Nesfréttir - 01.02.2023, Blaðsíða 10
10 Nesfrétt ir
Viðtal við Þór Sigurgeirsson
Í mörg horn var að líta hjá
bæjar stjóranum þ egar
Nes fréttir litu við á dögunum.
Verk fall yfirvofandi sem mun
hugsanlega hafa víðtæk áhrif á
bæjarlífið svo sem skólastarf, skóla-
mat, félagsþjónustu, sorphirðu
svo eitthvað sé talið skelli það á af
fullum þunga. „Já, það vantar ekki
verkefnin hingað. Við erum með
litla yfirbyggingu á bæjarfélaginu
sem sinnir öllum lögbundnum
verk efnum og yfirgripsmikilli
þjónustu af fagmennsku og alúð.
Stjórn kerfið hér er þannig sett upp
að mjög mörg verkefni hvíla á fáum
herðum. Á bæjar skrifstofunni er
t.a.m. ekkert aðstoðar fólk svo sem
bæjarritari eða skrifstofustjóri.
Starfsmenn eru miklir sérfræðingar
í sínum störfum og í raun einyrkjar,
sumir með mjög marga hatta
saman borið við það sem gengur og
gerist í nágranna sveitar félögunum.
Þetta reynist ágætlega en álagið er
hins vegar oft mikið og lítið má út
af bregða því verkefnum fjölgar
stöðugt og þjónustu kröfur aukast.
Við gerum þetta eins vel og með
eins hag kvæmum hætti og frekast
er unnt,“ segir Þór Sigurgeirsson
bæjarstjóri sem tók til starfa 8. júní
síðastliðinn fyrir rúmlega átta
mánuðum síðan.
„Þetta hefur verið virkilega
við burða ríkur tími og bæjar stjóra
starfið er óneitanlega viðamikið.
Ég er í raun alltaf í vinnunni og veit
eiginlega aldrei alveg hvað dagurinn
ber í skauti sér. Það eru eðlilega
fjöldi ólíkra viðfangsefna tengt
bæjarmálunum sem þarf að sinna
alla daga, verkefnin eru mis viðamikil
og sum tímafrekari en önnur. Ég
get nefnt sem dæmi að fundahöld
með SSH (Samband sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu) eru vikuleg og
taka upp mikinn tíma. Um er að ræða
fundi með borgar og bæjarstjórum
okkar nágrannasveitarfélaganna og
snúa að sameiginlegum verkefnum
okkar og samstarfi. Í þessu felast
miklir hagsmunir svo sem þátttaka
og eign í Samgöngusáttmálanum,
byggðasam lögunum Sorpu, Slökkvi
liðinu og Strætó, og tekur oft hvað
mestan tíma þessa daganna.“
Þakklátur fyrir
góðar móttökur
„Ég hef upplifað mikla jákvæðni frá
því að ég hóf störf og er bæjarbúum
afar þakklátur fyrir góðar móttökur
við mér og hópnum mínum,
mál flutningi okkar og verkum. Ég er
ein staklega ánægður með teymið í
meiri hlutanum sem hefur á að skipa
góðri blöndu af reynslu héðan og
þaðan, kynja og aldurssamsetningin
er góð og andinn jákvæður. Við erum
í þessu starfi af heilum hug til að
láta gott af okkur leiða. Við njótum
auðvitað góðra starfa forvera okkar í
bæjarstjórn sem við kunnum vel að
meta og horfum bjartsýn til framtíðar.
Já, bjartsýnn segi ég því það er ekkert
sérstaklega bjart yfir verðbólgu og
almennt efnahagsmálum landsins
og heimsins um þessar mundir.
Við hjá Seltjarnarnesbæ förum
sannarlega ekki varhluta af því og
fjármagnsliðir eru okkur þungir. En
við erum samt sem áður bjartsýn
og ég vil miklu frekar tala hlutina
upp og sjá tækifærin í stað þess að
leggja árar í bát. Samstarf flokkanna
í bæjarstjórn er ennfremur að mínu
mati með miklum ágætum, gott
samtal og samvinna. Mér finnst
það persónulega bæði mikilvægt
og jákvætt því síst af öllu þurfum
við átakastjórnmál á Nesinu
um þessar mundir.“
Margt spennandi í gangi
„Það er verulega ánægjulegt að
segja frá því að ég hef, fyrir hönd
Seltjarnarnes bæjar, ritað undir
hönnun ar samning að nýrri leik
skóla byggingu eins og sjá má í
frétt hér í blaðinu. Það eru svo
sannarlega kaflaskil og ég er mjög
stoltur af þessum áfanga. Nú er
verkið formlega hafið eftir langan
aðdraganda, endan leg hönnun í
sam starfi við fagfólk leikskólans
verður kláruð og áformað að ný
bygging verði tekin í notkun fyrir
árslok 2025.
Í lok árs 2022 tókum við í notkun
nýja heimasíðu bæjarins sem
hafði verið í þróun í nokkurn tíma.
Skemmtilegt verkefni sem bætir
ásýnd og þjónustu okkar til mikilla
muna og leggur grunn að endur
nýjun á vefsvæðum fyrir skólana og
bókasafnið. Á nýju heima síðunni
er gátt fyrir íbúa til að koma til
okkar hvers kyns ábendingum um
bæjarmálin í víðum skilningi. Vil
hvetja íbúa að notfæra sér þennan
aðgang að bæjarkerfinu en öllum
ábendingum er vísað áfram í
viðeigandi farveg.
Við ákváðum við gerð fjárhags
áætlunar ársins 2023 að setja
um talsvert fjármagn í áframhaldandi
endur bætur á Félagsheimilinu.
Þegar er búið að leggja mikla
vinnu í endurbæturnar sem hófust
á covid tímanum. Þær eru afar
umfangsmiklar enda 50 ára gamalt
hús, flest allt upprunalegt og löngu
kominn tími á allar lagnir og almennt
viðhald. Auk þess sem margt í húsinu
stóðst lengur nútímakröfur varðandi
brunavarnir ofl. Nú þegar liggur nær
öll hönnun fyrir og hefur þegar verið
greidd auk þess sem búið er að vinna
mikla lagna og undirbúningsvinnu.
Fljótlega munu framkvæmdir halda
áfram en það hefur hefur verið
mikill söknuður allra að hafa ekki
aðgang að Félagsheimilinu enda
eina húsnæði okkar bæjarbúa af
þessum toga. Ég er mjög spenntur
Nóg að gera og er að vanda mig
Þór sitjandi á fundarborði. Lýsir persónuleika hans vel. Ekki vera of stífur.
- segir Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri