FLE fréttir - 01.01.2009, Qupperneq 27

FLE fréttir - 01.01.2009, Qupperneq 27
umsögn dómnefndar um ársskýrsluna voru m.a. að „Umfjöllun um samfélagslega ábyrgð er góð. Reikningarnireruskýrirog vel framsettir". Lands- banki Islands hlaut verðlaunin. Þá voru 26 dagar i bankahrunið mikla. Kannski hvíldi bankaleynd yfir ársreikningnum og því fór sem fór. En nú að sjálfri golfkeppninni. Alls mættu 20 endurskoðendur til leiks og aðeins einu sinni áður hafa keppendur verið fleiri. Flestum að óvörum, miðað við fyrri reynslu og árstima, þá var veðrið eins hagstætt og hugsast gat. Logn og hlýtt og fallegt veður þannig umhverfið allt skartaði sínu fegursta. Allir luku leik og nutu dagsins. Um framkvæmd mótsins sáu Ivar Guð- mundsson og greinarhöfundur. I mótslokin fór fram verðlaunaafhending og úrslit kynnt og ekki spillti fyrir við verðlaunaafhendinguna að fyrirtækið Bakkus ehf. lagði til eitthvað renni- legt í verðlaun auk þess sem gull, silfur og brons medalíur komu frá okkur. Golfmeistari FLE árið 2008 er Ragnar Bogason sem nú sigraði í fyrsta sinn á þessu móti. Ragnar Bogason lék einnig best án forgjafar og varð því tvöfaldur sigurveg- ari. íþróttasíða FLE frétta óskar Ragnari til ham- ingju með meistaratitilinn. Öldungameistari (55 ára og eldri) varð Guðmundur Frímannsson og hann fær sömuleiðis hamingjuóskir. Hefð er komin á golfferð endurskoðenda til Skotlands í maí hvert ár. Ellefta vorferð FLE golfara var farin dagana 8.-15. maí 2008 og í þetta sinn var ferðinni heitið á golfhótel í ná- munda við borgina Glenrothes í Perth héraði. Fyrir tæpum 10 árum hafði golfhópurinn komið á þær slóðir sem nú skyldi haldið á. Glæsilegur golfvöllur og forn hótelbygging hafði síðan virk- að sem segull á nokkra í hópnum og nú skyldi haldið á þessi mið. Áfangastaðurinn eða hótelið heitir Balbirnie House, sveitasetur eða bústað- ur heldri manna frá árinu 1777. Hótelbygging- in er nú í hópi þeirra bygginga á Skotlandi sem uiest varðveislugildi hafa (Grade A), bæði vegna sögulegrar þýðingar og eins vegna byggingalist- arinnar. Húsið er með fyrstu húsum í Skotlandi sem byggt var eftir klassískum (grískum) stíl og að auki líklega það stærsta. Þó greinilega hafi sitthvað verið gert fyrir húsið frá fyrstu dög- þá má enn merkja gömlu tímana, notalegt marr í trégólfum á göngum og í stigum. En þó i°tnt sé þá er aðstaðan öll notaleg og gott úr- Eldri endurskoðandi sólarsig i hallargarðinum við Balbirnie hótelið. val Malt Whisky prýddi barveggina í upphafi og tilveran þarna ekkert annað en himnesk hvíld frá öllu áreiti hins daglega lífs í sundurtættum fjármálaheimi. Burt frá öllum skarkala og áreiti stórborga þá er hótelbyggingin umlukin hæð- óttu skóglendi í eigin hallargarði sem er um 170 hektarar að stærð. Sett í stærri tölur þá nálgast stærðin að vera 1.700.000 fermetrar. Dálaglegt skóglendi það. Fjölmargar trjátegundir ókunnar norðlægari slóðum eru í þessum garði og heit- in á þeim óþekkjanleg fyrir golfáhugamenn frá fslandi. Fjölmargar tegundir alparósa eru enn- fremur í þessum garði og þykir fjölbreytileiki þeirra vera með því mesta sem gerist á Skot- landi. ( þessari landslagsparadís fundum við einn- ig aðra paradís og hana ekki síðri. Veðurfars- lega paradís. Ekki dropi úr lofti nema eina nætur- stund, smávæta. Létt skýjafar flesta morgna en sólfar ágætt um eftirmiðdagana. Ekki hreyfði vind allan tímann sem við vorum þarna. Óvana- legt fyrir Skotland sem oft er talið vera bæði regn- og vindasamt. En ekki þessa viku. Óhætt er að fullyrða að veðurfarslega var þetta best heppnaða ferðin til Skotlands en um leið er líka ástæða til að láta það koma fram að almennt höfum við verið mjög heppnir með veður og aldrei hefur komið sá dagur öll þessi ár að við höfum þurft að sleppa því að leika golfi einhvern daginn vegna veðurs. Við vorum 16 endurskoðendur sem fórum í golfferðina til Skotlands og dvöldum í góðu yfirlæti á Balbirnie hótelinu. Sérstaka ánægju vakti það með okkur að hótelið var í ferli að ná FLE jytéiU janúar2009 • 27

x

FLE fréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.