Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 14

Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 14
14 SÚGANDI 2019 Lífgað upp á SÚGFIRÐINGASETRIÐ Súgfirðingasetrið á Suðureyri er stolt okkar í félaginu og gefur okkur öllum kost á að skreppa í fjörðinn og eiga þar samastað í hjarta bæjarins. Íbúðin lítur vel út og er vel við haldið. Smávægilegar breytingar voru gerðar í júní sem verða til þess að enn skemmtilegra verður að vera í íbúðinni og njóta samverunnar. Breyting var gerð í eldhúsinu og minna borð komið í eldhúskrókinn. Stóra eldhúsborðið var komið fyrir í stofunni. Rýmra er núna í eldhúsinu og bjartara. Falleg málverk frá Guðríði Gyðu Halldórsdóttur og Ragnheiði Björk Guðmundsdóttur eru komin á góðan stað og sóma sér vel innan um aðra listmuni, m.a. ljósmyndir sem Jón Víðir Njálsson gaf Súgfirðingafélaginu. Búið er að fækka rúmum í íbúðinni úr níu í sjö. Tvö rúm voru tekin úr stofunni og þau notuð sem höfuðrúmgafl í hinum herbergjunum. Við það

x

Súgandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Súgandi
https://timarit.is/publication/1797

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.