Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1979, Page 115
101
Verg orkunotkun íslendinga 1976 - 1990 (GWh)
Ár Raforka Jarðvarmi Olia Heildar- notkun
1976 2.421 2.552 6.609 11.582
1980 3.405 3.474 6.910 13.789
1985 4.070 4.349 7.470 15.889
1990 4.720 5.289 8.220 18.229
Spáin segir svo fyrir, að sú þróun, sem einkennt hefur orkunotkun
íslendinga á síðustu árum og lýsir sér í aukinni hlutdeild inn-
lendra orkugjafa í orkubúskap þjóðarinnar, muni halda áfram á
komandi árum. Innlend orka var 43% af orkunotkuninni árið 1976,
en mun verða 50% árið 1980, 53% árið 1985 og um 55% árið 1990.
Þessi þróun byggist fyrst og fremst á því, að jarðvarmi og raforka
verði i auknum mæli notuð til húshitunar í stað oliu og að hús-
hitunarmarkaði verði fyrir 1985 að mestu fullnægt með innlendri
orku. Ennfremur er spáin við það miðuð, að ekki komi til önnur
stóriðja en sú, sem þegar hefur verið komið upp eða samið um,
ella hækkar hún sem nemur þeirri orku, sem færi til nýrrar stór-
iðju. Samkvæmt þvi mun heildarorkunotkun þjóðarinnar vaxa úr
11.582 GWh árið 1976 i 18.229 GWh árið 1990 og skiptist þá þannig
i lok timabilsins, að raforka verður 26% af heildarnotkuninni, jarð-
varmi 29% og olia 45%.
Orkuspárnefnd vinnur nú að frekari athugunum á notkun jarðvarma og
oliunotkun hérlendis. Samkvæmd drögum að spá um oliunotkun, sem
nefndin hefur tekið saman fyrir timabilið 1979 - 2000, mun oliu-
notkun ekki aukast eins hratt og hér hefur verið talið. Er þá
meðal annars gert ráð fyrir að oliunotkun til húshitunar verði
úr sögunni árið 1990, bilar verði sparneytnari á benzin en nú er,
og að unnt verði að draga út notkun á oliu i fiskiskipaflotanum.
Yrði oliunotkun landsmanna þá á bilinu frá 7200 - 7500 GWh á ári,
eða rúm 600 þús. tonn á ári til aldamóta og hlutur innlendu orku-
gjafanna, jarðvarma og vatnsafls, i orkubúskap þjóðarinnar stærri
en taliö er hér að framan.
3. Orkunotkun og þjóðarframleiðsla.
Árið 1975 varð orkunotkun á íslandi umreiknuð i igildi oliu 5.05
toe/ibúa (1 toe = igildi 1 tonns af oliu) og hlutfallið milli