FLE fréttir - 01.01.2009, Side 21
HaustráSstefna FLE
Haustráðstefna félagsins var haldin 14. nóv-
ember síðastliðinn. Nefndarmenn höfðu lagt
áherslu á að drög að dagskrá ráðstefnunnar
yrði tilbúin fyrir sumarleyfi. Þar sem hlutabréf
og hlutabréfamarkaður hafði verið og var mikið
i umræðu manna á meðal var ákveðið að ráð-
stefnan yrði tileinkuð því málefni með yfirskrift-
inni „Hlutabréfamarkaðurinn". Okkur hafði tek-
ist að fá fyrirlesara í nánast öll málefni ráðstefn-
unnar, enda margt ágætis fólk starfandi í þess-
um geira, sem hafði mikla þekkingu á málefninu
og var tilbúið að deila henni með félagsmönn-
um. ( byrjun októbermánaðar skall ógæfan yfir
og allir viðskiptabankar þjóðarinnar urðu gjald-
þrota. Þessar hremmingar höfðu þau áhrif að
hlutabréfamarkaður landsins gerbreyttist og
stór hluti hlutabréfa á markaði varð verðlaus
eða lækkaði verulega í verði. Vegna þessarar
stöðu mátti nánast segja að fyrirliggjandi drög
að haustráðstefnu félagsins og yfirskrift hennar
ætti ekki lengur við. Við ákváðum þó að bíða
út mánuðinn í þeirri von að staðan væri skýrari
þá. I októberlok var Ijóst að ekkert hafði breyst
þannig að dagskrá ráðstefnunnar þurfti að
breyta í samræmi við stöðu mála. Yfirskrift ráð-
stefnunnar var breytt í „Hlutabréfamarkaður-
inn - hrun og endurreisn". Rætt var við þá að-
ila, sem höfðu samþykkt að vera með fyrirlest-
ur samkvæmt fyrri dagskrá. Sumir þessara að-
ila voru reiðubúnir að halda sínu striki og haga
fyrirlestrinum í samræmi við nýja yfirskrift, aðrir
sögðu sig frá málinu enda ekki lengur í sömu
stöðu eins og áður. Leitað var til nýrra aðila um
fyrirlestur og tókst það ótúlega vel.
Ráðstefnan hófst kl 8:30 með ávarpi Mar-
gretar G. Flóvenz formanns félagsins, sem setti
fundinn. Ráðstefnustjóri var Eggert Teitsson,
endurskoðandi.
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptráðherra
ávarpaði ráðstefnugesti stuttlega og ræddi
ástand í fjármálum og þá ágjöf sem þjóðin þarf
að berjast gegn.
Þórður Friðjónsson, forstjóri NASDAQ OMX
á íslandi, ræddi sögu Kauphallarinnar, þróun
hlutabréfamarkaðs á undanförnum árum, nú-
verandi stöðu í Ijósi kreppunnar og hvernig
stefnt verði að endurreisn hlutabréfamarkaðar-
ins á Islandi. Þó að hlutabréfamarkaðurinn væri í
algeru lágmarki nú þá sagði hann að skuldbréfa-
markaðurinn væri mjög virkur og yrði það lík-
lega áfram. Hann taldi að jafnvægi í efnahagslífi
landsins yrði liklega náð í lok ársins 2010.
Guðríður Ásgeirsdóttir, sérfræðingur á skrán-
ingasviði NASDAQ OMX á (slandi, fjallaði um
upplýsingaskyldur þær sem hvíla á félögum sem
skráð eru á markaði og úrvinnslu Kauphallarinn-
ar úr þeim á grundvelli laga nr. 108/2007.
Eftir stutt kaffihlé, tók Gylfi Zoega, prófessor
við Háskóla Islands til máls og ræddi um „Stóru
bólu". Hann rakti orsök þeirrar alþjóðlegu fjár-
málakreppu sem nú hrjáir heiminn, tilurð henn-
ar orsök og afleiðingar. Hann sagði að ekki væri
séð fyrir endann á þessari þróun og enn ætti
ástandið eftir að versna.
Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur, ræddi
um upplýsingar í ársreikningum félaga á mark-
aði og gagnsemi þeirra fyrir greiningaraðila.
Hún fjallaði um ársreikninga þessara félaga,
hrun íslenska fjármálakerfisins og varpaði fram
spurningunni: Gáfu skýrslurnar einhverjar vís-
bendingar um það sem í vændum var?
Næst tók til máls Ásgeir Jónsson, forstöðu-
maður greiningardeildar Nýja Kaupþings banka
hf. Hann ræddi um stöðu og framtíð á hluta-
bréfamarkaði í Ijósi nýliðinna atburða í þjóð-
félaginu. Hann taldi að langur tími myndi líða
þar til íslenskur verðbréfamarkaður getur unn-
ið traust að nýju. Virkur hlutabréfa- og skulda-
bréfamarkaður er forsenda þess að fyrirtæki
geti sótt fjármagn til vaxtar og fyrir hagkvæmri
fjármögnun ríkisins og vaxtamyndun á hinu ís-
lenska myntsvæði.
Stefán Svavarsson, aðalendurskoðandi hjá
Seðlabanka (slands, tók því næst til máls og
snéri mál hans að reikningsskilum banka á mark-
aði og um eftirlitsaðila með reikningsskilum þ.e.
stjórnir, endurskoðendur, fjármálaeftirlit og árs-
reikningaskrá. Einnig ræddi hann meginviðhorf
til staðla IASB og mismunandi reikningsskilaað-
ferðir í uppgjörum bankanna.
Ólafur Viggó
Sigurbergsson,
formaður mennt-
unarnefndar FLE
Eftir hádegisverðarhlé tók Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital til máls.
Hann fjallaði um þróun íslensks hlutabréfamark-
aðar frá frumbernsku, hvernig fsland fór úr því
að vera markaður með sjávarútvegsfyrirtæki í
að vera markaður með fjármálaþjónustufyrir-
tæki. Hvert er liklegt framhald, er hægt að
breyta markaðnum til að þjóna úgefendum og
fjárfestum til jafns? Hann telur að lausnin felist
m.a. í því að fá stór og stöndug fyrirtæki til skrá
sig á hlutabréfamarkað.
Næst síðastur á mælendaskrá var Geir Geirs-
son, endurskoðandi hjá ársreikningaskrá RSK.
Hann lýsti í sinni ræðu eftirlitshlutverki ársreikn-
ingaskrár þ.e. eftirliti með ársreikningum og
skilum á þeim, eftirliti á árs- og árshlutareikn-
ingum skráðra félaga og beitingu sekta og við-
urlaga o.fl. því tengdu.
Síðasti ræðumaður dagsins var Vilhjálm-
ur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjár-
festa. Hann ræddi m.a. sjónarmið hins almenna
f'i/f .
w
I !
/ H \
Margrét Pétursdóttir fv. formaður mennt-
unarnefndar FLE.
FLE j/iéiU. janúar 2009 »21