Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 35
35
SUMARBLAÐ
Ég vinn hjá Stokki Software sem er
hugbúnaðarfyrirtæki og sérhæfum við okkur í
appþróun, en einnig vefþróun. Við höfum gert
öpp fyrir fyrirtæki eins og Strætó, Domino’s,
NOVA, Aur, og Arion banka, svo eitthvað sé
nefnt, en við höfum gert tugi appa síðustu 10
árin, bæði hannað og forritað. Á þeim tíma sem
ég sótti um hjá Stokki var ég að vinna fjórða
sumarið mitt sem lögreglumaður í afleysingum
og ákvað ég á einni næturvaktinni að senda
starfsumsóknir á öll hugbúnaðarfyrirtæki sem ég
fann á Íslandi. Þetta var 2015 og var ég að byrja í
tölvunarfræði í HR. Mig langaði til að vinna með
skólanum og sérstaklega hjá fyrirtæki í þessum
geira. Ég hafði engan sérstakan áhuga á að
læra tölvunarfæði og langaði ekkert heitar en
að fara í lögregluskólann, en þetta var praktískt
nám sem bauð upp á fleiri möguleika en hjá
lögreglunni. Ég endaði svo með eitt svar og var
það frá þáverandi framkvæmdastjóra Stokks. Ég
fékk starf um haustið sem “tester” eða prófari þar
sem ég sá um að prófa allan hugbúnað áður en
hann fór áfram til almennings. Eftir að hafa unnið
hjá Stokki í tæpt ár ákvað ég að byrja að vinna
100% með skólanum þar sem ég sá tækifæri
fyrir mig að þróast enn frekar í starfi. Frá 2015-
2017 starfaði ég sem gæðastjóri, verkefnastjóri
og aðstoðarmaður framkvæmdastjóra. Í febrúar
2018 var mér boðið að gerast rekstrarstjóri
Stokks, sem ég tók með glöðu enda elska ég að
taka við áskorunum sem ég veit að eiga eftir að
kenna mér nýja hluti. Ég útskrifaðist loks sem
tölvunarfræðingur í júní 2018 og mánuði seinna
var mér boðið að gerast framkvæmdastjóri Stokks
og sit ég enn í þeim stóli.
Framtíðarplön mín eru að verða betri í því sem
ég er að gera með hverju árinu, bæði í einkalífinu
og starfi. Á næstu árum ætla ég að læra meira
um allt sem tengist rekstri og stjórnun fyrirtækja.
Mig langar líka til að eignast fleiri börn og fara
í fleiri ferðalög með fjölskyldunni en síðustu ár
hafa verið mikil keyrsla hjá mér samhliða skóla og
vinnu. Hvað varðar plön í starfi þá er það ætlun
mín að koma Stokki betur á kortið og gera fullt af
nýjum, skapandi og skemmtilegum hlutum með
hæfileikaríku fólki.
Ég á mjög margar minningar frá Súganda sem
eru mér kærar þannig að það er erfitt að velja.
Það sem kemur upp í huga minn er Norðureyri,