Feykir


Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 2

Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 2
Fjölmargar tilnefningar bárust til fyrirmyndar- verkefna á árinu 2021 á starfssvæði SSNV en á heimasíðu samtakanna kemur fram að í desem- ber hafi verið kallað eftir þeim, annars vegar á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og hins vegar á sviði menningarmála. Stjórn SSNV ákvað á fundi sínum þann 11. janúar sl. að veita þremur framúrskarandi verkefnum viðurkenningu. Verkefni Brúnastaða í Fljótum, Manns og konu ehf. og Sögufélags Skagafjarðar fengu viðurkenningar að þessu sinni. Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar fengu Brúnastaðir í Fljótum viðurkenningu fyrir vinnslu geitaosta en þeir þykja einstakir og engum öðrum íslenskum ostum líkir. Á sviði menningarmála fengu tvö verkefni viðurkenningar en þau eru annars vegar Maður og kona ehf. fyrir Shoplifter í Hrútey, sýning- una Boðflennu, eftir Hrafnhildi Arnarsdóttur, metnaðarfull sýning sem vakti mikla athygli innanlands sem utan. Segir í greinargerð SSNV að sýningin hafi styrkt sérstöðu landshlutans á sviði sjónlista og haft skýr tengsl við textíl- menningu svæðisins. Hitt verkefnið á sviði atvinnuþróunar var Byggðasaga Skagafjarðar sem Sögufélag Skaga- fjarðar stóð fyrir en í henni er fjallað um allar bújarðir í Skagafirði í máli og myndum sem hafa verið í ábúð frá árinu 1780 til dagsins í dag. Auk þess innihalda ritin upplýsingar um sveitar- félögin í firðinum og ýmsan annan fróðleik. Öll verkefnin hafa hlotið styrki úr Upp- byggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands vestra en hægt er að forvitnast nánar um þau á heimasíðu SSNV. /PF Framundan er bóndadagurinn sem markar upphaf þorrans, fjórða mánuð vetrar að gömlu íslensku misseratali. Hann hefst ætíð á föstudegi á bilinu 19.–26. janúar og lýkur á þorraþræl, laugardeginum fyrir konudaginn en þá tekur góa við. Eins og margir þekkja hefur þessi tími verið notaður til mannfagnaða í formi þorrablóta þar sem fólk kemur saman, etur og drekkur og hefur hið fornkveðna; að maður sé manns gaman, í heiðri. Í nútímanum er lítið sem minnir á líf Íslendinga á þorra fyrri alda. Fyrir það fyrsta er mjög sjaldséð, jafnvel fáséð, að nokkur húsbóndi bjóði þorra í garð með því að rísa úr fleti eldsnemma bóndadags og rjúki út á skyrtunni einni og í annarri buxnaskálminni, dragandi hina á eftir sér. Samkvæmt gamalli sögn áttu þeir að ljúka upp bænum, hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn og bjóða þorra velkominn til húsa. Þorra var síðan fagnað með því að bjóða til veislu. Í bókinni Saga daganna eftir Árna Björnsson segir að þorr- inn og góan hafi þótt erfiðastir vetrarmánaðanna þar sem oft var farið að ganga á matarbirgðirnar. Það þekkjum við ekki í dag, sem betur fer, þar sem nóg er af mat og flestir sem éta of mikið. Einhverjir gætu tengt þorrann við hörmungar og hungur fyrst verið er að éta „skemmdan mat“, súran og kæstan. En þarna skulum við doka örlítið og spá. Þorramatur er ekkert annað en stæling á fyrri alda mat þar sem hvorki frysti- né kæliskápar voru komnir á teikniborðið. Þá var matur geymdur í skyrmysu sem lækkaði pH gildi matarins og kom í veg fyrir að óæskilegir gerlar næðu að vaxa. Einnig var matur þurrkaður, líkt og harðfiskurinn, svo ekki óx gerillinn þar og svo var kjöt ýmist saltað í tunnur eða hengt upp í hlóðaeldhúsum eða reykhúsum til að forða því frá skemmdum þar sem gerillinn náði ekki að vaxa í þeim aðstæðum, ef rétt var að farið. Þá er verkun hákarlsins sér kafli út af fyrir sig. Á þorranum var sem sagt ekkert nýmeti að fá – aðeins „þorramat“. Að kalla þorramat skemmdan mat er móðgun við formæður okkar og feður, nema þá að hann sé illa verkaður og skemmdur þess vegna. Nú horfir svo við að líklega verða engin stór þorrablót í ár nema eitthvað mikið breytist hjá sóttvarnateyminu fræga, en væntanlega eiga einhverjir eftir að slá upp sinni eigin þorraveislu. Þá er gott að hafa eftirfarandi erindi Hávamála í heiðri: Óminnishegri heitir sá er yfir öldrum þrumir. Hann stelur geði guma. Þess fugls fjöðrum eg fjötraður var'g í garði Gunnlaðar. Góðar stundir! Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Velkominn þorri og vertu góður! AFLATÖLUR | Dagana 9. – 15. janúar á Norðurlandi vestra Alls landað 15 sinnum í síðustu viku SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Tryggvi Eðvards SH 2 Lína 43.049 Alls á Sauðárkróki 341.429 SKAGASTRÖND Elfa HU 191 Handfæri 201 Guðrún Petrína GK 107 Landbeitt lína 7.254 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína 9.861 Hópsnes GK 77 Landbeitt lína 8.194 Alls á Skagaströnd 25.510 HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 2.953 Alls á Hvammstanga 2.953 SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 208.619 Lundey SK 3 Þorskfisknet 1.556 Málmey SK 1 Botnvarpa 88.021 Steini g SK 14 Handfæri 184 Á Króknum voru fimm bátar/togarar sem lönduðu alls 341.429 kg og var Drangey SK 2 aflahæst með tæp 209 tonn. Allir lönduðu einu sinni nema línubáturinn, Tryggvi Eðvalds SH 2, sem landaði þrisvar sinnum. Á Skagaströnd voru fjórir bátar á veiðum með alls 25.510 kg. og var Gulltoppur GK 24 aflahæstur með tæp tíu tonn í tveim löndun- um þá landaði einnig Hópsnes GK 77 tvisvar sinnum í síðustu viku. Einn bátur landaði á Hvammstanga, Harpa HU 4, og landaði hún tvisvar sinnum með alls 2.953 kg. Alls var landað 369.892 kg á Norðurlandi vestra aðra viku ársins 2022. /SG Fyrirmyndarverkefni á Norðurlandi vestra Þrjú verkefni fengu viðurkenningu Gettu betur Lið FNV aftur úr leik – eða þannig Spurningakeppni framhalds- skólanna, Gettu betur, hélt áfram á öldum ljósvakans á mánudagskvöldið og þrátt fyrir tap í fyrstu umferð fékk keppnislið Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra annað tækifæri þar sem liðið komst áfram sem stigahæsta tapliðið eftir fína frammistöðu gegn öflugu liði Tækniskólans. Andstæðingurinn nú var sprækt lið Fjölbrautaskóla Vesturlands og í húfi var sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Í átta liða úrslitum er keppnin færð úr útvarpi og neti og inn í stofur landsmanna með hjálp Sjónvarpsins en langt er síðan FNV hefur átt lið í átta liða úrslitum. Það hafðist ekki heldur í þetta skiptið því Fjöl- brautaskóli Vesturlands hafði betur – úrslitin 28-9. /ÓAB Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 649 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 795 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Keppendur FNV þau Kristey Rut Konráðsdóttir, Íris Helga Aradóttir, Ásta Aliya Friðriksdóttir Meldal og Óskar Aron Stefánsson. MYND: FNV.IS Ostar frá Brúnastöðum. MYND AF FB 2 03/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.