Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2022, Page 20
20 | | 21. september 2022
Birgitta Ósk
Valdimarsdóttir
Fjölskylduhagir og Eyjatenging:
Sigurbergur Sveinsson maki og
saman eigum við tvo drengi,
Svein Sigurbergsson 4 ára og Gest
Dan Sigurbergsson 2 ára. Ég er
fædd og uppalin í Vestmannaeyj-
um og finnst hvergi betra að vera.
Birgitta vinnur hjá Vinnslustöð-
inni sem gerir út átta skip, þar af
eru fjögur nóta- og togveiðiskip.
Meginstarfsemi félagsins er í
Vestmannaeyjum. Einnig er félag-
ið með starfsemi í dótturfélögum
víða um heim, mest sölustarf-
semi en þó einhverja framleiðslu
líka. Má þar nefna lönd eins og
Portúgal, Þýskaland, Japan og
Frakkland. Nýtt uppsjávarhús
fyrirtækisins opnaði árið 2016
og er búið nýjasta tækjabúnaði.
Bolfiskvinnsla fyrirtækisins er
í eldri hluta VSV en þar er nær
eingöngu verið að verka saltfisk,
karfa og lítið magn er unnið í
ferskt eða lausfryst. Með tilkomu
nýja uppsjávarhússins og nýju
skrifstofunnar samtengjast eldri
byggingin og nýja. Fiskimjöls-
verksmiðjan er svo staðsett við
hlið uppsjávarhúss.
Þitt hlutverk innan fyrirtækis-
ins í dag? Í dag starfa ég sem
gæðastjóri Vinnslustöðvarinnar.
Hversu mörg starfsár að baki hjá
fyrirtækinu? Ég var ráðin inn í
september 2021 í hlutastarf með
náminu. En í maí 2022 var ég
ráðin gæðastjóri.
Hver er stærsta breytingin sem
hefur orðið í greininni á þeim
tíma sem þú hefur starfað? Síðan
ég byrjaði af alvöru í gæðamálum
þá er helst að nefna að kröfurnar
eru sífellt að aukast og verða
meiri og ítarlegri. Heldur manni
á tánum alltaf eitthvað nýtt að
huga að.
Hvernig lítur hefðbundinn
vinnudagur út hjá þér? Hann hefst
á morgunfundi kl. 08 eftir að
ég skutla strákunum á leikskól-
ann. Síðan tekur við tölvuvinna.
Tek svo rölt niðrí uppsjávar- og
botnfiskvinnslu og fylgist með.
Er svo á hlaupum niðri í vinnslu
og uppá skrifstofu eða að sinna
öðrum málum í dótturfyrirtækjum
Vinnslustöðvarinnar. Enginn dag-
ur er eins sem gerir þetta að mjög
skemmtilegu og fjölbreyttu starfi.
Eitthvað sem þú vilt bæta við
að lokum? Mæli með sjávarút-
vegsfræðinni í Háskólanum á
Akureyri. Krefjandi og skemmti-
legt nám sem býður uppá mikla
og fjölbreytta atvinnumöguleika
að námi loknu.
Þóra Hrönn
Sigurjónsdóttir
Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir lætur
sér ekki nægja að sinna fjármálum
fjölskylduútgerðarinnar, Óss ehf.
sem gerir út Þórunni Sveinsdóttur
VE sem byggir á þeim grunni sem
afi hennar, Óskar á Leó VE lagði á
síðustu öld. Hún rekur líka ásamt
fjölskyldunni verslunina Kubuneh
sem nefnd er eftir þorpi í Gambíu.
Allur peningur sem kemur inn fer
óskiptur til heilsugæslu sem þau
reka í Kubuneh og þjónar allt að
15.000 manns.
En hver er Þóra Hrönn? Hún er
gift Daða Pálssyni og saman eig-
um við börnin Óliver og Sunnu.
„Ég sé um alla skrifstofuvinnu,
bókhald, laun, útflutningspappíra
og fleira. Ég hef unnið samfleytt
í 23 ár hjá Ós og svo auðvitað
þegar ég var unglingur þegar mað-
ur var að fella og skera af netum,“
segir Þóra Hrönn.
Hún segir starfið hafa tekið
miklum breytingum. „Stærsta
breytingin fyrir mig á skrifstof-
unni er hvað allt er orðið rafrænt.
Þar sem ég vinn hjá sjálfri mér
ræð ég deginum sjálf og því er
enginn dagur eins og ekki til hefð-
bundinn vinnudagur hjá mér.
Það eru kostir og gallar við að
vinna hjá sjálfum sér, ég stjórna
mínum vinnutíma sjálf en það
leysir mig heldur enginn af ef ég
fer í frí. Maður tekur því vinnuna
alltaf með sér og þarf svo að
vinna upp það sem eftir er þegar
heim er komið.“