Ský - 01.04.2000, Blaðsíða 50
KYNNING
KYNNING
mmmmmmmmmm
rsinmnmmmKÍjiji
r i rrrn;'*
;;
rirrn'l ffig
ri rr rr 11 p^ff
r i rrr- r., eví
r-r rri . ffJf
rr rr“J n
rr. m uMiu"..
iiummi
iimíiim
imiíiim
imiiijii
irrirrpríFr
'rnr Prí-írr
Fí'iFfFíiíríí
FfiílFr í.iíjp
cftKnivFÍMÍ:
NOVA SCOTIA
Halifax er alþjóðleg borg með meira en 250 ára
sögu þar sem fortíð og nútíð birtast hlið við hlið.
Tvöhundruð ára ára gömul húsin í Historic
Properties, glitrandi skýjakljúfar og tískuverslanir deila með
sér hafnarbakkanum þar sem allt iðar af lífi.
Ef þig langar til að versla er Halifax rétti staðurinn. I miðbæ
Halifax er þægilegt að rölta um og líta inn í verslanir.
Það er gaman að ganga um litríkar göturnar með tré á báðar
hendur, og verslanir, kaffihús og einstaka matsölustaði.
Við Spring Garden Road er ein af stærstu verslanamiðstöðv-
um miðbæjarins og önnur rétt hjá, við Barrington Street.
Steinlagðir göngustígar Privateers Wharf í Historic
Properties-hverfinu liggja að uppgerðum palckhúsum sem
hafa að geyma einstakar sérvöruverslanir og útsölustaði fyrir
alls konar varning beint frá ffamleiðendum á hagstæðu verði.
Það tekur aðeins tíu mínútur að aka frá miðbæ Halifax til
verslanamiðstöðvarinnar Halifax Shopping Centre þar
sem eru 150 verslanir. I Mic Mac-verslanamiðstöðinni í
Dartmouth eru yfir 150 verslanir og margir ferkílómetrar
af ókeypis bílastæðum. Þar er auðvelt að geyma bílinn
meðan farið er í verslunarferðir í nágrenninu.
I Bayers Lake Business Parks er sömuleiðis mikið af ókeypis
bílastæðum. Margar stórverslananna geta veitt afslátt af
útsöluverði og bjóða vörur á verksmiðjuverði. Um er að ræða
byggingaefni, rafmagnstæki og fatnað, en auk þess eru
þarna stórar bókaverslanakeðjur.
En Halifax býður upp á fleira en verslanir. Arið 1993 kallaði
tímaritið Harper’s Bazaar borgina „nýtískuborg í orðsins
fyllstu merkingu“. Klúbbar og krár, tískuverslanir, kaffihús
og veitingahús með mat frá ýmsum löndum
(fylgist sérstaklega með „Taste of Nova Scotia“ skiltum),
allt iðar þetta af lífi steinsnar frá gömlum kirkjugarði þar
sem finna má legsteina frá 1752.
í Halifax Metro Centre, stærstu skemmtanamiðstöð á
Atlantshafsströnd Kanada, koma fram jafnt leikarar Neptu-
ne-leikhússins, sinfóníuhljómsveit Nova Scotia sem alþjóð-
legir skemmtikraftar. Urvalið af listsýningum og
tónleikum er ótrúlegt með hliðsjón af stærð borgarinnar.
Nova Scotia er helsti áfangastaðurinn við sjávarströnd
Norður-Ameríku. Þar er margt hægt að taka sér fyrir
hendur og landslagið er fjölbreytt. Svo til alls staðar með-
fram 7400 lcm langri strandlengjunni uppgötvar maður
eitthvað nýtt - himinháa kletta, stórfenglegt útsýni, heilu
breiðurnar af auðri sandströnd, tilkomumikla höfða, skjól-
góðar víkur og fiskiþorp, mýrar með fjölbreyttu dýralífi.
Cabot-leiðin er ein fegursta akstursleiðin meðffam sjó í
allri Norður-Ameríku. Hún er hluti af yfirgripsmiklu og
vel skipulögðu vega- og göngustígakerfi fyrir ferðamenn
hringinn í kringum landið. Hver leið er til vitnis um hina
miklu fjölbreytni sem einkennir strendur Nova Scotia.
Söfn, sögulegar byggingar og menningarmiðstöðvar
hvarvetna í Nova Scota veita mönnum innsýn í sögu
þessarar siglingaþjóðar. Louisbourg-virkið, stærsta
sögulega og uppgeróa byggingin í Norður-Ameríku, og
Sherbroke Village á Sjávarleiðinni (Marine Drive),
veita innsýn í líf horfms tíma.
UNESCO heflir útnefnt Lunenburg, sem stofnuð var árið
1753, menningarverndarsvæði, en aðeins ein önnur borg
í Norður-Ameríku hefúr hlotið slíkan heiður.
Á leið um Lighthouse Route er einnig tilvalið að koma við
í Mahoneflóa þar sem eru fjölmörg söfn og vinnustofur
margra fremstu lista- og handverksmanna Kanada.
Peggy’s Cove er líka viðkomustaður sem fólk á ekki að
missa af, en þar situr samnefndur viti efst á sæbörðum
granítklettum.
Langir dagar og þægilegur meðalhiti, milli 20 til 25 gráð-
ur á Celsíus, gera Nova Scotia að sannkallaðri útivistar-
paradís á sumrin. Áhugafólk um útivist getur farið í
fjallgöngur, hjólreiðaferðir og útilegur í þjóðgörðum Cape
Breton Highlands eða Kejimkujik. Eða þá fúndið af eigin
raun ástæður þess að Golf Magazine kaus Highland Links
golfvöllinn besta golfvöll Kanada og setti hann í 57. sæti
á lista yfir bestu velli heimsins.
Við Fundyflóa geta gestir svo séð einhver stórfenglegustu
sjávarföll heims, en hvergi er meiri munur á flóði og fjöru
en þar. Fólk getur gengið á sjávarbotninum um leið og
100 milljarðar tonna af vatni streyma út úr trektarlaga
víkinni.
Hér uppgötva áhugamenn um steingervinga, ljósmynd-
arar, listamenn og náttúruffæðingar í leit að fuglum eða
hvölum land drauma sinna.
Heimsækið Nova Scotia og njótið einstakrar gestrisni í
heillandi umhverfi.
Ml l I I I
mmmmmm
mmmmmm
mcrrr
i' i rri
n
fammww
mmmrnm
Flugleidiv bjóða upp áflug og bíl til Halifax á Nova Scotia.
Hafðu samband við nœstu fevðaskvifstofu eða hvingdu í Flugleiðiv
í síma 5050 100 ojj pantaðufevð til NovaScotia.
Sheraton spilavítið
Spring Garden Road
- ■ —- t,- r t--. -.
, n
rx.
Nomscoi
C A N A D A
.
Fundyfloi
. — ■ —. 7
•r- -■