Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 6

Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 6
6 SÚGANDI 2019 Hafliði Baldursson og Árni Guðbjörnsson María Weinberg og María Kristín Rúnarsdóttir Ásgeir Ingvi Jónsson og Sigurður G. Ólafsson Sigurður Þorvaldsson og Ingólfur Sigurðsson Karl Bjarnason og Ólafur Ólafsson Rafn Haraldsson og Jón Sveinsson Ágúst Þorsteinsson og Margrét Gunnarsdóttir Finnbogi Finnbogason og Magnús Jónsson Steinþór Benediktsson og Birgir Benediktsson Kristín Andrewsdóttir og Jórunn Kristinsdóttir 1539 stig 1482 stig 1479 stig 1449 stig 1445 stig 1421 stig 1418 stig 1408 stig 1396 stig 1364 stig Það var góður gangur í Súgfirðingabriddsinu í vetur og mætingin ein sú besta frá upphafi. Að meðaltali mættu 36 spilarar til leiks og þegar flestir voru var spilað á 10 borðum. Áður en spilamennskan hófst gæddu spilarar sér á brauði og bakkelsi sem Sóley Halla reiddi fram af sinni einstöku lagni og spilamenn voru því saddir og glaðir þegar alvaran hófst. Framkvæmdin var Við óskum handhöfum Súgfirðingaskálarinnar þeim Hafliða Baldurssyni og Árna Guðbjörnssyni til hamingju með árangurinn en þetta er í annað sinn sem þeir vinna skálina góðu. Eftir veturinn var hagnaður af spilakvöldunum eftir að allur kostnaður var greiddur kr. 72.733,- og var upphæðin greidd inn á reikning Súgfirðingafélagsins 9. maí s.l. Spilamennskan hefst að nýju mánudaginn 30. september kl. 18:00 og verður spilað á sama stað og áður í Síðumúla 37, 108 Reykjavík á 3ju hæð í sal Bridgesambands Íslands. Spilað verður eftirtalda daga veturinn 2019-2020: 30. september, 28. október, 25. með þeim hætti núna að spilað var eftir Monrad kerfi og var spilamennsku því lokið um kl. 21:00 þannig að flestir náðu heim vel fyrir seinni fréttir í sjónvarpinu. Í ár var óvenju mikið af konum og víst að Súgfirðingar eru miklir femínistar eins og sagan greinir. Spilað var í átta lotum í hverjum mánuði frá september til apríl og voru tíu efstu pörin þessi: nóvember, 16. desember, 27. janúar, 24. febrúar, 30. mars og 27. apríl. Undirritaður mun nú hætta sem ábyrgðarmaður fyrir Súgfirðingaskálinni eftir 8 ára starf og mun María Weinberg (Didda) okkar taka við keflinu, en hún er góður og gegnheill Súgfirðingur. Ég þakka fyrir mjög skemmtileg ár með ykkur mín kæru en mun nú aðeins spila og njóta. Birti hér nokkrar myndir úr starfinu í vetur. Kristján Pálsson Súgfirðingaskálin 2018-2019

x

Súgandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Súgandi
https://timarit.is/publication/1797

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.