Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1995, Page 192
176
5. gr
Hafi byggingarleyfi fallið úr gildi eða verið fellt úr gildi skal við endurnýjun
leyfisins greiða skv. þágildandi gjaldskrá af þeim hluta byggingarinnar, sem
byggingarleyfi er endurnýjað fýrir, að frádregnu því gatnagerðargjaldi, sem
áður hefur verið greitt af sama áfanga.
6. gr.
Nú er lóð endurúthlutað og skal þá greiða gatnagerðargjald á grundvelli þeirrar
gjaldskrá, sem í gildi er, þegar úthlutunin fer fram. Nú hefur gjaldskrá hækkað
frá frumúthlutun og er þá heimilt að veita undanþágu frá ofangreindum
skilmálum, þegar eftirfarandi skilmálum er fullnægt:
1. Fyrri lóðarhafi hefur byrjað framkvæmdir innan árs frá því að lóð varð
byggingarhæf.
2. Framkvæmdir eru komnar það langt, að botnplata hafi verið steypt og
gengið frá lögnum og fyllt að sökkli.
3. Fyrri lóðarhafi leggur fram reikning fyrir kostnaði hans vegna lóðarinnar.
Gatnagerðargjald skal þó aldrei vera lægra en gatnagerðargjald eins og það var
við frumúthlutun, að viðbættum 30 af hundraði þeirrar hækkunar, sem orðið
hefur á gjaldskránni.
7. gr.
Ef lóðarhafi ætlar að byggja á lóð í áföngum getur borgarráð heimilað að greitt
verði gatnagerðargjald af fyrirhuguðum mannvirkjum skv. áfangaskiptingu, en
þá skal endanlegt gatnagerðargjald vera rúmmetragjald, sem í gildi er, þegar
byggingarleyfi hvers áfanga er útgefið. Umsækjandi skal taka það sérstaklega
fram í umsókn um úthlutun lóðar, að hann ætli að reisa fyrirhugað mannvirki í
áföngum.
8. gr.
Óski lóðarhafi að skila lóð á hann rétt á endurgreiðslu á greiddu
gatnagerðargjaldi ásamt hæstu lögleyfðu skuldabréfavöxtum af inneign hans hjá
borgarsjóði. Heimilt er að fresta endurgreiðslu uns lóðin hefur verið veitt að
nýju, þó ekki lengur en 6 mánuði frá því að lóðinni var skilað. Sama gildir ef
lóð er tekin af lóðarhafa vegna vanefnda hans á skilmálum.
9. gr.
Gatnagerðargjaldi fylgir lögveð í fasteign þeirri, sem það er lagt á, og gengur
það ásamt vöxmm og kostnaði fyrir öllum veðkröfum, sem á eigninni hvíla, og
tekur einnig til vátryggingarQár hennar.