Jólaklukkur - 01.12.1941, Page 13

Jólaklukkur - 01.12.1941, Page 13
JÓLAKLUKKUR 11 Þú muiit finna það aftnr ástundunarsamari, undanfarið. Trúboðinn spurði drengina, hvort þeir vissu, hvernig á því stæði, að hann hefði' ekki komið. En þeir vissu ekkert um hann. Var hann ef tii vill veikur? Við vitum það ekki. Eða er hann fluttur úr byggðarlaginu? Við vitum það ekki. Þegar svona stendur á, er tilgangslaust að spyrja slíka drengi. Þeir þykjast ekkert vita, og úr því er ekki að aka, þó að þeir viti allir það, sem um er spurt. En trúboð- inn komst síðar að því, hvernig í þessu lá. Ættingjar drengsins höfðu verið farnir að óttast, að hann myndi verða kristinn, — og þá var honum haldið heima. Og ekki er hægt að gera fólki hér skiljanlegt, hvílíku grimmdar-valdi er beitt við ungmennin, þegar þannig stendur á. En hvað sem um það er: Ranaívó kom ekki í skólann framar og fólk hans flutti skömmu síðar úr byggðarlaginu. Trúboð- inn missti alveg sjónar af drengnum. * Aldarfjórðungur líður. Ungi trúboðinn er óðum tekinn að reskjast og farinn að láta æði mikið ásjá, eftir langt og erfitt starf og óhollt loftslag. En sæðið, sem hann og samstarfsmenn hans hafa sáð, — bæði hvítir menn og „mislitir“, — er nú orðið að fögrum gróðri. Þeir eru búnir að stofna söfnuði víðsvegar á umboðssvæði sínu. Og nú langar trúboðann til að koma upp samkomuhúsi í litlu sjávarþorpi, nokkru fyrir norðan aðalstöðvarnar. Hann sendir þangað einn ötulasta aðstoðarmann sinn og með honum nokkra verkamenn, sem eiga að byggja húsið. Þeir taka á leigu kofa, þar sem þeir búa, á meðan á byggingunni stendur. Á kvöldin hafa þeir guðræknisstundir í þessum kofa, og sálmarnir óma út í dimma og hljóða nóttina. Þeir taka eftir því fyrsta kvöldið, að fyrir utan kofann stendur maður, sem er að hlusta á sönginn. Kvöldið eftir kemur hann hljóðlega inn í kofann til þeirra, þessi sami maður, sest á hækjur sér á gólf- mottuna og hlýðir með athygli á guðsorðið og sálmasönginn. Þeir rétta honum sálma- bók, og það kemur þá á daginn, að hann veit að minnsta kosti, hvernig hann á að snúa henni í hendi sér. Það mikið er eftir af hálfgleymdri tilsögn — fyrir aldarfjórð- ungi. Ó-jú, — þetta er Ranaívó. Nú á hann heima í þessu þorpi,- og er búinn að vera þarna í mörg ár. Og þegar búið er þannig ,,að setja tengilinn í samband“ biður hann um tilsögn, því að nú vill hann verða kristinn maður, og nú er hann fulltíða maður og sjálfráður gerða sinna, svo að ættingjarnir geta ekki aftrað honum. Og skírnar-undirbúningi hans miðar áfram með sama hraða og byggingar- starfinu. Og hann er ekki einn, — hann á konu og sex börn. Þau verða líka að njóta tilsagnarinnar. Húsið er fullgert og tilbúið til afnota, og nú á að vígja það. Vígslan fer fram í sambandi við ársfjórðungamót, sem stend- ur í þrjá daga. Þar fara fram samræður, vitnisburðir eru fluttir, fórnir færðar til sjálfhjálparinnar, og loks er sameiginleg altarisganga, En aðalatriðið er þó skírnarathöfnin. Það er gamli trúboðinn, sem framkvæmir hana. Hann hefir að fyrirsögn Ritningargreinina, sem tilfærð er hér að framan. Og auðvelt er að geta sér þess til, að það hefir verið honum merkisatburður, að eiga nú að skíra Ranaívó og allt hans fólk. Fyrst yngsta barnið og síðan hvert af öðru eftir aldri, þá móðurina og loks Ranaivó sjálfan.

x

Jólaklukkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.