Feykir


Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 4

Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 4
AÐSENT | Hjalti Þórðarson skrifar Djúpar lægðir dundu á landinu kringum áramótin með hárri sjávarstöðu og allnokkru tjóni í og við nokkrar sjávarbyggðir. Þessi tjón, ásamt mörgum öðrum undanfarin ár, hljóta að vekja fólk til aukinnar vitundur um hærri sjávarstöðu og auknar líkur á enn meira tjóni í komandi framtíð. Því miður er ekkert í þeim efnum sem getur batnað. Hjá þjóð sem býr á eyju með mörgum tengingum við sjóinn hefur verið furðulítil umræða um þessi mál. Sjávarborð hefur hækkað um 21-24 sm á síðastliðnum 140 árum og á þeim tíma með sívaxandi hraða. Nú um stundir hækkar sjávarborð um 3-4 mm á ári og sumar spár gera ráð fyrir að hækkun sjávar verði að meðaltali meira en 5 mm á ári næstu 20 árin. Sjávarstrendur landsins bera þess líka víða merki með miklu og auknu sjávarrofi. Skagafjörður hefur ekki farið varhluta af þessu og hefur Ægir konungur verið duglegur síðustu árin að mölva og berja af landinu sem mest hann getur. Ef skoðuð eru u.þ.b. 20 ára gömul gögn og þau borin saman við nýleg gögn sjást víða miklar breytingar. Sjávarmölin við Miklavatn í Fljótum hefur flust innar svo nemur tugum metra jafnvel mest um 60- 70 metra. Haganesið vestan við Miklavatn hefur styst um allt að fimm metra. Þar sem akvegurinn liggur næst sjónum fyrir neðan Móskóga á Bökkum hefur ströndin færst innar um allt að fimm metra og er vegurinn kominn í stórhættu. Lónsmölin í Sléttuhlíð hefur færst innar á stórum köflum um 20-40 metra. Norðausturhorn Þórðar- höfða hefur tapað hátt í 10 metrum. Bæjarmölin við Höfðavatn hefur á sumum stöðum færst innar sem nemur 10-30 metrum. Stór hluti Garðssands er nánast alltaf undir vatni og eru nýlegar upp- græðslur að fljóta á haf út. Nánast er hætt að bæta í fjöruna á Borgarsandi þrátt fyrir gríðarlegan framburð úr Héraðsvötnum. Reykjadiskur á Reykjaströnd hefur á kafla styst um allt að 5 metra. Ströndin vestan við Hraun á Skaga hefur á einum stað færst innar um allt að 10 metra. Þessi framansögðu dæmi eru þar sem mikil breyting hefur orðið á ströndinni en til allrar hamingju hefur megnið af ströndinni ekki breyst á jafn dramatískan hátt enda hér um örstuttan tíma að ræða. Heggur þó víðast í hana og hægt að spyrja hvernig þetta verður eftir önnur 20 ár. Sumar sjávarstrendur verða jafnvel óþekkjanlegar og fleiri byggðir sem liggja lágt í meiri hættu en nú er og erfiðara verður að verja þær. Sést það vel á Sauðár- króki þar sem himinhár sjávarvarnargarður er kominn fram með byggðinni, eins heillandi og hann er eða hitt þó heldur. Ef fram heldur sem horfir er ólíklegt að hann muni duga til langrar framtíðar og reyndar öruggt að hann gerir það ekki. Þrátt fyrir hækkun sjávarmáls eru samt sem áður enn skipulögð mannvirki nánast út í sjó sem leiðir bara til aukinna sjávarvarna í komandi framtíð. Er það skynsamlegt? Hjalti Þórðarson landfræðingur Hækkun sjávarborðs – verulegt áhyggjuefni AÐSENT | Lionsklúbburinn Björk skrifar Lionsklúbburinn Björk á Sauðárkróki hittist lítið sem ekkert síðasta vetur en hefur náð að hittast þrisvar sinnum það sem af er þessum vetri. Fundirnir hafa verið haldnir í Gránu og þar höfum við notið gestrisni og góðra veitinga og þökkum við fyrir það. Við fengum Önnu Blöndal umdæmisstjóra til okkar á einum fundinum og sagði hún frá markmiðum sínum og ýmsum verkefnum sem eru í gangi í hreyfingunni. Anna heiðraði þrjár konur fyrir 15 ára starf í þágu Lions en það eru Andrea Björns- dóttir, Stefanía Ó. Stefánsdóttir og Svava Svavarsdóttir. Mar- grét Guðmundsdóttir fékk sérstaka viðurkenningu fyrir góð störf sem svæðisstjóri við erfiðar aðstæður veturinn 2020-2021. Þar sem þessi fundur var haldinn í október var að sjálfsögðu bleikt þema og sáu Brynja Ingimundar- dóttir og Kristín Sveinsdóttir um að skreyta salinn með fallegum bleikum skreyting- um og fékk hver kona fallega náttúrusápu sem seld er til styrktar krabb.is. Sigurbjörg Guðjónsdóttir og Anna Gísladóttir fóru í 2. bekk í Árskóla í október og afhentu litabækur um bruna- varnir í heimahúsum. Með þeim var Sigurður Bjarni Rafnsson frá Brunavörnum Skagafjarðar en þetta sam- starfsverkefni hefur verið í gangi í mörg ár. Í byrjun desember var haldinn makalaus jólafundur. Í stað pakkaskipta gekk baukur og settu konur frjáls framlög í hann. Verður ágóðanum veitt í verðugt málefni. Maturinn var ein- staklega góður og eftir hann stigu Svavar Knútur og Aldís Fjóla á stokk og skemmtu okkur við góðar undirtektir. Fyrir jólin hefur klúbburinn styrkt eina eða fleiri fjöl- skyldur í samráði við sóknar- prestinn og nú var ákveðið að 120.000 krónur færu til barnmargrar fjölskyldu sem átti um sárt að binda. Íbúar á Dvalarheimili Heilbrigðis- stofnunnar Norðurlands á Sauðárkróki fengu einnig glaðning því keypt var streymi á jólatónleika Björgvins á all- ar sex setustofurnar. Auk þess fengu allir sem vildu sherry og Nóa-konfekt. Með því lauk árinu og við höldum keikar inn í 2022. Lionsklúbburinn Björk Starfið árið 2021 Bleikur fundur Bjarkanna í október. MYNDIR AÐSENDAR Kátar konur á makalausum jólafundi. Andlát Bjarni Har látinn Kaupmaðurinn Bjarni Haraldsson á Sauðárkróki lést aðfaranótt síðasta mánudags á 92. aldursári, en hann hafði dvalið á HSN á Sauðárkróki síðustu misseri. Bjarni var sæmdur heiðursborgara- nafnbót í Sveitarfélaginu Skagafirði árið 2019 er haldið var upp á 100 ára afmæli Verslunar Haraldar Júlíussonar, sem kennd er við föður hans. Aðeins tveir ættliðir hafa rekið verslunina þau rúmu 100 ár sem hún hefur verið starfrækt en Haraldur, faðir Bjarna, setti hana á laggirnar árið 1919. Bjarni fagnaði 90 ára afmæli sínu í skugga Covid þann 19. mars árið 2020 en stefndi á að slá upp veislu fyrir bæjarbúa sem var frestað fram í ágúst sama ár en út af Covid- ástandinu þurfti að slá henni Bjarni Har kátur á atvinnulífssýningu vorið 2018. MYND: ÓAB aftur á frest sem varð til þess að hún var aldrei haldin. Bjarni var tvíkvæntur, en fyrri kona hans var María Guðvarðardóttir og áttu þau saman dæturnar Guðrúnu og Helgu. Þau skildu 1960. Eftir- lifandi eiginkona Bjarna er Ásdís Kristjánsdóttir og saman áttu þau soninn Lárus Inga. Feykir sendir aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. /PF 4 03/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.