Nesfréttir - 01.02.2023, Blaðsíða 4

Nesfréttir - 01.02.2023, Blaðsíða 4
Seltjarnarnesbær hefur gengið frá samningi um fullnaðar hönnun á nýjum leikskóla „Undra brekku“ við Andrúm arkitekta. Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri og Kristján Garðars son arkitekt undirrituðu samninginn á vett vangi fyrirhugaðra framkvæmda að viðstöddum miklum fjölda leikskólabarna og starfsfólki. Spenna var í lofti og stundin afar táknræn enda brýn þörf fyrir stærri leikskóla á Seltjarnarnesi. Efnt var til verðlaunasamkeppni árið 2018. Áform um að bæta húsakost leikskólans á Seltjarnarnesi hefur verið á döfinni um nokkurra ára skeið. Árið 2018 efndi Seltjarnarnesbær til verðlaunasamkeppni um hönnun á nýjum leikskóla þar sem Andrúm arkitektar hlutu fyrstu verðlaun. Þá voru til skoðunar stórtækar hugmyndir þar sem skipta átti út öllum fyrir­ liggjandi leikskólabyggingum á svæðinu fyrir allt að 3.600 fm. nýbyggingu. Fallið hefur verið frá þeirri hugmynd. Ný útfærsla sem tvöfaldar aðstöðuna Undanfarið ár hefur verið unnið markvisst áfram með Andrúm arkitektum miðað við breyttar forsendur. Nokkrar minni útfærslur hafa verið til skoðunar og nú liggur fyrir ákvörðun um að byggja nýja 1.550 fm. byggingu á lóðinni Suðurströnd 1 en nýta áfram húsnæði Mánabrekku og Sólbrekku. Ráðist verður í endurbætur á húsnæði þeirra, skipulagið yfirfarið og aðbúnaður bættur samhliða byggingu á nýja húsnæðinu. Þá verður gerð tengibygging á milli hinnar nýju byggingar og Mánabrekku. Með fyrirhugaðri nýbyggingu mun vinnurými leikskólans tvöfaldast en nýja byggingin mun rúma um átta leikskóladeildir og allt 150 börn. Mánabrekka og Sólbrekka eru um 1.300 fm. og því bætast við 1.550 fm. við athafnasvæði leikskólans með þessari framkvæmd og öll starfsemin rúmast á einum stað. Með stækkuninni verður jafnframt mögulegt að veita börnum frá 12 mánaða aldri leikskólavist. Fullnaðarhönnun og framkvæmdir framundan Samningur við Andrúm arkitekta felur í sér fullnaðarhönnun á nýja leikskólanum. Endanlegar teikningar verða kynntar fyrir bæjarbúum þegar þær liggja fyrir. Að auki mun Andrúm annast alla hönnunarstjórn verkefnisins, þ.m.t. arkitekta­ og verkfræðihönnun sem og umsjón með gerð allra verklýsinga vegna útboðs. Stefnt er að því að Ríkiskaup sjái um framkvæmd útboða vegna verklegra framkvæmda. Lagt er upp með að kostnaður við fram­ kvæmdina verði á bilinu 1.250 – 1.500 m.kr. en erfitt er að áætla nákvæmlega kostnað við framkvæmdir í umhverfi þar sem verðbólga nálgast 10%. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki seinni hluta árs 2025. 4 Nesfrétt ir Kristján Garðarsson, arkitekt hjá Andrúm og Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri handsala hönnunarsamninginn. Með þeim á myndinni eru Margrét Gísladóttir, leikskólastjóri, starfsfólk Sólbrekku auk kátra leikskólabarna. Samningur um hönnun undirritaður Leikskóli á Seltjarnarnesi ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR www.husavidgerdir.is/hafa-samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á Fegrun og lenging líftíma steyptra mannvirkja er okkar áhugamál. Við höfum náð góðum árangri í margs konar múr- og steypuviðgerðum, múrfiltun, steiningu og múrklæðningum. Hafðu samband Við skoðum og gerum tilboð! Stór grenndar stöð við björgunarsveitarhúsið Á fundi skipulags- og umferðarnefndar Seltjarnarnesbæjar var lagt fram minnisblað Ingimars Ingimarssonar garðyrkjustjóra frá 6. febrúar 2023 þar sem lagðar eru til staðsetningar innan deiliskipulagssvæðisins á móttökustöðvum fyrir endurvinnsluefni. Skipulags­ og umferðarnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Valhúsahæðar og aðliggjandi útivistarsvæðis og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar. Nefndin leggur til að litlar grenndarstöðvar verða staðsettar við Plútóbrekku og á mótum Norðurstrandar og Lindarbrautar og stór grenndarstöð verði staðsett við björgunarsveitarhús á Suðurströnd.

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.