Ský - 01.06.2002, Side 10
FYR5T & FREM5T = HORFINN HEIMUR
veröld sem var
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur gefst í sumar fágæt innsýn t tilveruna eins
og hún var á íslandi fyrir ekki svo mörgum árum. Safnið hefur leitað fanga
í eigin myndasöfnum og sett saman sýningu úr hátt á annað hundrað
blaðaljós-myndum frá árunum 1965 til 1975; þegar hárþurrkur litu út eins
og geimhjálmar, grúfustfllinn var enn viðtekinn í hástökki og frumgeröir af
Ijósabekkjum voru að koma á markaðinn. Þetta er töfrandi heimur í
svarthvítu þar sem bregður fyrir jafnt nafntoguðum sem óþekktum
íslendingum.
Blaðaljósmyndir er einn fyrirferðamesti flokkur myndefnis á Ljósmyndasafni
Reykjavíkur. Á safninu eru varðveitt filmusöfn frá Ijósmyndurum sem star-
fað hafa sem blaðaljósmyndarar auk filmusafna frá einstökum fjölmiðlum.
Það er langt í frá að allar þær myndir sem eru á sýningunni hafi komiö
almenningi fyrir sjónir og þær sem þirtust lesendum voru oft smáar á síðum
þlaðanna, gæðin lítil, klipptar og skornar og sem hluti af frásögn. Hlutverk
blaðaljósmynda er nær eingöngu bundió við atburðinn, vin-
nubrögð blaöaljósmyndara einkennast af hraða og snörum
handtökum og blaðaljósmyndum er í raun ætlaður skam-
mur líftími; þær eru vinnugögn og lítt metnar.
Á sýningunni er leitast við að sýna blaðaljósmyndir með
öðrum hætti en venja hefur verið. Ljósmyndin er tekin úr
sínu upprunalega samhengi sem lyftistöng frásagnar.
Stækkuð og sett upp á vegg fær myndin að njóta sín til
fullnustu; hún á sér líf fyrir utan atburðinn, sjálfstæóan
tilverurétt.
Kona í Ijósabekk, 1970 og hástökk kvenna, 1969. Ljósm.: Gunnar
Heiðdal.Jóhannes Kjarval, 1965. Ljósm.: Jóhann
Vilberg.Hárþurrkun, 1973. Ljósm.: Bjarnleifur Bjarnleifsson.
8 SKÝ