FLE fréttir - 01.01.2009, Side 13
slíks kæmi að hafa um það samráð við þá aðila
sem við hugsanlega vildum kalla til samstarfs.
Hópurinn taldi samræmingu á ýmsum vinnu-
brögðum, mikilvæga meðal félagsmanna ekki
síst í endurskoðuninni og að félagið hefði hlut-
verki að gegna í því sambandi. Þá lagði hópurinn
til að siðanefndin yrði varanleg og að sérstak-
lega yrði tekið á kynningarstarfi út á við svo sem
með útvíkkuðu hlutverki ritnefndar. I tillögum til
breytinga á samþykktum sem lagðar verða fyrir
fundinn hér á eftir er lagt til að siðanefnd verði
gerð að einni af fastanefndum félagsins og að
nafni ritnefndar verði breytt og hlutverk henn-
ar aukið þannig að það taki einnig til kynningar-
mála.
Síðasti hópurinn fjallaði ekki um ákveðinn
þátt í starfsemi félagsins heldur um þjónustu
þess út frá mismunandi þörfum félagsmanna.
Hópurinn nefndi sem eitt af því sem væri í góðu
lagi að við værum með eitt félag fyrir alla endur-
skoðendur. Þá benti hópurinn á nauðsyn þess
að fjölga stöðugildum hjá félaginu m.a. vegna
aukinna verkefna. Einnig var bent á að mik-
ilvægt er að sjónarmið „allra hópa" komi fram í
nefndarstarfi félagsins og þá ekki síst í mennt-
unarnefnd. Hópurinn taldi þó ekki ástæðu til að
deildaskipta félaginu.
Stefnumótunarvinnu félagsins er engan veg-
inn lokið þó að búið sá að skerpa á meginlín-
um. Stefnt er að því að FLE verði áfram félag
allra endurskoðenda hvort sem þeir hafa lagt
inn réttindi sín eða ekki. Sú menntun og reynsla
sem býr að baki þegar menn hafa einu sinni hlot-
ið löggildingu sem endurskoðendur er bæði sér-
stök og verðmæt.
( þeim tillögum á breytingum sem liggja fyrir
á samþykktum félagsins þá er ekki gert ráð fyrir
að breyting verði gerð á því fyrir hverja félagið
er, né hverjir eigi þar rétt til félagsaðildar. Nafn
félagsins breytir þar engu um.
Þjónusta sem félagsmenn þurfa og vilja fá er
forgangsverkefni og er brýnt að taka þar mið
af mismunandi þörfum ekki síst hvað varðar
endurmenntun.
Faglegt hlutverk félagsins er sem fyrr einn af
hornsteinum þess. Félagið þarf að þróast með
starfsumhverfi okkar og auk þess er brýnt að
saga þess, hefðir og gildi séu varðveitt.
í Ijósi lögboðins hlutverks FLE og þeirra óska
sem félagsmenn hafa um þjónustu, er Ijóst að
auka þarf starfsemi félagsins. Þá hefur það ver-
ið rætt að ýmis verkefni stjórnar félagsins megi
flytja til framkvæmdastjóra. Tveir starfsmenn
eru hjá FLE og eru báðir í 60% starfi. Allt til
1. febrúar 2005 var einungis einn starfsmaður
hjá félaginu, þegar ráðinn var faglegur fram-
kvæmdarstjóri í 60% starf. Með þeirri ráðn-
& maturinn ekki að koma?
FLE janúar 2009 »13