Feykir


Feykir - 14.09.2022, Side 11

Feykir - 14.09.2022, Side 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Úr-súla. Sudoku Krossgáta Vísnagátur Sveins Víkings. Finna skal út eitt kvenmannsnafn. Ótrúlegt – en kannski satt... Munaðarleysingjahæli eru víða um heiminn og ógjörningur að kasta tölu á þau öll en þar eiga mörg börn skjól þó vissulega séu brotalamir á því eins og öðru. Sem dæmi voru um 1400 munaðarleysingjahæli í Rússlandi árið 2004 og í byrjun árs 2007 voru 748 þúsund munaðarlaus börn þar í landi. Árið 1912 hélt munaðarleysingjahæli í París hlutaveltu til þess að safna peningum og ótrúlegt, en kannski satt, þá voru aðalverðlaunin munaðarlaus börn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Sumarblóðin smakkast vel. FEYKIFÍN AFÞREYING F Feykir spyr... Hvert er uppá- halds dýrið þitt og af hverju? Spurt á Facebook UMSJÓN: klara@nyprent.is „Hundur því hann er traustur vinur.“ Helga Eyjólfsdóttir „Hundur, tryggur félagi.“ Stefán Héðinsson „Hundur, held það sé því ég er alin upp með hund á heimilinu.“ Júlíana Alda Óskarsdóttir „Hundar, ekki spurning, vegna tryggðar og félagsskapar.“ Rögnvaldur Ingi Ólafsson AÐALRÉTTUR Blómkálssúpa 1 stk blómkálshaus 1 hænsnatengingur 1 uxateningur 2 grænmetisteningar lint smjör/smjörvi hveiti 1 l mjólk ½ matreiðslurjómi hunang Aðferð: Fyrst byrjar maður á að sjóða blómkálshausinn. Í annan pott er settur u.þ.b. 1 lítri af vatni með öllum súputeningunum. Þá er blandað saman í skál linu smjöri/smjörva við hveiti sem á að mynda hnefastóra smjörbollu sem er sett út í sjóðandi vatnið, hrært saman, hitinn lækkaður niður. Þá er u.þ.b. 1 lítra af mjólk bætt út og rúmlega hálfum matreiðslurjóma og pínu hun- angi. Að lokum er svo soðna blómkálinu bætt út í súpuna. Með þessu er svo tilvalið að bera fram nýbakað baguette brauði. MEÐLÆTI Baguette brauð 4 bollar hveiti 2 tsk. salt 2 msk. hunang 1 bréf þurrger eða 1 og ½ matskeið 1½ bolli af volgu vatni Aðferð: Ger og hunang er sett saman í skál og hálfum bolla af volgu vatni hellt yfir. Látið standa í 5 mínútur þar til það er byrjað að freyða og orðið eins og þykkt lag ofan á blöndunni. Því næst er hveiti og salt sett saman í skál og kveikt á hrærivélinni. Gerblöndunni er hellt smám saman út í. Ef þið eruð ekki með hrærivél þá hellið þið örlítið í einu af blöndunni út í hveitið. Næst er allt að einum bolla af volgu vatni bætt við deigið smátt og smátt, meðan hnoðarinn hnoðar. Ef deigið verður of blautt bætið þá við hveiti. Þegar deigið er búið að hringa sig í eina kúlu í kringum hnoðarann þá er það tilbúið. Látið hefast í skál með stykki yfir í 30 mínútur. Þegar þetta er búið að hefast er hveiti sett á borð eða bretti, og deigið hnoðað í kúlu, því næst er því skipt í tvennt og smá hveiti sáldrað yfir deigið og á kökukeflið. Fletjið hvern part út í 1-1,5 sm þykkan sívalning eða ferning og rúllið svo deiginu upp eins og þið væruð að gera kanilsnúða. Síðast er svo endinn togaður yfir og brettur undir sitt hvorn endann. Skerið næst ræmur eða mynstur í brauðið og byrjið að hita ofninn á 210°C. Leyfið því svo að hefa sig aftur í 10-20 mínútur undir stykki. Þegar brauðið er búið að hefa sig á ný er gott að sprauta á það vatni, rétt áður en það fer í ofninn, til að fá stökka skorpu. Setjið að lokum klaka í bök- unarskúffu og setjið í botninn á ofninum. Bakið svo brauðið á grind með smjörpappír í 15 til 20 mínútur eða þar til það er komin gullin skorpa á það Uppskriftin tekin af paz.is Verði ykkur að góðu! Kristín skorar á mágkonu sína Auðbjörgu Ósk Guðjónsdóttir og hennar mann Guðberg Haralds- son. Ljúffeng blómkálssúpa með baguette Matgæðingur vikunnar er Kristín Rós Blöndal Unnsteinsdóttir en hún er búsett í Tunguhlíð í Lýdó og vinnur á leikskólanum Birkihlíð sem er í Varmahlíð. Kristín er í sambúð með Guðjóni Ólafi Guðjónssyni og ætlar hún að bjóða upp á haustlegar máltíðir fyrir komandi haust. „Ég er aðeins að vinna með slump og slatta í súpuuppskriftunni og það er um að gera að prufa sig áfram.“ ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is Kristín Rós Blöndal Unnsteinsdóttir Tunguhlíð Guðjón Ólafur og Kristín Rós. MYND AÐSEND Tilvitnun vikunnar Hvar þú byrjar er ekki eins mikilvægt og hvar þú endar. – Zig Ziglar 34/2022 11 Vísnagátur Sveins Víkings Vant nafn er við að glíma sem vísar á réttan tíma. Á útskerjum á hún heima en oft má um loftið sveima.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.