Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1979, Page 114
fyrir tímabilið 1976 - 2000. í júní 1978 gaf nefndin út endurskoðaða
raforkuspá. Nefndin lagði til grundvallar spánni spá um fólksfjölda
í landinu og spá um mannfjölda í einstökum atvinnugreinum, sem Fram-
kvæmdastofnun ríkisins hefur gert. Kannaði nefndin sérstaklega orku-
notkun til húshitunar, þar sem mismunandi orkutegundir, jarðvarmi,
raforka og olxa geta keppt um markaðinn, lagði mat á, að hve miklu
leyti hægt væri að nota jarðvarma til húshitunar og birti hámarksspá
um raforkunotkun, þar sem gert var ráð fyrir, að rafhitun verði komin
í stað olíu til húshitunar alls staðar, þar sem ekki verður völ á
jarðvarma fyrir árið 1985. Ennfremur birti nefndin 2 aðrar spár,
þar sem miðað er við minni notkun rafhita en i hámarksspánni. Ekki
er gert ráð fyrir, að raforka komi teljandi í stað annarra orku-
tegunda á spátímabilinu á öðrum sviðum, svo sem í bílum eða í stað
olíu í iðnaði, enda líklegast, að þar yrði þá um afgangsorku að ræða,
en orkuspáin tekur ekki til slíkrar orku. Nefndin fjallaði ekki
upphaflega um olíunotkun, en í skýrslu Orkustofnunar útgefinni í
apríl 1978 um norræna ráðstefnu um orkusparnað í samgöngum, sem
haldin var í febrúar 1978 í Stokkhólmi, er birt spá um olíunotkun
og jarðvarmanotkun auk raforkuspár samkvæmt ofangreindri hámarksspá
Orkuspárnefndar til ársins 1990. Samkvæmt þessari spá verður verg
orkunotkun íslendinga 1976 - 1990 eins og sýnt er á meðfylgjandi
línuriti og í töflu.
ÁÆTLUÐ VERG ORKUNOTKUN
ÍSEENDINGA 1976-1990
]H RAFORK^
JARÐV.ARMI
□ OL,ÍA