Nesfréttir - 01.02.2023, Síða 14

Nesfréttir - 01.02.2023, Síða 14
Að hvatningu Íþrótta- og tóm stunda nefndar Seltjarnarnes- bæjar hafa bæjaryfirvöld fjárfest í tækjabúnaði til að gera spor fyrir gönguskíði á Seltjarnarnesi. Tækið þarf að draga aftan í fjórhjóli og mynda þannig spor sem auðveld ar gönguskíðafólki gönguna á skíðunum. Vissulega er oft ekki nægur samfelldur snjór til að hægt sé að leggja gönguskíðabraut á Seltjarnar nesi, en þeim mun mikilvægara er að vera með skýra áætlun um framkvæmd málsins þegar aðstæður leyfa. Skipulags­ og umhverfissvið hefur tekið málið að sér og munu starfsmenn Þjónustu­ mið stöðvar bæjarins annast framkvæmd og útfærslu málsins þegar aðstæður leyfa. Til að byrja með verða gerðar tilraunir með lagningu göngu­ skíðabrautir á tveimur stöðum. Sú fyrri eða braut 1 kallast Grótta og hefst við bílastæðið við Gróttu og mun liggja eftir ströndinni við Kotagranda upp með Bakkatjörn og svo nær byggðinni við Nesbala, Nesstofu og Ráðagerði og svo aftur að bílastæðinu við Gróttu. Hin brautin eða braut 2 hefst við bílastæðið hjá Nesklúbbnum og mun liggja í útjaðri brautar fimm og brautar fjögur í kringum tjörnina og svo í útjaðri annarra brauta, út fyrir húsakynni Nesklúbbsins og aftur að bílastæðinu. Nesklúbburinn tók vel í fyrir­ spurn um að nota að hluta til svæði golf­ vallarins undir gönguskíðabraut, en útfærslan verður í góðu samráði við lykil­ fólk klúbbsins, mun taka mið að aðstæðum og hlífa öllum pútt flötum sérstaklega. Ef vel tekst til má hugsa sér að skoða fleiri staðsetninga síðar, svo sem á Valhúsahæð eða meðfram Norðurströnd. Eftir rysjótta tíð í janúar og febrúar vonum við að veðurguðirnir verði þessu verkefni hliðhollir og færi okkur nægan snjó og minni vind þannig að úr þessu geti orðið. Örn Viðar Skúlason, formaður Íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarnesbæjar. 14 Nesfrétt ir Örn Viðar Skúlason. Gönguskíðabrautir á Seltjarnarnesi Íþróttafélagið vill ráða einstaklinga 20 ára og eldri (fædd 2003 og eldri) í störf: • Verkefnastjóra sumarnámskeiða • Flokkstjóra leikjanámskeiða Gróttu • Skólastjóra fimleika- og leikjaskóla Gróttu Íþróttafélagið Grótta vill ráða ungt fólk 18 ára og eldri (fædd 2005 og eldri) í störf: • Leiðbeinendur á sumarnámskeiðum Umsækjendur skulu sækja um ofangreind störf á heimasíðu www.alfred.is Nánari upplýsingar og lýsingar á störfunum má finna á heimasíðu Gróttu www.grotta.is Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2023. Gaui Kristins SUMARSTÖRF HJÁ GRÓTTU grotta.is • Skólastjóra handboltaskóla Gróttu • Skólastjóra knattspyrnuskóla Gróttu • Flokkstjóra smíðavalla Gróttu Íþróttafélagið Grótta auglýsir laus til umsóknar eftirfarandi sumarstörf árið 2023 fyrir ungt fólk

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.