Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2021, Page 54
TILHUGALÍF FRÁSKILINNA FRAMAKVENNA
53
náði því, það tók alveg allar þessar endalausu atlögur og tilraunir
og hafnanir og mistök og vanlíðan og ýmislegt. En ég gerði þetta.
Og þú veist, ég náði að skilja þú veist út á hvað Tinder gengur fyrir
mörgu fólki. (Hildur)
Það verður eiginlegt markmið að ná tökum á kynlífsvæðingunni, fyrst gamla
kerfið var orðið úrelt og þær höfðu að eigin mati tekið hlutunum alltof alvar-
lega. Hildur nefnir hér sérstaklega að loksins hafi hún skilið „út á hvað Tin-
der gengur fyrir mörgu fólki“, og að loks hafi hún komist þangað í skilningi
sínum og reynsluheimi en það hafi kostað blóð, svita og tár.
En, sko, hvað skal segja, ég upplifði í fyrsta lagi held ég bara svolít-
ið svona mótsagnarkennd viðhorf hjá sjálfri mér, til svona hjásvæ-
felsis, á fyrsta deiti eða bara þú veist hittast til að ríða, allt þetta.
[…] ég hef enga fordóma í garð þeirra sem að eru bara að sofa hjá
og hafa gaman og allt það, en ég fann það að ég hafði fordóma
þegar ég sjálf var komin í þessar aðstæður, einhvern veginn. Mér
fannst ég einhvern veginn ekki eiga, mega, þú veist, það voru ein-
hverjar hömlur þarna sem að, komu mér aðeins á óvart. Sem að ég
svo yfirstíg, fyrir rest, bara með pínu stæl sko. (Hildur)
Hún hafði loks losnað við druslustimplunina sem hún hafði haft í huga sér
gagnvart slíku atferli. Þura er á svipuðum slóðum, reynslulítil eftir langt
samband frá unga aldri, en með vinkonu sér við hlið sem hvetur hana áfram
og lítur á kynlíf eins og að bjóða einhverjum að drekka með sér kaffi.
[…] ég held að ég sé aldrei knúin af einhverju svona, nei nú þarf ég
að sofa hjá. Fara bara á Tinder og fletta þar til ég finn einhvern til
þess að sofa hjá og fara heim til einhvers. Þessi vinkona mín, hún
var þar sko. […] ég hef mikið rætt þetta við hana og ég skil ekki
hennar viðhorf , henni finnst enginn, ekki mikill munur á því að
hitta einhvern í kaffi og hitta einhvern og sofa hjá. […] hún tengir
ekki tilfinningalega við að sofa hjá. […] hún var svona fyrirmynd
mín, var ári á undan mér, kannski á einhvern hátt leyfði ég mér
þetta af því að ég sá hana, en við fórum mjög ólíka leið. Ég er alltaf
með þarna tauga-eitthvað […] tengingar, […] fæ svona allar ævi-
sögur manna í compact bara yfir mig á þriðja deiti og þessi vinkona
mín kannast ekkert við það. (Þura)