Nýja skákblaðið - 01.02.1941, Síða 3
NtJA SKRKBLRÐIÐ
2. Árgangur. Reykjavík, marz 1941 1. tölublað.
AVARP
til íslenzkra skákmanna.
Um leið og Nýja Skákblaðið
byrjar annan árgang sinn,
sendi ég því mínar beztu þakk-
ir og árnaðaróskir. Flestum eða
öllum skákmönnum hér á landi
hefir lengi verið það ljóst, að
gott skákblað á íslenzku væri
tvímælalaust bezti tengiliður-
inn milli hinna mörgu skákiðk-
enda víðs vegar um landið, auk
þess sem það hlyti að auka að
miklum mun skákiðkun í land-
inu og hjálpa mönnum til að
öðlast meiri og víðtækari þekk-
ingu á þeim ótæmandi dásemd-
um, sem skáklistin hefir að
bjóða iðkendum sínum.
Nýja Skákblaðið hefir nú
komið út í eitt ár, og annar ár-
gangur þess er nú að hefja
göngu sína. Ritstjórarnir, sem
jafnframt eru útgefendur, hafa
á þessu tímabili sýnt einstakan
dugnað' og áhuga í þágu ís-
lenzkra skákmála, með því að
leggja á sig alla þá miklu fyr-
irhöfn, sem það hefir í för með
sér að koma út slíku sérfræði-
blaði, sem skákblað er. Þeim,
sem eitthvað þekkja til slíkra
starfa, vita hve mikil sú fyrir-
höfn er að koma á prent skák-
blaði, og er vert að minnast
þess í því sambandi, að á síð-
ustu 40 árum hefir ekki sjaldn-
ar en fjórum sinnum áður ver-
ið hafin útgáfa á skákblaði á ís-
lenzku, en í öll þau fjögur
skipti lagðist útgáfan niður eft-
ir tiltölulega stuttan tíma, og
að því er bezt verður vitað ekki
vegna þess, að ekki væri þörf
fyrir slíkt blað hér á landi,
heldur miklu fremur fyrir það,
að slík blaðaútgáfa krafðist
meiri tómstundastarfa en þeir
fáu menn gátu lagt fram endur-
gjaldslaust, sem til þess voru
hæfir.
Útgáfa Nýja Skákblaðsins
hefir gengið það vel þetta
fyrsta starfsár, að ekkert virð-
ist benda til þess að truflun
verði á útgáfu þess eftirleiðis.