Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1995, Page 182
166
GJALDSKRÁRMÁL
Tillögur um nýjar gjaldskrár eða breytingar á þeim berast borgarráði að jafnaði
frá forstjórum hlutaðeigandi fyrirtækja eða stofnana, eða stjórnum þeirra.
Gjaldskrártillögur Vatnsveitu, Rafmagnsveitu og Hitaveitu Reykjavíkur eru
yfirleitt fyrst bornar upp í stjórn Veitustofnana Reykjavíkur og
gjaldskrártillögur annarra stofnana, sem hér eru nefndar, eru sömuleiðis lagðar
íyrir hlutaðeigandi stjórnir. Hinsvegar er rétt að vekja athygli á því, að það er
ekki nauðsynlegt að hafa þennan hátt á, nema í tilviki Reykjavíkurhafnar, sbr.
lög m. 69/1984. Borgarráð getur með samhljóða afgreiðslu ákveðið einhliða
gjaldskrárhækkun og í borgarstjórn nægir einfaldur meirihluti til hins sama.
Með samhljóða afgreiðslu getur borgarráð því tekið einhliða ákvörðun um
gjaldskrá, en verði ágreiningur, fer málið til afgreiðslu í borgarstjórn við eina
umræðu. I sumum tilvikum þarf samkvæmt lagaákvæðum að leita staðfestingar
ráðherra.
Verður nú vikið stuttlega að einstökum fyrirtækjum og stofnunum borgarinnar.
Vatnsveita Revkjavíkur hefur nokkra sérstöðu meðal veimstofnana í
gjaldskrármálum, þar sem gjaldskrá hennar miðast ekki við vatnsnotkun nema
að litlu leyti. Almennur vatnsgjald er árlega greitt af öllum fasteignum í
lögsagnarumdæmi Reykjavíkurborgar, sem liggja við vegi eða opin svæði, þar
sem vatnsæðar liggja. Hið sama gildir um aðrar fasteignir, sem fá vatn úr
veitukerfi Reykjavíkur.
Hitaveita Revkjavíkur. Heimilt er að hækka eða lækka hitaveitugjöld í sama
hlutfalli og vísitala byggingarkostnaðar breytist. Þó skal heildarkostnaður við
himn húsa með hitaveitu að meðaltali ekki fara fram úr 80% af kostnaði við
hitun húsa með olíukyndingu.
Rafmagnsveita Revkjavíkur. Gjaldskráin miðast við það, að tekjur
Rafmagnsveimnnar standi undir rekstrargjöldum hennar svo og aukningu
veimkerfisins.
Revkjavíkurhöfn. Gjaldskrá Reykjavíkurhafnar er í meginatriðum byggð á
skipagjöldum, skipaþjónusmgjöldum og vörugjöldum, auk þess sem gjöld eru
greidd fyrir ýmiss konar þjónusm, sem veitt er á vegum hafnarinnar.
Gjaldskráin er birt með hafnarreglugerð fyrir Reykjavíkurhöfn, sem staðfest er
af samgönguráðherra.
Strætisvagnar Revkjavíkur. Gjaldskrá S.V.R. var miðuð við það, að allur
fjármagnskostnaður fyrirtækisins greiddist úr borgarsjóði. Borgarsjóður varð
þó jafnan að leggja fram fé til reksturs, þar sem fargjaldatekjur S.V.R. hrukku
ekki fyrir rekstrarútgjöldum. Fyrirtækinu var breytt í hlutafélag 1. desember
1993 en síðan aftur í borgarfyrirtæki 14. júní 1994. Enn þarf að reikna með
framlagi úr borgarsjóði til reksturs fyrirtækisins.