Feykir


Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 6

Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 6
 þeim fyrstu sem greindust í hópsmiti sem kom upp á Sauðárkróki snemma í maí. Á forsíðu 19. tölublaðs var sagt frá ástandinu á heimilinu en hann sat í einangrun á efri hæð íbúðar sinnar í Raftahlíðinni ásamt syni sínum Fannari á meðan Regína, kona hans, og börn þeirra tvö Birgitta og Sigurbjörn voru í sóttkví á neðri hæðinni. Pétur sagði þetta fyrirkomulag hafa gengið áfallalaust en öllum hafi leiðst í þessu ástandi. Pétur sagði að þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem einhver hafi hringt í sig og sagt að hann væri jákvæður en var svo ekkert sérstaklega jákvætt. „Þetta var náttúrulega mjög neikvætt þar sem við reyndumst Covid já- kvæðir“. Skert bankaþjónusta á Blönduósi Útibú Arion banka á Blöndu- ósi lokaði um mánaðamótin apríl-maí og þar með í fyrsta skipti í 130 ár sem engin bankaþjónusta hefur verið í boði í bænum. Áfram verður þó alhliða hraðbanki á Blönduósi þar sem hægt er að taka út og leggja inn seðla greiða reikn- inga, enduropna PIN númer og millifæra. Valdimar Hermanns- son bæjarstjóri sagði þetta mikil vonbrigði og taldi sveitarfélagið að öllum líkindum færa við- skipti sín í annan banka. Handbendi fékk Eyrarrósina Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverk- efni utan höfuðborgarsvæðis- ins, var afhent í sautjánda sinn sunnudaginn 16. maí, við hátíð- lega athöfn á Patreksfirði. Frú Eliza Reid forsetafrú og vernd- ari Eyrarrósarinnar veitti verð- launin. Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga hlaut viðurkenn- inguna að þessu sinni og er það í fyrsta sinn sem Eyrarrósin fellur í skaut verkefnis á Norðurlandi vestra. Greta Clough, stofnandi og listrænn stjórnandi Handbendis tók á móti viðurkenningunni og verðlaunafé að upphæð kr. 2.500.000. Viðurkenningunni fylgir að auki boð um að standa að viðburði á Listahátíð 2022 og framleitt verður vandað heim- ildamyndband um verkefnið. Vel sóttir íbúafundir Dagana 18. og 19. maí voru haldnir íbúafundir á Blönduósi og Skagaströnd vegna samein- ingar sveitarfélagana í Austur- Húnavatnssýslu. Um 20 manns sóttu fundinn á Blönduósi sem haldinn var í félagsheimilinu og um 35 fundinn á Skagaströnd, en hann fór fram í Fellsborg. Fundunum var einnig streymt beint á netið, en um 120 manns fylgdust með báðum fundunum þar. „Á fundunum var farið yfir stöðugreiningu og framtíðar- sýn samstarfsnefndar sem hún hefur nú skilað af sér til sveitar- stjórna. Mikill áhugi var á fjár- hagsmálefnum sveitarfélag- anna, þ.á.m. skuldastöðu,“ segir í frétt í 21. tbl. Mánudaginn þar á eftir var haldinn íbúafundur á Húnavöllum og annar daginn eftir í Skagabúð en kosið var um sameininguna þann 5. júní. Júní Strandveiðibátum fjölgaði á Skagaströnd Aflabrögð voru með eindæm- um góð á Skagaströnd síðasta vor, að sögn Alexöndru Jóhannesdóttur, sveitarstjóra, þar sem dragnótarbátar veiddu vel snemmvors þangað til hrygningarstopp var sett á. Eins voru færabátar að veiða ágætlega á sama tíma. „Það eru um 25 bátar sem gera út á strandveiðar frá Skagaströnd og þeim hefur farið fjölgandi. Aflabrögð hafa verið nokkuð góð, tíðarfar gott og flestir gátu nýtt alla daga í maímánuði sem er sjaldgæft. Hingað til hefur veður verið stærsta breytan í þeim efnum. Samantekt LS á verði þorsks sem veiddur var á handfæri sýnir að verð í maí er 29% hærra en það var á sama tíma í fyrra sem er ánægjulegt,“ sagði Alexandra í samtali við Feyki. Sameiningartillagan felld á Skagaströnd og í Skagabyggð Þann 5. júní var kosið um sam- einingartillögu fjögurra sveitar- félaga í Austur-Húnavatnssýslu; Blönduósbæjar, Húnavatns- hrepps, Skagabyggðar og Skaga- strandar. Tillagan var felld á Skagaströnd, þar sem 69,2% íbúa sögðu nei við sameiningu, og í Skagabyggð sögðu 54,7% íbúa nei. 89,4% íbúa Blönduósbæjar sögðu já við sameiningu og í Húnavatnshreppi sögðu 56,6 % íbúa já. Jón Gíslason, formaður sameiningarnefndar og oddviti Húnavatnshrepps, sagði úrslitin mikil vonbrigði og undir það tók Dagný Rósa Úlfarsdóttir, oddviti Skagabyggðar. „Viðbrögð mín eru fyrst og fremst vonbrigði með niður- stöður hér í Skagabyggð og á Skagaströnd og komu þær mér á óvart. Ég taldi að íbúar væru á þeirri skoðun að gott væri að sameinast öllum hinum sveitarfélögunum í A-Hún. Mikil vinna er að baki hjá samstarfsnefnd og því eru það vissulega vonbrigði að þetta sé niðurstaðan,“ sagir Dagný Rósa og bætti við að best væri að vera ekki með svartsýnisraus hvað það varðar á þessari stundu heldur horfa fram á veginn og vinna úr niðurstöðum.“ Stefnir í 12 holu völl á Hlíðarenda Mikil fjölgun hefur verið á nýliðum hjá Golfklúbbi Skaga- fjarðar undanfarin ár og virtust vinsældir koma stjórn klúbbs- ins á óvart. „Við höfum engar sérstakar skýringar á því aðrar en þær að Skagfirðingar virðast vera að taka við sér aðeins seinna en gerist annars staðar á landinu hvað varðar vinsældir og áhuga á golfi,“ sagði Andri Þór Árnason, ritari klúbbsins í viðtali við Feyki en að hans sögn hafði verið algjör sprenging í nýjum meðlimum golfklúbba á landsvísu undanfarin ár eða áratugi. Andri sagði að nú þegar væri búið að teikna upp þrjár nýjar holur við völlinn en lengi hafa verið uppi hugmyndir um stækkun vallarins í 18 holu völl. Beinafundur við Víkur á Skaga Um miðjan júní fundust bein í fjörunni við bæinn Víkur á Skaga sem í fyrstu voru talin vera mannshandleggur. Ábúandi á bænum tilkynnti um fundinn og voru björgunarsveitarmenn kallaðir út til að leita umhverfis Maí Stefán R. Gíslason samfélagsverðlaunaður Í upphafi rafrænnar Sæluviku í Skagafirði var upplýst hver hlaut samfélagsverðlaun Sveitar- félagsins Skagafjarðar það árið og féll sá heiður Stefáni R. Gíslasyni, tónlistarkennara og kórstjóra í Varmahlíð, í skaut. „Ég er ekki verðlaunamiðaður maður og ekki gott að segja það svona þegar ég er nýbúinn að fá verðlaunin. Ég sækist ekki eftir þeim en ef ekki ég þá einhver annar. En ég er mjög ánægður með þetta,“ sagði Stefán inntur eftir viðbrögðum við heiðrinum. „Þetta hvetur mann til að hugsa til baka en það vantar aðeins tvö ár í að þetta séu 40 ár í þessum slag.“ Hreppsnefnd Akrahrepps ekki einhuga um sameiningarviðræður Ekki var samstaða innan hrepps- nefndar Akrahrepps um að þekkjast boð Sveitarfélagsins Skagafjarðar til formlegra við- ræðna um sameiningu sveitar- félaganna tveggja í Skagafirði en hreppsnefndin tók málið fyrir á fundi sínum í lok apríl. Einar Gunnarsson varaoddviti taldi Akrahrepp hafa fjárhagslegt bol- magn, mannauð og þekkingu til að reka gott samfélag áfram. Í tillögu byggðaráðs Svf. Skagafjarðar var stungið upp á því að til stuðnings sveitarfélögun- um í viðræðuferlinu yrði leitað liðsinnis óháðra ráðgjafa til að meta kosti og galla mögulegrar sameiningar og þau tækifæri sem í henni gætu falist. Ekkert jákvætt við að vera jákvæður „Ég óska engum þessa viðbjóðs sem ég er með,“ sagði Pétur Ingi Björnsson sem varð með SAMANTEKT Páll Friðriksson Nú rifjum við upp fréttir sem Feykir færði lesendum annan ársþriðj- ung síðasta árs, frá maí og út ágúst. Þetta var tímabil bjartsýninnar, sérstaklega í Covid-baráttunni þar sem flestir töldu að hún hefði bor- Fréttaannáll 2021 | Annar hluti Kosningar og jákvæðir framtíðarstraumar Stefán R. Gíslason með samfélagsverðlaun sín. MYND: PF ið árangur. Þórólfur sóttvarnarlæknir taldi samt ástæðu til að vara fólk við að fara glanna- lega og ritstjóri tók undir með honum í leiðara í lok júní: „Ég er alla vega farinn í sumarfrí og mun ferðast innanlands með sprittið á kantinum. Ekki vill maður Delta afbrigðið!“ En nú vitum við betur og bæði Delta og Ómíkron búið að gera okkur lífið leitt. Í næsta Feyki klár- um við svo yfirferðina þegar beru mánuðirnir verða teknir fyrir, september til desember. Aðstaða fyrir smábáta er orðin hin glæsilegasta enda fjölgar strandveiðibátum á Skagaströnd. MYND: ÁRNI GEIR INGVARSSON 6 03/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.