Feykir


Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 7

Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 7
 fjöruna en fundu ekkert sem gæti tengst beinunum. Beinin voru send suður til kennslanefndar ríkislögreglu- stjóra sem taldi líklegt að um selabein væri að ræða. „Aftur- hreifinn er ansi líkur hand- leggsbeinum úr manni. Það er ekki óalgengt að bæði bein úr stórum álftum og selshræjum séu mistekin sem mannabein,“ var haft eftir Runólfi Þórhallssyni, forstöðumanni kennslanefndar ríkislögreglustjóra. Vonbrigði með niðurstöðu sameiningakosninga Á fundi byggðarráðs Blönduós- bæjar þann 9. júní lýsti ráðið yfir vonbrigðum sínum yfir þeirri niðurstöðu sem varð í íbúakosningu um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húna- vatnssýslu þar sem sameining var felld í tveimur sveitarfélögum, Skagabyggð og Sveitarfélaginu Skagaströnd, en samþykkt í öðrum tveimur, Húnavatnshrepp og Blönduósbæ. Byggðarráðið gleðst þó yfir afgerandi niðurstöðu kosningar í Blönduósbæ sem sýnir að þeirra mati samstöðu íbúa til framþróunar. „Mikilvægt er að nýta þá miklu vinnu sem unnin hefur verið að undanförnu, til þess að þróa samfélagið áfram,“ sagði í fundargerð ráðsins. Nýr veitingastaður við höfnina á Skagaströnd Harbour restaurant & bar opnaði á Skagaströnd þann 17. júní en hann er staðsettur í gömlu iðnaðarhúsi á höfninni á Skagaströnd. Eigendur staðarins eru systkinin Stefán Sveinsson og Birna Sveinsdóttir ásamt mökum sínum þeim Hafdísi Hrund Ásgeirsdóttur og Slavko Velemir. Í langan tíma hafði sárvant- að veitingastað á Skagaströnd þannig að hjónin ákváðu að hætta að bíða og tóku málin í sínar hendur. Framkvæmdir fóru af stað í lok árs 2020 og þar með létu þau sinn draum og annarra bæjarbúa rætast að opna veitingastað. Aurskriða féll í Varmahlíð Um fjögurleytið þann 29. júní féll stór aurskriða úr hlíðinni fyrir ofan Laugaveg í Varmahlíð á milli tveggja húsa og á þau, Laugaveg 15 og 17, og urðu tals- verðar skemmdir á húsum. Enginn slasaðist en svæðið var strax flokkað sem hættu- svæði, götum í nágrenninu lokað og öll hús frá Laugavegi 13 og til norðurs og samsvarandi hús á Norðurbrún voru rýmd. Gamla Blöndubrúin verður göngubrú út í Hrútey Það er óhætt að segja að mikill spenningur og eftirvænting hafi verið í þeim sem mættir voru að fylgjast með þegar gömlu Blöndubrúnni var komið fyrir á varanlegum stað sem göngubrú út í Hrútey. Ekkert dugði nema stærsti krani landsins í verkið en brúin vegur liðlega 30 tonn og er um 40 metrar á lengd. Gamla brúin var vígð árið 1897 og þjónaði sínu hlutverki Greta Clough, stofnandi og listrænn stjórnandi Handbendis tók á móti viður- kenningu Eyrarrósarinnar. MYND AÐSEND versins og sjálfbærni þess. „Ísland er góður staður fyrir aðila sem leita eftir öruggum og umhverfisvænum gagna- verslausnum. Við teljum okkur vera að mæta þessum kröfum með gagnaverinu á Blönduósi, en reksturinn hefur gengið vonum framar frá opnun árið 2018. Við hlökkum til að geta mætt vaxandi eftirspurn eftir umhverfisvænum gagnavers- lausnum með þessari aukningu.“ Blómafjós vekur athygli Feykir sagði frá skemmtilegri frétt Magnúsar Hlyns Hreiðars- sonar sem birtist á vef Bænda- blaðsins þar sem rætt var við Sigrúnu Hrönn Þorsteins- dóttur í Flugumýrarhvammi en þar hafði hún skreytt fjósið með fallegum blómum sem hún ræktaði sjálf. „Það er að okkar mati gífurlega mikilvægt að ganga vel um og hafa snyrtilegt á bújörðum. Við megum ekki gleyma því að við erum að framleiða matvæli og ásýndin verður bara að vera í lagi. Við höfum alla tíð lagt áherslu á að ganga vel um og reynt að venja börnin okkar á það líka. Auðvitað hvet ég aðra bændur að hafa snyrtilegt í kringum sig en auðvitað geri ég mér grein fyrir því að það eru ekki allir fyrir blómarækt,“ sagði Sigrún. Merkilegur fornleifafundur á Þingeyrum „Það er ekki oft sem það finnst gripur úr gulli eða hringar eins og þessi, og eins þetta höfuðfat er mjög merkilegt þannig að ég tel þetta vera með merkilegri fundum síðari ára í fornleifafræðinni,“ sagði Steinunn Kristjánsdóttir, prófess- or í fornleifafræði við Háskóla Íslands, í viðtali við Óðin Svan Óðinsson, fréttaritara RÚV og Feykir greindi frá í seinasta blaði ágústmánaðar. Ástæðan fyrir því að maður- inn í gröfinni var talinn vera Jón Þorleifsson er sú að munirnir sem fundust á honum eru taldir gefa vísbendingu um það. „Þegar gröfin var opnuð, þá kom í ljós að þessi einstaklingur sem þarna var grafin bar hring úr gulli, þetta er svona innsiglishringur sem er með ákveðnu tákni og það leiddi okkur á sporið um hver þetta gat verið. Hann var líka með forláta húfu á höfði,“ segir Steinunn. Framhald á upprifjun ársins 2021 verður í næsta Feyki. Vegurinn verður sífellt skuggalegri og vonandi verður hafist handa við jarðgangagerð áður en illa fer. MYND: ÁSTA SIGFÚSDÓTTIR á Blönduósi til ársins 1962 þegar ný brú yfir Blöndu var tekin í notkun og sú gamla flutt fram í Svartárdal. Brúin var síðan flutt aftur á Blönduós árið 2001 og var geymd í Kleifarhorninu þar sem hún var sandblásin og máluð að nýju. 90 ára afmæli USVH Ungmennasamband Vestur- Húnvetninga, USVH, fagnaði 90 ára afmæli sínu lok júní í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Haldið var fjölmennt frjáls- íþróttamót fyrir alla aldurshópa, spilaður fótbolti og hinar ýmsu veitingar voru á boðstólum. Í tilefni tímamótanna sam- þykkti byggðarráð að veita sambandinu 500.000 kr. styrk til áhaldakaupa. Júlí Hræðast að keyra Siglufjarðarveg Mikil umræða hefur átt sér stað á síðustu árum um Siglufjarðarveg og hversu hrikalegt vegarstæðið er, sértaklega við Strákagöng og víða á Almenningum, eftir að Trölli.is birti frétt og myndir af vegarstæðinu. Trölli.is fékk póst frá veg- faranda sem leist ekki á blikuna, þrátt fyrir hásumar og engin snjóflóð eða vetrarfærð. „Í ljósi nýjustu frétta af aurskriðum í Varmahlíð og Tindastóli, þá stendur manni alls ekki á sama um Siglufjarðarveginn,“ er haft eftir vegfarandanum. Af myndum af vegarstæðinu að dæma má það vera öllum ljóst að vegarstæðið er hrikalegt og má lítið út af bera svo illa fari. 200 milljóna króna styrkur frá KS Kaupfélag Skagfirðinga ákvað á fundi sínum þann 1. júní að veita sveitarfélögunum í Skagafirði sérstakt framlag til samfélagslegra verkefna í Skagafirði sem hljóðar upp á 200 milljónir króna til tveggja ára. Eru þær hugsaðar sem stuðningur við verkefni á vegum sveitarfélaga í Skagafirði, sem ætluð eru til að bæta búsetugæði í héraði, m.a. með því að leggja og bæta göngustíga, malbika sérstök svæði, fjölga útivistarsvæðum, byggja upp skíðasvæði í Tindastóli, bæta félagsaðstöðu íbúa og margt annað hvað varðar umhverfi og búsetugæði almennt í héraðinu. Með þessu m.a. vill fyrirtækið undirstrika samfélagslega ábyrgð sína og skapa sem bestar aðstæður og umhverfi fyrir íbúa Skagafjarðar. „Við viljum sýna það með þessu eins og ýmsu öðru, að við viljum byggja upp öflugt skagfirskt samfélag og við viljum fyrst og síðast eiga gott samstarf við alla sem að byggja þetta hérað og við viljum sýna að það skiptir Kaupfélagið miklu máli að vel takist til,“ sagði Þórólfur Gíslason í tölu sem hann hélt við afhendinguna sem haldin var í Húsi frítímans þann 7. júní. Nýr lögreglustjóri á Norðurlandi vestra Birgir Jónasson var skipaður í embætti lögreglustjóra á Norður- landi vestra frá 19. júlí. Í tilkynningu frá Dómsmála- ráðuneytinu kom fram að Birgir hafi lokið meistaraprófi og MBA gráðu í lögfræði og prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Ágúst Aukin raforka til gagnaversins Landsnet og Etix Borealis, sem rekur gagnaver á Blönduósi, hafi undirritað viljayfirlýsingu um aukinn flutning á raforku til gagnaversins. Aukningin fer fram í áföngum, þar sem í fyrsta áfanga verður nýtt svokallað snjallnet (smartgrid) til að auka flutninginn og tryggja rekstraröryggi flutningskerfisins. Haft var eftir Birni Brynjúlfssyni, forstjóra Etix Everywhere Borealis að það sé ánægjulegt að geta nýtt snjallnet til að bæta nýtingu flutningskerfisins og þannig auka rýmd gagna-Aurskriðan tók með sér hluta úr götunni á Norðurbrún. MYND: GRÉTA MARÍA Andri segir að þegar sé búið að teikna upp þrjár nýjar holur við Hlíðarendavöll. MYND AÐSEND 03/2022 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.