Nesfréttir - 01.02.2023, Blaðsíða 12

Nesfréttir - 01.02.2023, Blaðsíða 12
12 Nesfrétt ir www.borgarblod.is Framhald af bls. 10 og 11. Margir hafa sagt mér að slaka aðeins á varðandi að svara þessu öllu og að vera út um allt, að ég muni einfaldlega brenna fljótt upp. Ég lít þannig á að ég sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins svari því sem spurt er um, hafi ég þær upplýsingar á takteinum þ.e.a.s. Samanber það sem ég sagði rétt áðan um þjónustu og að setja sig í spor viðskiptavinarins. Að svara ekki getur stuðlað að óþarfa óánægju en auðvitað þurfa að vera mörk á þessu sem og öðru. Heilt yfir hef ég bara gaman af þessu öllu saman og er sko ekkert að brenna upp enda bara nýbyrjaður. Mér finnst áhugavert að þróa starf bæjarstjórans með nýjum og allt öðrum hætti en gert er annars staðar og feta nýjar brautir. Nesfréttir hafa meira að segja birt gsm númerið mitt þannig að nú vita það allir. “ Að gera eins vel og mér og okkur er unnt „Verkefnin sem snúa að sam félaginu okkar hér eru svo mörg og margar spennandi hugmyndir á lofti. Mér finnst t.d. ekki galin hugmynd að færa bæjarskrifstofuna á Eiðistorg eins og ég hef áður nefnt og sé fyrir mér fleiri kosti en galla. Nú er verið að grófteikna upp húsnæðið á þessum 260 fermetrum og þegar við sjáum útkomuna getum við betur metið hvort starfsemi bæjar­ skrifstofunnar muni rúmast þar eða ekki. Reynist það of lítið þá fer þessi hugmynd mín bara ofan í skúffu. Svo er þetta allt spurning um forgangsröðun því það er svo margt sem kemur óvænt upp og þarfnast tafarlausra viðbragða en hefur ekki verið gert ráð fyrir í fjárhagsáætlunum. Oftar en ekki tengist það viðhaldi fasteigna, gatna kerfis og leiksvæða. Mér finnst mikilvægt að við sameinumst öll um að gera bæinn okkar enn fallegri og snyrtilegri með sameiginlegu átaki bæjarstarfsmanna og íbúa. Það eru svo alltaf einhver stór verkefni sem ekki hafa verið á dagskrá bæjarins en kominn er tími á. Get nefnt sem dæmi tímabær útskipti á gatnalýsingu bæjarins yfir í hagkvæmara LED kerfi en við erum tengd áratugagömlu kerfi ásamt póstnúmeri 107. Það er afar mikilvægt fyrir okkur að nýta stærðarhagkvæmni innkaupa og ná að fylgja nágrönnum okkar í Reykjavík, Kópavogi og Mosfellsbæ sem stefna á að taka þetta saman. Fyrr en síðar mun byggð rísa og von á fjölgun íbúa sem ég hlakka til að taka vel á móti og verkefnum því tengt. Sem sagt bara virkilega spennandi tímar framundan og ég hef gaman í vinnunni, finnst það sannur heiður að fá að gegna þessu virðulega embætti. Ég hef þó ekkert sérstaklega breytt mér heldur kem bara til dyranna eins og ég er klæddur. Mitt markmið er að gera þetta eins vel og mér og okkur sem störfum fyrir bæjarbúa er unnt. Almenn vellíðan og ánægja íbúa er alltaf markmið mitt. Af því verður enginn afsláttur gefinn.“ Nýrri kvenfatalínu AS WE GROW fagnað á Reykjavík EDITION Kvenleikinn sveif yfir vötnum þegar íslenska fatahönnunar- merkið As We Grow kynnti nýja fullorðinslínu í Tölt salnum á Hótel Reykjavík EDITION. Innblásturinn er sóttur í fatnað kvenna á sjötta áratugnum. Dress, peysur og fylgihlutir, sem eru í senn fínlegir, kvenlegir, silkimjúkir og þægilegir. Treflar og sjöl hönnuð með það fyrir augum að auðvelt sé að para saman við mismunandi flíkur, til að umbreyta ásýnd eða auka hlýju. Markmiðið er að skapa klassískar og óviðjafnanlega mjúkar flíkur úr hágæða hráefni, Alpaca ull og stuðla samhliða að jákvæðu hreyfiafli og betri heimi.  As We Grow er þekkt fyrir falleg barnaföt, sem seld eru víða um heim. Á síðasta ári fagnaði vörumerkið 10 ára afmæli og nú kominn tími til að setja aukið vægi á fullorðinsvörur.  Þess má geta að As We Grow opnaði nýverið stærri verslun á Klapparstíg 29.  Elíza Reid forsetafrú mætti á fagnaðinn. • Íslenskur húsasmíðaverkaki með íslenskum smiðum. • Sérhæfing í gluggaskiptum og glerjun. Gæða vottaðir timbur/ál gluggar. • Hægt er að fá tilboð í nýja glugga ásamt ísetningu í heildarpakka þar sem við sjáum um ferlið frá upphafi til enda. Gluggaskipti og glerjun Hafa samband Kobbi: 845 9596. Heimasíða: www.jeiriks.com Teymið sem stendur að As We Grow: Agnes Hlöðversdóttir, Snæfríð Þorsteins, Gréta Hlöðversdóttir, María Th. Ólafsdóttir og Björg Skarphéðinsdóttir.

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.