Nýja skákblaðið - 01.02.1941, Page 4
Því miður er það þó svo, að mik
ið vantar enn á að blaðið sé í
höndum allra þeirra mörgu
manna, sem skák iðka hér á
landi. Virðist þó einsætt að
þetta eina íslenzka skákblað
þurfi að vera á hverju því
heimili hér á landi, þar sem til
er taflborð og taflmenn, eink-
um og sér í lagi þegar þess er
gætt, að nú eru erlend skák-
tímarit tæpast fáanleg hér á
landi. Fjöldi tölublaða, stærð
þeirra og efnismagn allt hlýtur
þó að sjálfsögðu að miðast
nokkuð við kaupendafjölda,
með því að ekki þykir fært að
hafa áskriftarverðið hátt. Kostn
aður allur við blaðaútgáfu hef-
ir aukizt stórlega, og er það
því nauðsynlegt að sem allra
flestir íslenzkir skákmenn
kaupi Nýja Skákblaðið, svo að
hægt verði að auka við efni
það, sem blaðið flytur, og bæta
það að öðru leyti eftir því, sem
efni standa til.
íslenzkir skákmenn hafa
margoft sýnt það, að þeir ekki
standa að baki skákmönnum
annarra þjóða, nema síður sé,
ef miðað er við fólksfjölda í
landinu og önnur skilyrði, sem
þeir hafa við að búa. Þjóðin
hefir lært að meta þetta að
verðleikum, og er þaklát öllum
þeim, sem lagt hafa og leggja
NÝJA SKÁKBLAÐIÐ
NÝJA SKA KBLAÐID
Ritstjórar:
Óli Valdimarsson
og
Sturla Pétursson.
Kemur út 5 sinnum á ári, 16
síður í hvert sinn. Verð kr. 7,00
árg. Gjalddagi 1. júlí.
Utanáskrift blaðsins er: Nýja
Skákblaðið. Pósthólf 232. Rvk.
Blaðið er opinbert málgagn
Skáksambands íslands.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
nú hÖnd á plóginn til að hefja
skákiðkun íslendinga til enn
meiri frama, og útbreiða skák-
iðkun meðal landsmanna svo
sem mest má verða. Stórt og
gott íslenzkt skákblað getur á-
orkað meiru í því efni en flest
eða allt annað, og er það von
mín að allir hinir mörgu unn-
endur skáklistarinnar hér á
landi taki höndum saman um
útbreiðslu og eflingu slíks
blaðs í öllum byggðum lands-
ins.
Elís O. Guðmundsson.
2