Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2022, Blaðsíða 34

Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2022, Blaðsíða 34
34 | | 21. september 2022 Breyttir tímar og ný tækni í fiskveiðum og landvinnslu voru kveikjan að því að tvö gamalgróin vélaverkstæði, Magni og Völundur og Raftækjaverkstæðið Geisli stofnuðu Skipalyftuna ehf. í Vestmannaeyjum árið 1981. Árið eftir hófst starfsemin í nýju húsnæði við hlið skipa- lyftu sem Vestmannaeyjabær setti upp. Fyrirtækið átti 40 ára afmæli þann 14. nóvem- ber 2021. Það var þó ekki fyrr en í sumar að afmælishófið var haldið í Akóges og mætti fjölmenni til að fagna merkum tímamótum. Íris Róbertsdótt- ir, bæjarstjóri flutti ávarp og Eyjapeyinn og stórsöngvar- inn Gissur Páll Gissurarson skemmti gestum með vöskum söngsveinum. Stefán Jónsson, framkvæmdastjóri var þakklátur gestum sem voru mættir til að fagna með Skipalyft- unni á þessu tímamótum. Þó það hafi dregist. „Fjörtíu ár eru ekki langur líftími fyrirtækis en að reka það öll þessi ár á sömu kennitölu þykir harla gott. Og það hefur okkur tekist“ sagði Stefán sem í viðtali rakti sögu Skipalyftunnar og reksturinn sem hefur tekið miklum breytingum. Breytt umhverfi Í upphafi voru verkefnin næg enda Eyjaflotinn stór og mikill munur fyrir útgerðarmenn að þurfa ekki að sækja annað með viðhald, við- gerðir og breytingar. Allt ræðst af gengi í sjávarútvegi. Var bann við loðnuveiðum 2019 og 2020 mikið högg fyrir Vestmannaeyjar sem hafa yfir að ráða um 32% aflaheimilda í loðnu. Færri og stærri skip hafa breytt rekstrinum en líka skapað tækifæri. Dæmi um það eru fjórir 500 rúmmetra hráefnistankar fyrir Ísfélagið sem fyrirtækið lét smíða í samvinnu við Eyjablikk. Tryggja þeir gæði og ferskleika hráefnis og flýta löndun uppsjávarfisks sem kemur sér vel, ekki síst þegar vinnsla á loðnuhrognum stendur sem hæst. Starfsemin er í 1.600 fermetra húsi auk tveggja nýrra húsa upp á samtals 1.400 fm. Er glæsilegt vélaverkstæði í öðru þeirra. Fjár- festingar sem sýna trú eigenda á framtíð félagsins. Í dag er Skipalyftan fyrst og fremst plötusmiðja, véla- og renniverkstæði og þjónustar skip sem tekin eru upp í lyftuna. Er með lager og glæsilega versl- un með miklu úrvali af vörum tengdum málmiðnaði, sjósókn og veiðum. Starfa um 40 manns hjá Skipalyftunni, þar af þrjú frá stofnun félagsins, Anna Sigrid Karlsdóttir fjármálastjóri, Hlynur Richardsson verkstjóri og Stefán Örn Jónsson framkvæmdastjóri. Þegar mest var störfuðu yfir 100 starfsmenn hjá Skipalyftunni og þurfti m.a. að flytja inn erlent vinnuafl til að hafa undan. Var Skipalyftan eitt af fyrstu fyrir- tækja landsins til að ráða til sín pólska starfsmenn. Í dag búa og starfa þúsundir Pólverja á Íslandi í dag við góðan orðstír. Reksturinn hefur gengið vel og hefur fyrirtækið hlotið viðurkenn- ingu Credit Info, sem eitt af fyrir- myndafyrirtækjum Íslands árlega síðan 2014. „Það sem skilað hefur góðum rekstri Skipalyftunnar er fyrst og síðast frábært starfsfólk sem magt hefur haldið tryggð við félagið,“ sagði Stefán. Stofnendur voru Gunnlaugur Axelsson, Tryggvi Jónsson, Pétur Andersen, Kristján Ólafsson, Þórarinn Sigurðsson, Tryggvi Jón- asson, Jón Yngvi Þorgilsson, Njáll Andersen, Erlendur Eyjólfsson og Friðþór Guðlaugsson. Stefán Jónsson Skipalyftan ein af stoðum Vestmannaeyja „Mikið var um breytingar á skipum á níunda áratugnum og þar lét Skipalyftan til sín taka. Við lengdum mikið af skipum, byggð- um yfir þau og settum á nýjar brýr. Auk þess að smíða Lóðsinn. Upptökumannvirkin og fyrirtæk- ið sönnuðu sig á þessum árum. Voru allt upp í 80 skip og bátar tekin upp á ári og flestir voru starfsmenn 106,“ segir Stefán þegar rætt var við hann. Stefán er heimvanur í fyrirtækinu. Byrjaði að vinna í Magna 1969, fór þaðan yfir í Krók, aftur í Magna og þaðan í Skipalyftu. Krókur var plötuverkstæði í eigu Magna. Þar réði húsum Jón Þor- gilsson, faðir Stefáns sem fetaði í fótspor föður síns sem var einn af stofnendum Skipalyftunnar 1981. Og Stefán vill horfa fram á veginn. Upptökumannvirkin geta í dag aðeins tekið upp fá skip í Eyjaflotanum og er horft til þurrkvíar. „Við höfum kynnt þessa hugmynd og fengið jákvæð viðbrögð. Ef við ætlum að þjón- usta þessi stóru og myndarlegu fiskiskip sem við eigum í dag er þurrkví það eina sem kemur til greina. Það verður ekki í dag eða á morgun en þurrkví er framtíð- in. Með aðkomu margra er þetta mögulegt og að því munum við stefna. Allir munu njóta góðs af,“ segir Stefán sem er nokkuð sáttur þegar hann lítur til baka. „Auðvitað hefur verið tröppu- gangur í rekstrinum en við erum enn á upphaflegu kennitölunni. Við skiptum máli fyrir Vest- mannaeyjar sem 40 manna vinnu- staður. Tökum nema á samning og höfum lagt okkur fram um að taka nemendur í vélstjórn á samning í vélvirkjun. Það flýtir fyrir þeim að fá réttindi og við fáum öfluga starfsmenn.“ Skipalyftan ehf. í Vestmannaeyjum 40 ára: Góður rekstur frábæru starfsfólki að þakka Stjórnin: Ólafur, Þórarinn og Stefán. Þórarinn, Trausti framkvæmdastjóri Hafnareyrar, Björk eiginkona Stefáns og Stefán. Dóra Björk hafnarstjóri, Guðmunda, Jóhanna og Þórsteina. Fjölmenni var í afmælisveislunni í Akóges. Íris bæjarstjóri flutti ávarp og færði Skipalyftunni blóm sem Stefán tók á móti.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.