Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1995, Page 267
251
Ljúki nemandi öllu námi grunnskóla með tilskildum árangri á skemmri tíma en tíu árum
telst hann hafa lokió skyldunámi.
Foreldrar eöa forráðamenn geta sótt um eða samþykkt aó skólastjóri heimili nemanda
að hverfa frá grunnskólanámi aó loknum 9. bekk í allt aö eitt ár vegna þátttöku í atvinnulífi
og lýkur nemandi þá grunnskólanámi síðar. Heimilt er að meta þessa þátttöku nemanda í
atvinnulífi til jafns viö nám í tilteknum valgreinum 10. bekkjar.
Menntamálaráóherra er heimilt aö veita nemanda undanþágu frá skyldunámi í tiltekinni
námsgrein ef gild rök mæla með því. Enn fremur er ráðherra heimilt að vióurkenna nám
utan grunnskóla sem jafngildi náms í skyldunámsgrein.
36. gr.
Nemendur, sem hafa annað móóurmál en íslensku, eiga rétt á sérstakri kennslu í ís-
lensku.
Heimilt er aó veita þessum nemendum undanþágu frá því aó þreyta samræmt lokapróf
í íslensku og leggja fyrir þá sérstakt lokapróf í íslensku.
Menntamálaráóherra setur nánari reglur um kennslu þessara nemenda.
37. gr.
Böm og unglingar, sem eiga erfitt með nám sökum sértækra námsörðugleika, tilfinn-
ingalegra eóa félagslegra öróugleika og/eóa fötlunar, sbr. 2. gr. laga nr. 59/1992, eiga rétt
á sérstökum stuðningi í námi.
Kennslan getur verið einstaklingsbundin eóa farið fram í hópi innan eóa utan almennra
bekkjardeilda, í sérdeildum eöa í sérskóla.
Meginstefnan skal vera sú aó kennslan fari fram í heimaskóla. Telji foreldrar bams eóa
forráðamenn, kennarar eða aórir sérfræðingar að bamió fái ekki notió kennslu vió sitt hæfi
í heimaskóla geta forráóamenn sótt um skólavist fyrir þaó í sérskóla.
Menntamálaráóherra setur í reglugeró nánari ákvæói um framkvæmd þessarar greinar.
38. gr.
Sveitarfélög skulu annast rekstur sérdeilda/sérskóla fyrir nemendur sem ekki geta notið
kennslu vió hæfi í almennri bekkjardeild grunnskóla. Þeim er ætlaó:
— að veita nemendum sérhæft námsumhverfi í lengri eóa skemmri tíma,
— aó veita starfsfólki almennra grunnskóla ráógjöf og kennslufræðilegan stuóning.
Sérmenntaóir kennarar skulu annast kennslu í sérdeildum/sérskólum þar sem því veróur
vió komið.
Menntamálaráóherra staófestir starfsreglur sérdeilda/sérskóla aó fengnum tillögum sveit-
arstjóma. í starfsreglum skal kveóió á um frávik frá almennri námskrá og öórum viómióun-
um laga um grunnskóla.
Fasteignir þeirra sérskóla er nú eru starfandi á þessu sviöi skulu afhentar til þessarar
starfsemi án leigu eóa annarra gjalda en rekstraraóilar annast og kosta allan rekstur þeirra,
þar meö talió vióhald frá þeim tíma er lög þessi koma aó fullu til framkvæmda.
Teljist síóar ekki þörf fyrir áframhaldandi rekstur einhverra þessara stofnana eða þeirra
allra tekur ríkissjóóur aftur vió umráöum fasteigna þeirra og ráöstafar þeim til annarra nota.
39. gr.
í grunnskóla er heimilt aó stofna nemendavemdarráð til að samræma störf þeirra sem
sjá um málefni einstakra nemenda varðandi námsráðgjöf, sérfræöiþjónustu og heilsugæslu.
Menntamálaráóherra setur reglugerö um nemendavemdarráó.