Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 24
24
SÚGANDI 2019
Mynda- og minningakvöld
23. janúar 2019
Fyrsta mynda- og minningakvöld ársins var haldið
í Gerðubergi 23. janúar sl. og afar vel sótt.
Hafdís Halldórsdóttir sagði sögur og sýndi
myndir af afa sínum Gissuri og ömmu sinni Jönu.
Indíana Eyjólfsdóttir (Jana) fæddist í Bolungarvík
6. janúar 1911 og ólst þar upp hjá foreldrum
sínum þeim Valgerði Arnórsdóttur og Eyjólfi
Guðmundssyni í stórum systkinahópi. Jana giftist
Gissuri Friðbertssyni 1933 og bjuggu þau alla tíð á
Suðureyri. Aðalgata 18, efri hæð, var heimili þeirra
lengst af. Jana og Gissi, en svo voru þau ávallt
kölluð heima í Súgandafirði, unnu mjög sveit
sinni og báru jafnan hag hennar fyrir brjósti. Þau
störfuðu bæði mikið að félagsmálum. Afkomendur
Indíönu og Gissurar gáfu Súgfirðingafélaginu
íbúðina sem nú hýsir Súgfirðingasetrið. Þetta var
einstaklega rausnarleg og falleg gjöf sem gefur
brottfluttum Súgfirðingum tækifæri á að eiga
heimili í okkar fallega firði.
Síðan steig á Hermann Bjarnason sem sagði frá
lífshlaupi foreldra sinna Bjarna G. Friðrikssonar
og Sigurbjargar Sumarlínu Jónsdóttur eða Línu
eins og hún var ávallt kölluð. Farið var yfir æsku
þeirra og búsetu m.a. á Galtarvita, þar sem Bjarni
var vitavörður í sjö ár, og síðan á Suðureyri. Bjarni
var á sjó og lét mikið til sín taka í félagsmálum,
m.a. í verkalýðsmálum og pólitík. Lína sá alfarið
um heimilið. Hún var listræn í sér og hafði unun
af lestri góðra bóka. Lína og Bjarni eignuðust 16
börn.
Eftir hlé var sýnd heimildamynd um hamingjuna
eftir Ingrid Kuhlman. Rannsóknir í jákvæðri
sálfræði hafa sýnt að fólk upplifir oft mestu
hamingjuna eftir að það hættir að vinna. Við
getum því lært mikið af eldri borgurum um það
hvernig eigi að lifa hamingjusömu og ánægjulegu
lífi. Í myndinni var rætt við 13 einstaklinga á
aldrinum 70-91 árs um það hvernig þeir hafa
skapað sér hamingjuríka tilveru. Viðtölin færðu
gestum kvöldsins heillandi innsýn í það sem
hægt er að gera til að auka vellíðan sína.