Nýja skákblaðið - 01.02.1941, Blaðsíða 11
Dr. Emanuel Lasker
látinn.
Sr^mma á þessu ári lézt í
New York ein af skákstjörnum
heimsins, Dr. Emanuel Lasker.
Dr. Lasker fæddist í Berlín 24.
desember 1868. Það er sagt að
bróðir hans, Dr. Berthdld Las-
ker, hafi kennt honum mann-
ganginn, þegar Emanuel var
tólf ára. Dr. Berthold var einn-
ig góður skákmaður. 1889 vinn-
ur Dr. Lasker sinn fyrsta sigur
í Berlín. Mánuði seinna vinnur
hann aðalskákmót Þýzkalands
í Breslau. Síðar á sama ári tek-
ur hann þátt í sínu fyrsta al-
þjóða kappskákmóti í Amster-
dam og verður nr. 2, Bird nr.
1. Árið eftir teflir hann bæði í
Berlín og Graz, en nær þó ekki
fyrsta sæti.
Árið 1892 vinnur Lasker ann-
an stórsigur í Berlín, þar sem
þeir voru með meðal annarra,
Bird, Blackburne, Gunsbery og
Mason. Árið eftir vinunr hann
glæsilegan sigur í New York,
sem verður til þess að hann fær
rétt til að tefla um heimsmeist-
aratignina við Steinitz, sem
hann vinnur all léttilega og þó
vinnur hann Steinitz enn betur
1896—7 í skákeinvígi.
Hér fer á eftir tafla, er sýnir
allar helztu útkomur Dr. Em-
anúels Laskers á árunum 1889
—1914, bæði í skákmótum og
skákeinvígum:
Skákmót Dr. Laskers frá 1889— -1914.
Ár Röð Teflt Unnið Tapað Jafntefli
1889 Amsterdam 2 8 5 1 2
1890 Graz 2 6 3 3
1892 London 1 11 8 1 2
1892 London 1 8 5 3
1893 New York 1 13 13
1895 Hastings 3 21 14 4 3
1895—6 Pétursborg 1 18 8 3 7
1896 Nuremberg 1 18 12 3 3
1899 London 1 28 20 1 7
1900 París 1 18 14 1 3
1904 Cambridge 2—3 15 9 2 4
1909 Pétursborg 1—2 '18 13 2 3
1914 Pétursborg 1 18 10 1 7
Alls 200 134 19 47
9
NÝJA SKÁKBLAÐIÐ