Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2022, Blaðsíða 19

Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2022, Blaðsíða 19
21. september 2022 | | 19 Hulda Ástvaldsdóttir Hulda Ástvaldsdóttir starfar í dag hjá Idunn Seafoods eftir að hafa starfað í Vinnslustöðinni í 37 ár en hún ætlaði upphaflega bara að koma í mánuð eða tvo. Hulda er fædd og uppalin í Keflavík en þegar hún kom til vinkonu sinnar á vertíð til Eyja árið 1985 kynntist hún eiginmanni sínum, Ísleifi Arnari Vignissyni, á Skansinum og hefur búið hér síðan þá. Hulda man það eins og það eins og það hafi gerst í gær þegar hún hóf störf í Vinnslustöð Vestmannaeyja. ,,Ég byrjaði þann 13. mars 1985.” Blaðamaður hafði orð á því hversu nákvæmlega hún myndi þetta en þá stóð ekki á svörum. ,,Daginn áður en ég byrjaði, 12. mars hafði orðið sprengjuhótun í Vinnslustöðinni. Öllu starfsfólk- inu var smalað saman út í rútur og beið þar á meðan leitað var að sprengjunni,” sagði Hulda. Líkar vel Hulda breytti um starfsvettvang á árinu þegar hún færði sig yfir til Idunn Seafoods, dótturfyrirtækis Vinnslustöðvarinnar. Þar er verið að niðursjóða þorsklifur í dósum. Hulda mætir hálf sjö alla morgna til ellefu og þrífur það sem þarf að þrífa og þvær vinnufatnað starfsmanna. ,,Mér líkar rosalega vel á nýja staðnum, ég er frjálsari, skemmti- legt fólk, þetta er minni vinnu- staður og því töluvert færra fólk hér en líkt og í Vinnslustöðinni er rosalega gott fólk að vinna hér. Við náum vel saman þó að flestir séu af erlendu bergi brotnir en ég og Dagur Arnarsson erum einu Íslendingarnir í Idunni.” Miklar breytingar Hulda segir að miklar breytingar hafi átt sér stað í geiranum síðan hún hóf störf. ,,Ég var búin að prófa allt hjá Vinnslustöðinni nema nýja kerfið sem notað er í dag á vöktunum. Það hefur allt breyst svakalega mikið. Það var miklu skemmtilegra í gamla daga. Starfsfólkið var miklu meira saman, eins og á borðunum í den þegar ég var að byrja, það var alltaf gaman í vinnunni, alltaf stuð, eitthvað sem kom uppá, það er miklu verksmiðjuvænna í dag,” sagði Hulda og bætti við greinin hefði þróast mikið á þessum tíma. ,,Í dag er allt orðið mikið hraðara, það er miklu meira pælt í hlutum og þá sérstaklega gæðamálum. Hér áður fyrr varstu varla með húfu á hausnum en í dag eru kom- in hárnet fyrir skegg. Hreinlæti er orðið miklu meira og öðruvísi. Það er ekkert hægt að líkja þessu saman,” sagði Hulda og hló. ,,Það var mjög gott að starfa hjá Vinnslustöðinni annars hefði ég verið löngu farin þaðan. Góðir vinnuveitendur og yfirmenn sem reyna að taka tillit til starfsfólks- ins.” Ragnhildur Þorbjörg Svansdóttir kom á vertíð til Vestmannaeyja 17 ára gömul árið 1990. Planið var að stoppa í þrjá mánuði og safna sér pening á vertíð. Plönin breyttust þegar Ragnhildur kynnt- ist eiginmanni sínum Vilhjálmi Vilhjálmssyni og er Ragnhildur hér enn þrjátíu og tveimur árum síðar, orðin verksmiðjustjóri hjá Marhólmum. Ragnhildur og Vilhjálmur eiga þrjú börn en þau heita Sigurður Ingi, Sigurbjörg Jóna og Svanur Páll og eru barnabörnin orðin þrjú, Andrea Inga, Þorbjörg Sara og Hákon Dagur. Ragnhildur vann við fiskvinnslu fyrstu mánuðina en endaði svo sem verslunarstjóri í tuttugu ár. ,,Ég fór eftir það í tvö ár til Vinnslustöðvarinnar en síðan var mér boðið starf hjá Marhólm- um. Þar hef ég nú unnið á tíunda ár og starfa þar sem verksmiðju- stjóri.” Marhólmar er fyrirtæki sem sérhæfir sig í fullvinnslu úr sjávar- fangi sem landað er í Vestmanna- eyjum. Í dag einbeitir fyrirtækið sér að fullvinnslu hrogna, einkum loðnuhrogna og hrognum úr bolfiski. ,,Sem verksmiðjustjóri þá sé ég um allan daglegan rekstur og stýri framleiðslu fyrirtækisins í samráði við mína yfirmenn. Eins vinn ég mjög þétt með þeim í allri vöruþróun. Þá eru starfsmanna- málin einnig á minni könnu. Hefðbundinn vinnudagur hjá mér byrjar kl. sex á morgnana við undirbúning á framleiðslu dagsins en vinnslan hefst tíu mínútur í sjö og lýkur deginum um klukkan fimmtán,” sagði Ragnhildur. Veltan tífaldast Hlutverk Ragnhildar hjá Marhólmum hefur breyst og þróast umtalsvert á þessum tæpu tíu árum sem hún hefur starfað þar. ,,Er ég kom til starfa í febrúar 2013 vorum við ekki búin að opna verksmiðjuna en hún var opnuð í mars það ár. Fyrstu árin einkennd- ust af vexti og þróun úr sprota- fyrirtæki í fullburða rekstur. Til að setja þessa breytingu og þróun í samhengi þá veltu Marhólm- ar tæplega 200 milljónum árið 2013 en í fyrra var veltan vel yfir tveimur milljörðum og hefur því meira en tífaldast á þessum tíma,” sagði Ragnhildur og bætti við að þessi tími hefði sýnt sér hversu lifandi og skemmtilegur íslenskur sjávarútvegur getur verið. ,,Mér þætti gaman að sjá fleiri konur hasla sér völl sem stjórnendur á þeim vetvangi,” sagði Ragnhildur að lokum. Konur í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum: Samantekt Gígja og Eygló

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.