Jólaklukkur - 01.12.1941, Blaðsíða 17

Jólaklukkur - 01.12.1941, Blaðsíða 17
I JÓLAKLUKKUH 15 um sig. „Eftir hverju stýrir þú nú, drengur minn? Ég sé ekkert nema byl og myrkur.“ „Ég stýri eftir vitaljósinu,“ skrökvaði Er- lendur. „Hvar er það?“ Maðurinn skimaði í kring- um sig. „Beint framundan á bakborða," svaraði Erlendur, hann vissi að vitinn átti að vera þar einhvers staðar, en hann hafði ekkert séð. Hann stýrði upp á von og óvon eitt- hvað út í bláinn.-------- Gamli vitavörðurinn bylti sér órólega í rúminu. „Ó, Guð, vertu mér miskunnsamur, af því að það er jólanótt. Verndaðu drenginn minn, bjargaðu mönnunum. Ég á sök á því að senda hann út í dauðann. Hvernig — hvað á ég að gera? Hvað er þetta á glugg- anum? Erlendur! Það er Erlendur! Nei, vitleysa, það er bara snjór, sem byrgir al- veg gluggann — byrgir hann, ha? Byrgir hann þá ekki líka vitagluggana? Jú, auð- vitað, og ekkert ljós nær að skína út um þá. Hvernig á „Svanurinn“ þá að komast að landi, ef hann sér ekkert vitaljós? Hann getur það ekki, — það er ómögulegt. Hann brotnar í spón við klettana, eða hverfur út í veðurofsann — finnur ekki eyna.“ Vitavörðurinn staulaðist framúr og þreif- aði eftir fötunum sínum. „Ég verð að fara og þurrka af glerjunum. Það dugar ekki að liggja svona.“ Gamli maðurinn slagaði út úr húsinu eins og drukkinn maður. Hann var ekki fyrr kom- inn út, en veðrið fleygði honum um koll á hálu og blautu hlaðinu. Stafurinn hans strauk í burtu út í myrkrið. Þá var ekki um annað að gera en að skríða á fjórum fótum út í vitann, en seint gekk það, og erf- iðir voru stigarnir. „Ég þakka miskunnsemi þinni. Nú er ég ánægður.“ Það rofaði aðeins til, og allt í einu sá Er- lendur rautt vitaljósið beint framundan og þó heldur á stjórnborða. Hann snarbeygði „Svaninum“. Var hann virkilega að ganga beint í opinn dauðann með þessi 12 manns- líf, sem voru innanborðs? „Þarna er vitinn okkar,“ sagði hann stoltur, og benti með hendinni. Allir horfðu með fögnuði á ljósið. Lendingin gekk að óskum. Það má vera illt í sjóinn, ef ekki er hægt að lenda í Naustavík og nú voru auk þess sterk og snör handtök, sem settu bátinn. Rúmið hans afa var autt. Erlendur starði á það nokkur augnablik, en svo var eins og hann áttaði sig. Hann tók viðbragð, greip luktina og hljóp út. Vitamálastjórinn og tveir menn aðrir fóru í humátt á eftir honum og áleiðis út að vitanum. Þegar þeir komu upp, fundu þeir vitavörðinn liggjandi á gólfinu. Augun voru brostin, hann hafði fallið á varðstaðnum. , Baldi. Hvað er sannleikur? Ég vil ekki dylja yður þess, bræður, hvað ég álít sannleika; þessari spurningu virðist mér, að því er trúarbrögðunum viðvíkur, ærið hægt að svara: Svo sannarlega sem nokkuð er satt og áreiðanlegt, þá er það það, að Guðs sonur er kominn í heiminn til að friðþægja heiminn við Guð. Sannleikann er hvergi ómengaðan að finna nema í hans orði, sem til þess er fæddur og í heiminn kominn, að hann beri sannleikanum vitni; enginn getur annan grundvöll lagt en þann sem lagður er, og ekkert nafn er mönnum til sáluhjálpar gefið utan nafn þess krossfesta. Já, þó það kæmi engill af himni og boðaði annan lærdóm en þann, sem frelsarinn og postular hans hafa boðað, þá væri hann lygi og í honum væri enginn sannleikur. Séra Tómas Sœmundsson.

x

Jólaklukkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.