Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1979, Page 86
Samanburður árlegra simagjalda
milli höfuðborga 1. jan. 1977 og 1. jan. 1979.
Samanburður 1. jan. 1977.
Þegar bera á saman símakostnað notenda hinna ýmsu landa koma
fram ýmsir valkostir á þvi hvernig slíkur samanburður er gerður.
í mörgum löndum eru mismunandi simagjöld eftir tíma sólarhrings
og eftir því hvort um virka daga eða helgar er að ræða. Einnig
eru flest lönd með mismunandi gjöld eftir búsetu, þannig að not-
endur í stærstu bæjunum greiða hærri ársfjórðungsleigu heldur en
notendur í minni bæjum og eru Norðmenn t.d. með 6 mismunandi árs-
fjórðungsleigur. í sumum löndum er mismunandi háum söluskatti
eða virðisaukaskatti bætt við gjöldin en í öðrum löndum er það
ekki gert jafnvel þótt þau lönd leggi virðisaukaskatt á ýmislegt
annað. Ríkisstjórn íslands ákvað í apríl 1972 að bæta söluskatti
ofan á alla símareikninga. Mismunandi gjöld eru fyrir handvirka
og sjálfvirka símaafgreiðslu. Á íslandi er ákveðinn skrefafjöldi
innifalinn í ársfjórðungsleigunni, 300 í Stór-Reykjavík og 600
annars staðar, en slíkt fyrirfinnst ekki hjá þeim sem þessi saman-
burður er gerður við. Atvinnusímar x mörgum löndum greiða hærri
ársfjórðungsleigu en heimiiissímar. Hér er eingöngu gerður saman-
burður á talsímakerfinu, en símskeytum, radió, telex, modemum,
leigulínum og alls konar notendabúnaði sleppt og þannig mætti
lengi telja.
í þessum samanburði er miðað við talsímagjöld í höfuðborgum land-
anna, heimilissíma, hæsta símtalakostnað (daggjöld virka daga)
eingöngu sjálfvirk símtöl og söluskatti eða virðisaukaskatti er
bætt við hjá þeim löndum sem það gera. Þar sem nær allir síma-
notendur á Reykjavikursvæðinu nota meira en 300 skref á ársfjórð-
ungi er ársfjórðungsleigunni skipt í hreina leigu, sem er sambæri-
leg við tilsvarandi gjald hjá öðrum þjóðum og notkunargjald fyrir
300 skrefa notkun. Taflan og dálkamyndirnar á fig. 1 - fig. 3 eru
teknar úr grein í danska "KTAS bladet" nr. 4, ágúst 1977, sem er
starfsmannablað hjá Kjöbenhavn Telefon Aktieselskab, en það blað
tók þetta úr "Verk og Virke", sem er starfsmannablað norska símans
og þess vegna eru allar upphæðir í norskum krónum. Allir taxtar