Nesfréttir - 01.02.2023, Blaðsíða 14
Að hvatningu Íþrótta- og
tóm stunda nefndar Seltjarnarnes-
bæjar hafa bæjaryfirvöld fjárfest
í tækjabúnaði til að gera spor
fyrir gönguskíði á Seltjarnarnesi.
Tækið þarf að draga aftan í
fjórhjóli og mynda þannig spor
sem auðveld ar gönguskíðafólki
gönguna á skíðunum.
Vissulega er oft ekki nægur
samfelldur snjór til að hægt sé
að leggja gönguskíðabraut á
Seltjarnar nesi, en þeim mun
mikilvægara er að vera með skýra
áætlun um framkvæmd málsins
þegar aðstæður leyfa. Skipulags og
umhverfissvið hefur tekið málið að
sér og munu starfsmenn Þjónustu
mið stöðvar bæjarins annast
framkvæmd og útfærslu málsins
þegar aðstæður leyfa.
Til að byrja með verða gerðar
tilraunir með lagningu göngu
skíðabrautir á tveimur stöðum. Sú
fyrri eða braut 1 kallast Grótta og
hefst við bílastæðið við Gróttu
og mun liggja eftir ströndinni við
Kotagranda upp með Bakkatjörn
og svo nær byggðinni við Nesbala,
Nesstofu og Ráðagerði og svo
aftur að bílastæðinu við Gróttu.
Hin brautin eða braut 2 hefst við
bílastæðið hjá Nesklúbbnum og
mun liggja í útjaðri brautar fimm og
brautar fjögur í kringum tjörnina og
svo í útjaðri annarra brauta, út fyrir
húsakynni Nesklúbbsins og aftur
að bílastæðinu.
Nesklúbburinn
tók vel í fyrir
spurn um að
nota að hluta
til svæði golf
vallarins undir
gönguskíðabraut,
en útfærslan
verður í góðu
samráði við lykil
fólk klúbbsins,
mun taka mið að aðstæðum og hlífa
öllum pútt flötum sérstaklega.
Ef vel tekst til má hugsa sér að
skoða fleiri staðsetninga síðar, svo
sem á Valhúsahæð eða meðfram
Norðurströnd. Eftir rysjótta tíð í
janúar og febrúar vonum við að
veðurguðirnir verði þessu verkefni
hliðhollir og færi okkur nægan snjó
og minni vind þannig að úr þessu
geti orðið.
Örn Viðar Skúlason, formaður
Íþrótta- og tómstundanefndar
Seltjarnarnesbæjar.
14 Nesfrétt ir
Örn Viðar
Skúlason.
Gönguskíðabrautir á Seltjarnarnesi
Íþróttafélagið vill ráða einstaklinga 20 ára og eldri (fædd 2003 og eldri) í störf:
• Verkefnastjóra sumarnámskeiða
• Flokkstjóra leikjanámskeiða Gróttu
• Skólastjóra fimleika- og leikjaskóla Gróttu
Íþróttafélagið Grótta vill ráða ungt fólk 18 ára og eldri (fædd 2005 og eldri) í störf:
• Leiðbeinendur á sumarnámskeiðum
Umsækjendur skulu sækja um ofangreind störf á heimasíðu www.alfred.is
Nánari upplýsingar og lýsingar á störfunum má finna á heimasíðu Gróttu www.grotta.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2023.
Gaui Kristins
SUMARSTÖRF HJÁ GRÓTTU
grotta.is
• Skólastjóra handboltaskóla Gróttu
• Skólastjóra knattspyrnuskóla Gróttu
• Flokkstjóra smíðavalla Gróttu
Íþróttafélagið Grótta auglýsir laus til umsóknar
eftirfarandi sumarstörf árið 2023 fyrir ungt fólk