Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1979, Page 257
- 243 -
prófanna. Þessi efni voru frá Esjubergi á Kjalarnesi og úr
Rauðamel í námunda við Grindavík.
Efni af sjávarbotni sn. Hvalfjarðarefni, sem Björgun h.f.
hefur haft á boðstólum undanfarin ár, uppfylla ekki staðalpróf.
Enn hefur ekki fengist úr því skorið, hvort efni með possolan-
sementi (íslenzkt portland sement með 5 - 7.5% íblöndun kísil-
ryks frá Málmblendiverksmiðjunni á Grundartanga) og því salti,
sem ekki næst úr við þvott, standast tilskildar kröfur. Því
samþykkti Byggingarnefnd Reykjavíkur 9. ágúst s.l. svohljóðandi:
"Byggingarnefnd samþykkir að framfylgja þegar í stað
ákvæðum greinar 7.2.4. í byggingarreglugerð um steinefni
í steinsteypta útveggi og óvarin steinsteypt burðarvirki,
svo og undirstöðuveggi. ÞÓ með þeirri undantekningu, að
leyfð er notkun malar (þ.e. steypuefni með kornastærð
stærri en 10 mm.) úr Saltvík, þar sem Björgun h.f. nú nemur
efni úr sjó. Undantekning þessi er háð þeim skilyrðum, að
notað sé kísilrykblandað sement og að mölin sé þvegin í
samræmi við reglur, sem byggingarfulltrúi setur.
Þá samþykkir byggingarnefnd með tilvísun til gr. 1.6. í
byggingarreglugerð, að við alla mannvirkjagerð í borginni
sé því aðeins heimilt að nota virk steypuefni, numin af
sjávarbotni, að þau hafi verið þvegin í samræmi við reglur,
sem byggingarfulltrúi setur."
Byggingarfulltrúi hefur haft eftirlit með þvotti á steinefnum af
sjávarbotni síðan í ársbyrjun '79 og 1. ágúst hófst eftirlit af
hálfu embættisins með niðurlögn steinsteypu á byggingarstað.
Byggingarfulltrúi hefur fengið heimild borgarráðs til ráðningar
sérstaks starfsmanns til þess að hafa steypueftirlit með höndum,
og heimild til ráðningar annars, hefur verið vísað til athugunar
við afgreiðslu fjárhagsáætlunar borgarsjóðs 1980.