FLE fréttir - 01.01.2009, Blaðsíða 11

FLE fréttir - 01.01.2009, Blaðsíða 11
Efni frá aðalfundi FLE 2008 Aðalfundur Félags löggiltra endurskoðenda var haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 14. nóvember 2008. Fundargerð aðalfundar er að finna á heimasíðu FLE www.fle.is. Þar er einnig að finna nýjar samþykktir félagsins sem samþykktar voru á aðalfundinum. Nýjar si&areglur FLE Guðmundur Snorrason formaður siðanefndar FLE gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar á síð- asta starfsári. Meginverkefnið er að innleiða nýjar siðareglur í samræmi við lög um endurskoðendur. Lá fyrir að þessar reglur myndu byggja á gildandi siða- reglum IFAC frá júní 2005. Töluvert mikið verk er að þýða skilgreiningar og hugtök sem koma fram í öllum köflum reglanna. Löggiltur skjala- þýðandi þýddi reglurnar í heild sinni og var því lokið í september 2007 en þrátt fyrir að það hafi verið nokkuð góð þýðing þá hefur samt þurft að leiðrétta og breyta nærri hverri einustu setn- ingu. Eftir að vinnan var hafin var Ijóst að veru- legar breytingar yrði á gildandi reglum IFAC og þá sérstaklega varðandi óhæði. Einnig breyt- ingar á skilgreiningu er varðar einingar tengd- ar almannahagsmunum, útskiptingu endurskoð- enda (7 ára reglan), reglur varðandi heimildir til að veita aðra þjónustu jafnframt endurskoðun og leiðbeiningar varðandi þóknanir endurskoð- enda. Þegar Ijóst var að þetta viðamiklar breyt- ingar væru í sjónmáli þá ákvað nef ndin að hægja á vinnu sinni til að geta tekið þær inní nýjar siða- reglur FLE. Reiknað var með að nýjar reglur kæmu í ársbyrjun 2008 sem þær gerðu, en þær hafa enn ekki verið birtar eða gefnar út. I maí 2008 komu fram frekari tillögur að breytingum hjá IFAC varðandi innra eftirlit og þegar tekjur af einstökum viðskiptavinum færu yfir 15%. I júlí 2008 komu fram tillögur að nýjum heildarreglum og lauk umsagnarfresti í október 2008. Gert er ráð fyrir að þessar reglur verði gefnar út um mitt ár 2009. Nýju reglurnar fela í sér verulegar orða- lagsbreytingar og eru núna komnar upp í 209 blaðsíður. Miðað við þessa stöðu að það liggur Nýjar tillögur aS skipulagi og starfsemi FLE I Ijósi nýrra og nokkuð breyttra laga um endur- skoðendur sem m.a. hafa bein áhrif á starfsemi FLE ákvað stjórn félagsins að leggja út í það verkefni að fara yfir starfsemi og skipulag félags- ins. Ákveðið var strax í upphafi að nálgast verk- efnið ekki einvörðungu út frá hinum nýju lögum heldur skoða starfsemina í heild sinni með það að leiðarljósi að tryggja að félagið sinnti þeirri Þjónustu sem félagsmenn þurfa og vilja fá. Nú er Það ekki svo að félagið hafi ekki þjónað félags- mönnum dyggilega í gegn um árin en umhverf- ið breytist og þarfirnar með og nauðsynlegt að félagið fylgi þeirri þróun öllum félagsmönnum til hagsbóta. Félagið réði Jón Garðar Hreiðarsson ráðgjafa til að aðstoða við vinnuna. Breytingar eru gerðar með nýjum lögum sem hafa bein áhrif á FLE. Sú grundvallarbreyting felst í lögunum að öllum endurskoðendum með gild rétt- indi er nú skylt að vera félagsmenn í FLE og jafn- hliða lagðar ýmsar skyldur á félagið. Þessi breyt- ing ein og sér kallar á ítarlega skoðun á skipulagi félagsins. Síðan fór Margret yfir lögformleg hlut- verk félagsins samkvæmt nýju lögunum. Ákveðið var að nálgast verkefnið út frá þörf- um félagsmanna og var þá fyrst hugað að því hverjir væru félagsmenn FLE. Fljótt var Ijóst að innan félagins eru hópar sem hafa þörf fyrir mis- munandi þjónustu af hálfu félagsins og þá ekki síst með tilliti til endurmenntunar. Félagsmönn- um má skipta í nokkra hópa. Guðmundur Snorrason formaður siða- nefndar FLE fyrir að verulegar breytingar eru í vændum þarf að taka afstöðu til hvort miða á við gömlu regl- urnar og klára málið tiltölulega snöggt eða að taka upp væntanlegar nýjar reglur IFAC þó það þýði að siðareglur FLE dragist aðeins á langinn. Þó Siðanefndinni þyki slæmt að þurfa að fresta útgáfu siðareglna, þá sé það praktískara að bíða og gefa út reglur sem verði ekki úreltar innan nokkurra mánaða. Siðanefndin óskar eftir að stjórn FLE taki afstöðu til þessa máls. Margret G. Flóvenz kynnir nýjar tillögur að skipulagi og starfsemi FLE. • Alþjóðlegar stofur 136 félagar - 40% • Minni stofur 68 félagar-20% • Alls 60% starfandi • Utan stofa 95 félagar - 28% • Erlendis 9 félagar — 3% • Alls í öðrum störfum 31% • Hættir 30 félagar — 9% • Samtals 338 félagar FLE j/uUtiA janúar 2009 • 11

x

FLE fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.