Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 24.02.2022, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 24.02.2022, Blaðsíða 2
Fram, fram, fylking? Þungum þönkum þenkjar nú H-listafólk eftir herlegheit helgarinnar. En hin sérstöku áhugamannasamtök um prófkjör sýndu ekki nægilegan áhuga að sinni til þess að haldið yrði slíkt kjör hjá flokknum sjálfum. Félagsskapurinn var í fyrstu stofnaður sérstaklega sökum þeirrar óánægju að aðrir flokkar nýttu ekki aðferð prófkjörsins við listaval í aðdraganda síðustu sveitarstjórnarkosninga. Unnendur prófkjörsins enduðu þó þá sjálfir á að stilla upp á lista sinn en ætluðu sér í prófkjör nú. Fregnir hafa svo borist af því að ekkert verður af áætluðu prófkjöri stjórnmálaflokks H-listans sökum framboðsskorts á frambjóðendum í framboð. Framboðsfresturinn rann út og takmarkaður áhuginn dugði ekki til. Óljóst er nú með öllu hvernig hin sérstöku áhugamannasamtök um prófkjör muni raða á lista sinn fyrir vorið. Ætla má að hinir fáu frambjóðendur fari þá í fýlu á ný og flykkist eitthvað annað. Hvern hefði grunað? Á síðasta fundi bæjarráðs ræddi forsvarsfólk Vegagerðarinnar um ófyrirsjáanlega stöðu Landeyjahafnar. En svo virðist vera að dýpka þurfi höfnina svo hægt verði að nýta hana áfram. Þannig hafi sandur komið sér fyrir innan garðanna, eitthvað sem ekki hefði mátt búast við. Þær nýstárlegu hugmyndir voru ræddar að kanna þann möguleika á að koma fyrir föstum dælubúnaði við hafnarmynnið en fyrst skal huga að útboði dýpkunar að lokinni úttekt hafnarinnar. Í réttri röð skal verkið unnið. Boðnir og núnir ætla þeir sér að bjarga málunum þegar þeir tími gefst. Á meðan látum við eins og um nýjan farsa og frumfluttar fréttir sé að ræða líkt og í hvert skipti sem við horfum á endursýnda Friends-þætti um borð í skipinu góða. Þá er bara að brosa yfir þeim bröndurum sem heyrst hafa áður. SKÚRINN Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549 Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum. Ritstjórn og ábyrgð: Sindri Ólafsson og Margrét Rós Ingólfsdóttir - sindri@eyjafrettir.is - margret@eyjafrettir.is. Umbrot: Sæþór Vídó - svido@svido.is Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf. Sími: 481 1300 Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is Veffang: www.eyjafrettir.is EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Íþróttabandalag Vestmannaeyja hélt árlegt uppskeruhóf sitt á þriðjudagskvöldið. Það var Sunna Jónsdóttir handknattleikskona sem var valin íþróttamaður Vest- mannaeyja 2021. Íþróttafólk æsk- unnar voru valin Andri Erlings- son golfari, handknattleiks- og knattspyrnumaður fyrir yngri hóp en fyrir þann eldri var það Elísa Elíasdóttir handknattleikskona. Lista yfir aðrar viðurkenningar má sjá hér að neðan: 2022 silfur merki ÍBV: Davíð Þór Óskarsson Jóhanna Alfreðsdóttir Jónas Guðbjörn Jónsson Salóme Ýr Rúnarsdóttir 2022 gull merki ÍBV: Bergljót Blöndal Magnús Sigurðsson Ólafur Týr Guðjónsson 2022 Heiðurskross ÍBV úr gulli æðsta heiðursviðurkenning Íþróttabandalags Vm. Jóhann Jónsson 2022 sérstök viðurkenning Stefán Jónsson Nú þegar styttist í sveitarstjórnar- kosningar eru stjórnmálaflokkarn- ir komnir á fullt að huga að sínum framboðum. H-listinn blæs af prófkjör Í kringum áramót ákvað H-listinn að viðhafa prófkjör. Á dögunum barst þó tilkynning um að próf- kjörið hafi verið blásið af vegna ónógrar þátttöku. Íris Róberts- dóttir bæjarstjóri og Jóna Sigríður Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi höfðu tilkynnt um framboð sín. H-listinn fer því nú í að stilla upp lista. Samkvæmt heimildum Eyja- frétta verða þær Aníta Jóhanns- dóttir og Kristín Hartmannsdóttir à meðal frambjóðanda en óvíst er með þátttöku Elís Jónssonar forseta bæjarstjórnar. Oddvitaslagur hjá Sjálfstæðis- flokknum? Prófkjör mun að öllum líkindum fara fram þann 26. mars hjá Sjálf- stæðisflokknum. Hildur Sólveig Sigurðardóttir oddviti flokksins hefur lýst því yfir að hún vilji leiða framboðið. Eyþór Harðarson sem skipaði fjórða sæti listans fyrir síðustu kosningar hefur lýst því yfir að hann bjóði sig fram í forystu listans. Nafn Gríms Gíslasonar er hávært í umræðu um hugsanlega frambjóðendur en einnig er rætt um þátttöku t.d Margrétar Rósar Ingólfsdóttur og Gísla Stefánssonar en enn sem komið er hafa einungis Hildur og Eyþór gert framboð sín opinber. Framboðsfrestur er til 7.mars. Allt á fullu hjá Eyjalistanum Eyjalistinn er á fullu að stilla upp á framboðslista. Njáll Ragnarsson mun leiða listann og hafa þær Helga Jóhanna Harðardóttir og Arna Huld Sigurðardóttir áhuga á að bjóða sig áfram fram. Þá mun miðflokksmanninum Guðna Hjörleifsson hafa verið boðið að taka sæti á listanum. Óvíst með fjórða framboðið Líkt og Eyjafréttir greindu frá á vef sínum þá skoðar Flokkur fólksins að bjóða fram, með Georg Eið Arnarson í broddi fylk- ingar. Hvort af verði mun skýrast á næstu dögum. Flokkarnir komnir á fullt Sunna íþróttamaður Vestmannaeyja 2021

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.