlum að velja næst
í House of Dragon eða The Lord
of the Rings: The Rings of Power.
Aðaláhugamál: CrossFit, lyft-
ingar, ferðalög.
Eitthvað sem þú gerir á hverjum
degi sem þú gætir ekki verið án:
Bursta tennurnar.
Hvað óttast þú mest: Sennilegast
að verða það veikur að ég þurfi að
liggja upp í rúmi eða í stól og geta
ekkert gert – þá vil ég fá að fara.
Hvaða tónlist kemur þér í
gott skap: U2, Rock´n´Roll,
þungarokk og Júníus Meyvant.
Hvaða ráð myndir þú gefa 18
ára þér sem veganesti inn í lífið:
Trúðu á sjálfan þig og fetaðu
þínar eigin slóðir, ekki alltaf elta
fjöldann.
Hvað er velgengni fyrir þér:
Velgengni er að geta gert það sem
þú vilt þegar þú vilt. Hafa til þess
heilsu og þrek.
Hvernig undirbýrðu þig líkamlega
og andlega fyrir áskorun eins og
þessa sem þú fórst í gegnum um
síðustu helgi? Maður þarf að vera
í þokkalegu formi líkamlega, og
búinn að prófa að renna í gegnum
brot af því sem maður ætlar að
gera, en andlegi hlutinn er senni-
legast stærsti þátturinn og þar er
lykilatriðið að trúa á sjálfan sig og
láta ekki hlutina vaxa sér í augum
þó eitthvað bjáti á.
Hvers vegna ferðu inn í svona
stóra áskorun? Finnst bara
eitthvað heillandi við þetta og ef
maður getur látið eitthvað gott af
sér leiða í leiðinni þá er það ekk-
ert verra. Ætlaði reyndar að vera
hættur þessu en...
Hvernig háttar þú endurheimt eftir
áskorunina? Reyni að sofna og
sofa í kannski sjö tíma og skelli
mér svo í heitu pottana og sauna.
Eitthvað að lokum? Bráðum
koma blessuð jólin, en það er ein
áskorun fyrir jólin og hún verður
þann 17. desember n.k. – nánar
um það síðar – já og ég myndi
gjarna vilja sjá að allir upp að 17
ára aldri gætu æft það sem þeir
vilja, og það gjaldfrjálst. Innifalið
í því væri eitt fag í Tónlistarskól-
anum.
Gísli Hjartarson
Tuttugu og fjögurra tíma púl
fyrir Pietasamtökin
E Y J A M A Ð U R I N N G Í S L I H J A R T A R S O N