Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1995, Page 279
263
5. Byggingarmál.
Tillaga:
Borgarráð samþykkir, sbr. 16. gr. laga um reynslusveitarfélög að sækja um
undanþágu frá lögum, hvað varðar byggingannál þannig að byggingamefnd sé
heimilt að fela byggingarfulltrúa nánar tiltekin afgreiðslumál skv.
byggingarlögum.
Greinargerð:
Tillagan gerir ráð fyrir heimild á flutningi tiltekinna afgreiðsluverkefna frá
byggingamefnd til embættis byggingarfulltrúa. Framangreindum afgreiðslum
verði hins vegar ætíð hægt að áfrýja til byggingamefndar sem færi þá með
afgreiðslu þeirra með venjulegum hætti.
Eftirtaldir málaflokkar gætu m.a. komið til greina:
Samþykkt teikninga vegna brunamála, númerabreyting á lóðum, afgreiðsla
vegna umsókna trjáfellingar, samþykkt girðinga, samþykkt iðnmeistara,
samþykkt minniháttar útlits og innréttingabreytinga, samþykkt
reyndarteikninga þ.e. smábreytingar sem verða á mannvirki við framkvæmd
og samþykkt á framkvæmdaleyfi.
Breytingar í framangreinda átt gætu orðið til að stytta afgreiðslutíma og
einfalda með vissum hætti störf byggingamefndar.
6. Tilraunaverkefni í einu hverfi borgarinnar.
Tillaga:
Borgarráð samþykkir að unnið verði að sérstöku tilraunaverkefni í Grafarvogi
og Borgahverfi í því skyni að samræma þjónustu opinberra aðila s.s.
Félagsmálastofnunar, skólaskrifstofu, fræðsluskrifstofu, Dagvistar bama,
íþrótta- og tómstundaráðs, heilsugæslu og lögreglu. Kannaðir verði
möguleikar á stofnun einnar hverfaskirfstofu fyrir starfsemina. Skrifstofan
starfi í nánu samstarfi við staðbundin hverfasamtök. Þar sem ekki er Ijóst á
þessu stigi, hvort verkefhið muni leiða til breytinga á lögum eða reglugerðum,
áskilur Reykjavíkurborg sér rétt til að gera tillögur þar um á síðari stigum.
Greinargerð:
Tillagan fellur að vissu leyti utan þeirra málaflokka sem sérstaklega eru taldir
upp í lögum um reynslusveitarfélög. Við úrvinnslu tillögunnar verði í upphafi
gerð frekari úttekt á staðbundinni þjónustu borgar og ríkis í hverfinu ásamt
starfsemi hverfisbundinna félagasamtaka. Þá þarf að meta hvort æskilegt sé
að staðbundin þjónusta hins opinbera nái til fleiri málaflokka en nú er fyrir
hendi í hverfinu. Að því loknu mætti skipa formiega undirbúningsnefhd