Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2017, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.01.2017, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands Á rið 2015 barst Hildi óvænt tölvupóstur sem opnaði UÍA áður óþekktar dyr. Þetta var boð um þátttöku í ungmennaskipta- verkefni í Ungverjalandi. „Hann var merkt- ur eins og kæfupóstur (e. spam) og við vorum næstum því búin að eyða honum. En við prófuð- um að svara. Kortér í Sumarhátíð UÍA kom já- svar og að við værum að fara til Ungverjalands um haustið. Við lágum ekki mikið yfir þessu held- ur ákváðum að nýta tækifærið og fórum út með 12 manna hóp 17–25 ára ungmenna. Við kom- um til bæjarins Orosháza í miðjum flóttamanna- straumnum, lestarstöðvar lokaðar og miklar aðgerðir í gangi. Við höfðum aldrei upplifað annað eins enda komin í hringiðu þess sem við höfðum aðeins lesið um,“ segir Hildur. Hildur segir ferðina hafa tekist afar vel, ung- mennin hafi náð vel saman þótt þau hafi komið hvert úr sínum menningarheimi. Stundum hafi þó heimarnir rekist á, eins og þegar íslensku ung- mennin fóru að tala um jafnrétti og kynlíf, kyn- bundið ofbeldi og annað á opinskáan hátt, nokkuð sem ungverskir vinir þeirra áttu ekki að venjast. „Síðasta kvöldið lentum við í hræðilegu atviki í almenningsgarði í bænum. Við vorum þar að njóta lífsins þegar við tókum eftir tveimur gaur- um með læknagrímur fyrir andlitinu og lækna- hatta á höfði sniglast í kringum okkur. Þeir hröktu okkur úr garðinum og við vissum ekki fyrr en þeir voru farnir að elta okkur á hlaupum. Við fórum að gistiheimili sem drengirnir sváfu í. Þar náðu þeir í sængur og tannbursta. Síðan fórum við að gistiheimili stúlknanna og gistum öll þar. Við vorum lafhrædd og fundum á eigin skinni hvernig það er að vera flóttamaður í ókunnu landi. En ólíkt flóttafólkinu vissum við að við vorum að fara heim næsta dag.“ Ævintýraferð í Ungverjalandi www. visitegilsstadir.is EGILSSTAÐIR VISIT Hlökkum til að sjá ykkur og ormurinn í Lagarfljóti biður að heilsa! V er ið v el ko m in á unglin galandsmót UMFÍ u m v er sl unarm annahelgina á Egilsstöðum 2017 2015201420112008200119831941 Taprekstur var á félaginu og óskipulag á bókhaldi. Tekjur voru takmarkaðar. Enginn starfsmaður yfir vetrartímann. Viðhorfið slæmt gagnvart UÍA og lítill félagsandi. Ráðist í stefnumótun til framtíðar. Skipt er um stjórn. Nýr formaður tekur við og fram- kvæmdastjóri ráðinn. Nýjar reglur um val á íþróttamanni ársins innleiddar ásamt reglum um skiptingu lottóúthlutunar og úr afrekssjóði. Stefnt að því að öll verkefni komi út á núlli. Samið er við sveitarfélög á Austurlandi og ný verkefni skipulögð. Skrif- stofa UÍA flytur í nýtt húsnæði. Stefnt að því að halda Ungl- ingalandsmót UMFÍ. Bókhaldið komið í lag. Hagnaður er af rekstri UÍA, eignir eru meiri en skuldir, rekstrartekjur rúmar 10 milljónir og ýmis verkefni skila hagnaði. UMSA stofnað. Aðildarfélögin 40 og iðkendur um 4.000. Sumarhátíð UÍA haldin á Eiðum í fyrsta sinn.Brot úr sögu UÍA Sumarhátíð UÍA flutt á Egilsstaði. Hildur Bergsdóttir kemur til starfa. Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Egilsstöðum. Ýmis verkefni tengd Fjarðabyggð – þjónusta við félögin, bikarkeppni, tvö árleg frjálsíþróttamót, páskaeggjamót á Norðfirði og Ávaxaleikar á Fáskrúðs- firði, árleg sundmót á Eski- firði eða Norðfirði.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.