Ský - 01.08.1998, Side 72
ICYNNINGARSÍÐUR
Nova Scotia
/
Arið 1749 var borgin Halifax stofnuð, alþjóðleg borg
þar sem fortíð og nútíð lifa hlið við hlið. 200 ára göm-
ul húsin í Historic Properties, glitrandi skýjakljúfar
og tískuverslanir deila með sér hafnarbakkanum þar sem allt
iðar af lífi.
Langi þig til að versla er Halifax rétti staöurinn. Líttu
inn í fataverslanirnar og skoðaðu nýjustu tískuna eða upp-
götvaðu sérkennilegar handunnar gersemar í listmunaversl-
unum borgarinnar. I’arna eru einnig fyrsta flokks gjafavöru-
verslanir sem uppfylla jafnvel kröfur hinna vandlátustu. I
björtum og rúmgóðum verslanamiðstöðvunum rná gera öll
innkaup undir sama þaki. Og þarna eru stórar lagersölur
líka.
Steinlagðir göngustígarnir Privateers Wharf í Historic
Properties-hverfinu liggja að enduruppgerðum pakkhúsum
sem hafa að geyma afar einstakar sérvöruverslanir og út-
sölustaði fýrir alls konar varning beint frá framleiðendum á
hagstæðu verði.
I Historic Properties er upplagt að kaupa handa ástvin-
um hefðbundnar gjafavörur sem tengjast sjónum. Verslanir í
Privateers Wharf eru einnig opnar á sunnudögum.
í miðbæ Halifax er þægilegt að rölta um og versla. Gott er
að ganga um litríkar göturnar með trjám á báðar hendur, og
verslanir, kaffihús og einstaka matsölustaði. Síödegis geta
rnenn dólað sér í miðbænum og skoðað í margvísleg vöru-
hús, gjafavöruverslanir og verslanamiðstöðvar. Við Spring
Garden Road er ein af stærstu verslanamiðstöðvum miðbæj-
arins og önnur rétt hjá, við Barrington Street. 10 mínútna
akstur frá miðbæ Halifax og beint af Highway 102-þjóðveg-
inum er að finna verslanamiðstöðina Halifax Shopping
Centre með 150 verslanir.
I Mic Mac-verslanamiðstöóinni í Dartmouth eru yfir
150 verslanir og rnargir ferkílómetrar af ókeypis bílastæð-
um. I’ar er auðvelt að geyma bílinn meðan farið er í verslanir.
Bayers Lake Business Parks er sömuleiðis mikið af ó-
keypis bílastæðum. Margar stórverslanirnar geta veitt afslátt
af útsöluverði og bjóða vörur á verksmiðjuverði. Þarna er selt
byggingaefni, rafnragnstæki og fatnaður, auk þess sem þarna
eru stórar bókaverslanakeðjur. Auðvelt er að komast í versl-
anamiðstöðina beint af þjóðveginum og hentar hún því við-
skiptavinum á hraðferð sérstaldega vel.