Feykir


Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 8

Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 8
Sitthvað um sameiningu sveitarfélaga ÁSKORANDAPENNINN | palli@feykir.is Það styttist í það að við sem búum í Húnavatnshreppi og Blönduósbæ fáum að kjósa um sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga. Ég hef beðið lengi eftir þessum degi og var í raun svo bjartsýnn að halda að við myndum vera búin að sameinast fyrir mörgum árum. Ég sé mjög marga stóra kosti við að sameina þessi tvö sveitarfélög og það er vert að nefna að Blönduós getur ekki án sveitarinnar verið og sveitin ekki án Blönduóss verið og sem ein heild erum við öflugri á flestum sviðum. Hvað er það sem við viljum fá út úr þessari sameiningu? Ég á þrjú börn á grunnskólaaldri og út frá þeim hugsa ég þetta mest, þarna er lagður grunnur að lífi okkar framtíðarfólks. Félagsskapur, samvera, vinir, tómstundir, kunningsskapur og góð menntun er það sem máli skiptir. Að krakkarnir fái að umgangast og vera með hópi af jafnöldrum sínum, þau tengjast böndum sem sum lifa með alla ævi og rækta samband sín á milli. Þau læra og fá að nota félagsfærni sína þegar kominn er saman hópur ungs og efnilegs fólks á sama aldri. Það að búa í sveit eru forréttindi, mikil forréttindi, en því fylgir líka að krakkar eru töluvert einangraðir heima utan skólatíma, þú röltir ekki yfir næsta hús og kíkir til vina þinna. Því er svo mikilvægt að krakkar hafi tækifæri til að njóta þessa tíma meðan á skóla stendur og í tómstundum. Hér í Húnavatnshreppi hefur börnum fækkað mikið svo fá börn eru eftir í skólanum. Það hamlar þeim félagslega og einangrar þau einnig í skólanum, ekki bara heima fyrir, þau eru í lítilli dásamlegri kúlu sem er frábær að mörgu leyti. Með sameiningu sveitarfélaga verða skólarnir sameinaðir og einn nýr skóli sameinaðs sveitarfélags verður til, þar fá krakkarnir tækifæri til að þroskast félagslega, hafa fleiri jafnaldra, kynnast fleiri krökkum og vinahópurinn stækkar sem síðan fylgir þeim áfram þegar í framhaldsskóla kemur og jafnvel áfram út lífið. Þeir geta tekið þátt í ýmsum tómstundum og stundað flestar þær íþróttir sem hugurinn girnist. Því segi ég já þegar við göngum til kosninga um sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga fyrir framtíðina, fyrir krakkana. - Ég skora á Jón Örn Stefánsson að taka við pennanum. Ólafur Magnússon Sveinsstöðum Ólafur ásamt konu sinni Ingu Sóleyju Jónsdóttur MYND AÐSEND Í kjallaranum karlinn var og kvíða í sínum huga bar, um bú hans fjendur fóru. Þar uggur mikill sat í sál, hann sá ei lengur góð sín mál, því neyðin tók á tóru. Þar var hann orðinn varnarlaus og vissulega annað kaus en standa í stöðu nauða. Og Gissur ekki góður var því grálynd hugsun réði þar, hann þekkti það á kauða. Svo komu þeir í kjallarann og karlinn þegar á sér fann að enginn fékkst þar friður. Þeir hlustuðu ekki á hann neitt og engin grið þar fengust veitt, þeir hjuggu hann hiklaust niður. En klárt er það að karlinn sá í krafti sinna verka á það afl sem enginn heggur. Hann lifir þar um ár og öld og á við gleymsku varnarskjöld sem ver hann eins og veggur. AÐSENT | Rúnar Kristjánsson Karl í kjallara Kristín Sigurrós Einars- dóttir hefur víða komið við síðan hún flutti í Skagafjörðinn fyrir ein- hverjum árum – meira að segja unnið á Feyki. Nú býr hún á Hofsósi en á ættir að reka í Lundar- reykjadalinn í Borgarfirði. Árinu lýsir hún með eftirfarandi b-orðum: „Breytingar, bjartsýni og bugun.“ Stína skipti um starfsvett- vang í haust, lagði safn- vörðinn á hilluna og hélt heim að Hólum þar sem hún starfar sem þjónustufulltrúi við Háskólann og í afleysingum á kennsluskrif- stofu þar. „Auk þess eiginkona, móðir, amma og rek fyrirtækið Söguskjóðuna sem sérhæfir sig í leiðsögn á Norðurlandi vestra,“ segir hún og misnotar aðstöðu sína til að plögga dulítið í lok árs. Stína er hrútur í skóm númer rúmlega 42. Hver er maður ársins? Eiginmaðurinn sem lét það eftir mér að kaupa draumahúsið á miðjum aldri. Hver var uppgötvun ársins? Náttúrufegurðin í Kelduhverfi. Hvert var lag ársins? Desember lagið hans Binna Rögnvalds, flutt af frábærri tengdadóttur. Hvað var broslegast á árinu? Samverustund okkar systkina og mömmu í Lundarreykjadal í haust. Held ég hafi hlegið mest á árinu þá helgi. Hvers heldurðu að þú eigir eftir að sakna frá árinu 2021 – eða ekki? Á eftir að sakna yngsta sonarins sem verður í fyrsta sinn ekki heima á aðfangadagskvöld. Á ekki eftir að sakna þess að standa í flutningum. Varp ársins? Hlaðvarp Héraðsskjalasafnsins. Hverju viltu skella á brennuna og hvers vegna? Öllu sem ég þarf ekki að nota úr geymslunni. Vegna þess að ég á ennþá of mikið af dóti þrátt fyrir umfangsmikla grisjun við síðustu flutninga. Hver var helsta lexía ársins? Get ekki gert upp á milli Svo lengi lærir sem lifir og Fátt er svo með öllu illt, að eigi boði nokkuð gott. /ÓAB Árið 2021 | Kristín Sigurrós Á ekki eftir að sakna þess að standa í flutningum Stína spókar sig í Kelduhverfinu. MYND AÐSEND Háskólinn á Hólum Laust embætti rektors á Hólum Á vef Stjórnarráðsins má sjá að embætti rektors við Háskólann á Hólum er laust til umsóknar. Leitað er að framsýnum og metnaðar- fullum leiðtoga í krefjandi og fjölbreytt starf rektors. Erla Björk Örnólfsdóttir hefur gegnt starfi rektors við Háskólann á Hólum en hún var ráðin í starfið í febrúar 2012 af þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, og hefur því senn gegnt stöðunni í tíu ár. Erla Björk hafði áður starfað sem forstöðumaður Varar – Sjávarrannsóknarseturs í Ólafsvík. Gert er ráð fyrir að ráð- herra háskólamála skipi í embætti rektors til fimm ára frá og með 1. júní 2022 skv. tilnefningu háskólaráðs. Há- skólaráð tilnefnir valnefnd sem metur hæfi umsækjenda. Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2022. Sjá má nánari upplýsingar á vef Stjórnar- ráðsins. /ÓABFrá Hólum. MYND: HINIR SÖMU 8 03/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.