Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 32
32
SÚGANDI 2019
Að mörgu er að hyggja áður en hægt er að fara
í svona verkefni. Veðurstofan er búin að meta
snjóflóðahættuna sem er mikil á staðnum en
í ljósi þess að hvorki er gistiaðstaða né opið
yfir veturinn hefur það ekki áhrif. Minjastofnun
hefur gefið okkur grænt ljós á svæðið en tveir
fornleifafræðingar frá Minjastofnunun tóku út
svæðið til að tryggja að ekki sé verið að skemma
neinar fornminjar. Ljóst er að á svæðinu eru
gamlar tóftir, m.a. stekkur og lambakró, og síðan
ógreinileg mannvirki nálægt þeim stað sem við
viljum byggja. Búið er að afmarka landssvæði sem
metið er öruggt og hefur ekki áhrif á fornminjar
sem eru á svæðinu. Hlöðver Kjartansson sem er
einnig einn landeigenda hefur verið ómetanlegur
við að fá undirskriftir landeigenda og ganga frá
samningi við Fornminjafélagið um byggingu á
landinu. Byggingafulltrúi Ísafjarðabæjar hefur
verið okkur mjög hjálplegur og leitt okkur í
gegnum ferlið.
Í tengslum við byggingu skálans mun
Fornminjafélagið, í samstarfi við Kristínu
Auði Kelddal Elíasdóttir hleðslumann og
skrúðgarðyrkjumeistara úr Dýrafirði, standa
fyrir námskeiði í hleðslu dagana 6.- 8. ágúst.
Kristín mun stjórna verkinu og leiðbeina um
handbragðið við hleðsluna en hún er einn af
reyndari hleðslumönnum landsins.
Á námskeiðinu verður m.a. kennt hvernig á að
velja mýri til að taka torf úr, hvernig á að stinga
klömbru úr mýri, hvernig er hlaðið með klömbru,
val á steinum í hleðslu og steinhleðslu með og án
strengs.