FLE fréttir - 01.01.2009, Side 15

FLE fréttir - 01.01.2009, Side 15
Fyrrum formenn FLE þeir Rúnar Bjarni Jóhannesson og Geir Geirsson. slíkan vanda og áhrif þess sem það gæti haft á alþjóðlega fjármálamarkaði. Takmörkun á ábyrgð endurskoðanda er þó hvorki ætlað að ná til tjóns sem hefur orðið vegna ásetnings endurskoðanda, né að slík tak- mörkun komi ekki í veg fyrir að sá sem hefur orð- ið fyrir tjóni fái sanngjarnar bætur. Af þessum ástæðum hefur ESB sett fram til- mæli til aðildarríkjanna um að skaðabótaá- byrgð endurskoðenda skráðra fyrirtækja verði takmörkuð. Helstu atriði í tilmælunum: Hámark bótaskyldu Hámark bótaskyldu miðist við einhverja fasta fjárhæð, eða sé ákvarðað með einhverri tiltek- inni formúlu, þ.e. geturverið breytileg eftir stærð fyrirtækja eða umfangi endurskoðunarinnar. Hlutfallsleg skaðabótaskylda - ekki ótak- mörkuð ábyrgð með öðrum aðilum máls Endurskoðandi verði einungis krafinn bóta með tilliti til þess þáttar sem hann átti í tjóni fyrirtækis, en beri ekki óskipta ábyrð á heildar- tjóninu með öðrum aðilum máls. Samningsatriði Hámark bóta getur verið samningsatriði milli endurskoðanda og viðkomandi félags í þeim nkjum sem heimila einungis lögsókn af hálfu fyrirtækis gegn endurskoðanda, en ekki ein- stakra hluthafa eða þriðja aðila. Slíkur samn- ingur þarf að hljóta samþykki stjórnenda fyrir- tækis og eftirlitsaðila (endurskoðunarnefnd- ar). Einnig þarf samþykki hluthafafundar og að samningsins sé síðan getið í skýringum við árs- reikninginn. Niðurfelling á endurskoðunarskyldu minni félaga í dag eru öllum félögum samkvæmt ársreikn- mgalögum skylt að láta endurskoða ársreikninga sina, en félög sem ekki fara fram úr tvennum af eftirfarandi stærðarmörkum tvö ár í röð geta í stað endurskoðenda kosið skoðunarmann til að endurskoða ársreikning: * eignirnema 120.000.000 kr., * rekstrartekjur nema 240.000.000 kr., * fjöldi ársverka á reikningsári er 50. I nýjum lögum um endurskoðendur er tekið fram að engir nema endurskoðendur megi endur- skoða ársreikninga sé endurskoðun félaga lög- boðin. Því þarf að breyta ársreikningalögunum að minnsta kosti þannig að ákvæði um end- urskoðun skoðunarmanna verði felld niður. Auk þess þarf að fjalla um það hversu víðtæk endur- skoðunarskyldan eigi að vera gagnvart minni félögum og setja einhver mörk eða viðmiðun að því leyti, ef ekki er vilji til að viðhalda endur- skoðunarskyldunni gagnvart öllum félögum eins og núverandi ákvæði í lögunum gerir ráð fyrir. Ef áðurnefnd stærðarmörk í ársreikningalögum verða notuð áfram og endurskoðunarskyldan í þeim felld niður myndi sú ráðstöfun ná til yfir 90% allra skattskyldra félaga samkvæmt upp- lýsingum frá ríkisskattstjóra. Á hinum Norðurlöndunum hafa Danir og Finn- ar sett frekar lág stærðarmörk gagnvart félögum sem undanþegin eru endurskoðunarskyldu, hjá Dönum er miðað við veltu um 3 milljónir DKK, eignum um 1,5 milljónir DKK og 12 starfsmenn. Finnar hafa svipuð lágmörk. Svíar virðast hins vegar stefna á talsvert hærri mörk, en Norðmenn vilja viðhalda óbreyttri endurskoðunarskyldu. Æskilegt er að félagsmenn ræði um slík stærð- armörk og komi skoðunum sínum á framfæri við stjórn félagsins, en nefnd á vegum Fjármálaráðu- neytisins er einmitt nú að störfum og er henni ætlað að setja fram tillögur sem snúa að endur- skoðunarþættinum í ársreikningalögunum. „An Audit is an Audit" I tengslum við umræðu um endurskoðunar- skyldu minni félaga, hefur mikil umræða farið fram um endurskoðun þessara fyrirtækja með hliðsjón af kröfum um beitingu alþjóðlegra endur- skoðunarstaðla jafnt á þessi félög sem stærri fé- lög. Margir hafa haldið fram að erfiðleikum sé háð að endurskoða minni fyrirtæki í samræmi við slíka staðla og það muni hafa í för með sér verulega aukinn kostnað fyrir þessi fyrirtæki. Því hafa verið settar fram tillögur um að útbúa nýja staðla sem eigi sérstaklega við endurskoð- un minni fyrirtækja, svokallaðra „Audit light" staðla. Alþjóðasamband endurskoðenda, IFAC, nefur sett sig á móti slíkum hugmyndum og haldið fast við að endurskoðun sé endurskoðun, og eigi sem slík að veita sömu tryggingu gagn- vart reikningsskilum allra fyrirtækja, óháð stærð þeirra. Lét IFAC af þessu tilefni útbúa leiðbein- ingabækling um hvernig beita megi ISA stöðlum við endurskoðun minni fyrirtækja. Sumum þykir þessi leið einnig langsótt, enda er bæklingurinn samtals um 400 blaðsíður að stærð. Þennan bækling má nálgast á heimasíður IFAC. I tengslum við þessa umræðu hefur komið fram að í mörgum löndum, m.a. á hinum Norður- löndunum, sé tilhneiging löggjafans að létta endurskoðunarskyldunni af minni félögum í samræmi við stefnumörkun um að einfalda lagaramma og skyldur minni félaga til að gera þau samkeppnishæfari á alþjóðlegum markaði. FLE fyiétUA jariúar 2009 »15

x

FLE fréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.