Nesfréttir - 01.02.2023, Blaðsíða 6
6 Nesfrétt ir
Ingi Þór Ólafson
Ingi Þór byrjaði að stunda golf árið
2015 þá 14 ára gamall hjá Nesklúbbnum á
Seltjarnarnesi en haustið 2018 flutti hann
sig yfir til Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Ingi
Þór er afrekskylfingur og er talinn vera einn
af efnilegustu kylfingum landsins þrátt fyrir
að hafa einungis stundað golf í nokkur ár.
Ingi er með +0,6 í forgjöf.
Ingi Þór endaði í 21. sæti á GSÍ
mótaröðinni árið 2022.
Hann sigraði á alþjóðlegri mótaröð
Glóbal Junior, Icelandic Junior Midnight
Challenge í sumar og með þeim sigri komst
hann á heimslista áhugamanna WAGR.
Ingi Þór tók þátt í fjölmörgum mótum á árinu 2022 og stóð sig mjög vel
á meðal bestu kylfinga landsins.
Ingi stundar BScnám í íþróttafræðum við Háskólann í Reykjavík. Hann
leggur mikla áherslu á heilbrigt líferni og að sinna æfingum til að gera
sig að betri afrekskylfingi.
Matthildur Óskarsdóttir
Matthildur hefur stundað Kraftlyftingar
í átta ár og náð að byggja sig upp í að vera
alþjóðlegur keppandi í fremstu röð og áður
stundaði hún fimleika með Gróttu.
Hún varð heimsmeistari ungmenna
í klassískri bekkpressu í 84 kg. flokki
þegar hún lyfti 125 kg. sem er einnig
Íslandsmet í opnum flokki. Hún bar sigur
úr bítum í sínum flokki í Norðurlandsmóti,
Evrópumóti og heimsmeistaramóti í
bekkpressu á árinu 2022.
Matthildur setti á árinu 34 Íslandsmet
bæði í unglinga og fullorðins flokki,
2 evrópumet og 3 norðurlandamet.
Matthildur stundar nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands, auk þess
sem hún stundar fjallgöngur, skíði og hjólreiðar af krafti og er virkur
meðlimur í björgunarsveit.
Kjör á íþróttamanni og konu Seltjarnarness 2022
Matthildur og Ingi Þór kjörin
Kjör íþróttamanna Seltjarnarness 2022 í kvenna og karlaflokki fór
fram fimmtudaginn 26. janúar síðastliðinn. Kjörið fór nú fram í 29.
skiptið en það var fyrst haldið 1993.
Kjörið er í umsjón íþrótta og tóm stunda nefndar Seltjarnarness, sem vill
með kjörinu vekja athygli á gildi íþrótta, öflugu íþróttastarfi á Seltjarnarnesi
og verðlauna sérstaklega afreksíþróttamenn úr hópi bæjarbúa.
Sjö tilnefningar bárust nefndinni þetta árið.
Jafnframt voru veitt verðlaun til landsliðsfólks, ungs og efnilegs íþrótta
fólks auk þess sem Íslands og bikarmeistarar voru sérstaklega verðlaunaðir.
Þau sem voru tilnefnd eru eftirfarandi: Auður Anna Þorbjarnardóttir-
fimleikar, Ingi Þór Ólafson-golf, Matthildur Óskarsdóttir-
kraftlyftingar, Hannes Grimm-handknattleikur, Rut Bernódusdóttir-
handknattleikur, Lilja Davíðsdóttir Scheving-knattspyrna og Gabríel
Hrannar Eyjólfsson-knattspyrna.
Landsliðsfólk sem léku með sínum landsliðum á árinu 2022. Alex
Kári Þórhallsson-handknattleikur U-16, Antoine Óskar Pantano-
handknattleikur U-16, Katrín Anna Ásmundsdóttir-handknattleikur
U-18, Bjarni Þór Lúðvíksson-golf piltalandslið, Auður Anna
Þorbjarnardóttir-fimleikar unglingalandslið, Tómas Johannessen-
knattspyrna U-16 og Sara Björk Arnarsdóttir-knattspyrna U-15.
Efnilegt íþróttafólk valið af þjálfurum. Þau sem unnu Íslands- og Bikarmeistaratitla á árinu 2022.