Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1995, Síða 17
MANNFJOLDINN
Inngangur
Tölur yfir mannfjöldann eru aö venju úr Þjóðskrá Hagstofu íslands og eru
þær miðaðar við búsetu 1. desember ár hvert. Hagstofan birtir í janúar
bráðabirgðatölur mannfjöldans. Þær tölur eru notaðar við þá greiningu
mannfjöldans, sem hér er birt. Endanlegar tölur, sem birtar eru í júní, eru
notaðar í öðrum tölulegum upplýsingum.
Endanlegar tölur um mannfjöldann eru frábrugðnar bráðabirgðatölunum að
því leyti, að sveitarstjórnir hafa í millitíðinni sent til Hagstofunnar
upplýsingar um vantalið eða oftalið fólk í sveitafélögunum og þeir, sem voru
óstaðsettir í upphaflegu skránni, hafa verið skráðir í tilgreindu sveitarfélagi.
Sem dæmi um mismun á bráðabirgðatölum og endanlegum tölum má nefna,
að 1. desember 1994 voru íbúar Reykjavíkur taldir 103.036 en reyndust 16
færri, þegar endanlegar tölur voru birtar, eða 103.020.
Eins og getið er í upphafi eru mannfjöldatölur miðaðar við 1. desember og
hefur verið svo frá 1910. Rökin fyrir því, að þessi tímasetning var tekin upp,
voru þau, að talið var, að þann dag mundi vera almennust heimavera á
landinu. Þær forsendur eru nú varla fyrir hendi lengur, en það auðveldar
allan samanburð að halda þeirri dagsetningu þótt aðrar þjóðir á
Norðurlöndum miði fólksfjölda á íslandi við áramót. Ein undantekning er frá
þeirri reglu að miða fólksfjölda við 1. desember. Hún er, að við gerð
endanlegra talna mannfjöldans hefur börnum, sem fædd eru í desember verið
fundinn staður í manntali.
Á þessum áratug hefur það einkennt fjölgun landsmanna, að hún hefur
mestöll orðið á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes,
Bessastaðahreppur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Kjalarneshreppur
og Kjósarhreppur) og Suðurnesjum. Á undanförnum 5 árum, 1990-1994,
hefur íbúum á Höfuðborgarsvæði fjölgað um 5,9%, en heildarfjölgun
landsmanna á sama tímabili var 4.15%. Mannfjöldinn óx um 1.5% á
höfuðborgarsvæðinu árið 1994 og um 0,7% á Suðurnesjum.
í Reykjavík fjölgaði fólki á síðasta ári um 1.196 eða 1,2%. í öðrum
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 2,0%. í Bessastaðahreppi
Qölgaði um 3,3%, í Mosfellsbæ fjölgaði um 2,0%, um 2,6% í Hafnarfirði og
1,5% í Kópavogi. Fjölgun í Garðabæ var 2,6% og á Seltjarnarnesi um 1,5%.