Skinfaxi - 01.01.2017, Blaðsíða 32
32 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Harpa Grímsdóttir, formaður blakdeildar
Vestra á Ísafirði, segir áskorun að bjóða
upp á nýjar greinar eins og blak í bæjarfélög-
um þar sem nóg framboð er af öðrum tóm-
stundum. Hún hvetur þá sem vilji bjóða
upp á nýjar greinar að bíða ekki með það
heldur prófa sig áfram.
„Það hefur gengið ágætlega að byggja
upp yngri flokka í blaki í Ísafjarðarbæ. Við
byrjuðum með yngri flokka haustið 2007 og
nú eru þeir krakkar að skila sér í meistara-
flokkana. Við höfum verið með lið á Íslands-
mótum í 3.–6. flokki undanfarin ár og geng-
ið bara nokkuð vel,“ segir Harpa en hún hef-
ur ásamt manni sínum, Gunnari Páli Eydal,
og fleirum byggt upp blakdeild félagsins.
Harpa segir iðkendafjölda misjafnan eftir
árgöngum auk þess sem iðkendur komi víða
að. „Í yngri flokkum Vestra eru iðkendur frá
Ísafirði, Suðureyri og Þingeyri og því er tals-
verð keyrsla hjá mörgum á æfingar. Vestri
og Stefnir hafa haldið úti yngri flokka æfing-
um á Suðureyri og þar hafa verið nokkuð
margir iðkendur. Blak hentar vel í minni
bæjum þar sem íþróttahúsin eru kannski
ekki mjög stór og ekki margir krakkar í
hverjum árgangi,“ segir hún og bendir á
að fjórir leikmenn geti myndað lið í yngstu
flokkum í blaki, en sex leikmenn hjá 12 ára
og eldri.
„Þetta er svo gaman og góður félagsskapur í
þessari íþrótt,“ segir Guðlaugur Jónsson.
Hann heldur utan um æfingar 8–9 manna
hóps karla á Tálknafirði sem æfir undir merkj-
um blakdeildar Ungmennafélags Tálknafjarð-
ar. Þegar boðað er til æfinga kemur hópur frá
Bíldudal yfir og öfugt. Guðlaugur segir blak
hafa verið stundað á Tálknafirði í um tíu ár.
Þegar Bíldælingum hafi verið boðið í samstarf
fyrir um sex árum hafi áhuginn á íþróttinni
kviknað í Bíldudal og hafi lið öldunga þaðan
keppt á mótum. Um þrjú ár eru síðan lið frá
Tálknafirði keppti í blaki. Guðlaugur segir
erfitt að virkja ungt fólk í blaki á Tálknafirði.
Það telji sig hafa svo mikið að gera að það
hafi ekki tíma fyrir blak.
Sveitarfélagið fékk gefinn strandblakvöll í
fyrra og var hann tilbúinn í september sl.
Völlurinn tekur við af öðrum sem var orðinn
lélegur. „Strandblakvöllurinn vekur mikla
lukku. Það verður gaman næsta sumar að
spila á honum,“ segir Guðlaugur.
Hverjar eru helstu áskoranir?
„Á stöðum eins og Ísafirði er mikið framboð af íþróttum og öðr-
um tómstundum fyrir börn, og það má því segja að samkeppnin
um börnin sé mikil. Það er mitt mat að það sé einmitt mikilvægt
að bjóða upp á fjölbreyttar íþróttir, til að ná sem flestum í eitthvað.
Blak getur hentað vel bæði fyrir krakka sem eru miklir boltakrakkar
og hafa gaman af öllum íþróttum, og eins fyrir þau sem hafa ekki
fundið sig í öðrum boltaíþróttum vegna þess að blak er ekki mikil
„kontakt-íþrótt,“ segir Harpa.
Harpa segir blak mjög tæknilega íþrótt og því sé það áskorun að
kenna nýjum iðkendum blak á skemmtilegan hátt. „Þetta þarf að
vera rétt blanda af tækniæfingum og leikjum og fjöri. Í mörgum
öðrum boltaíþróttum er hægt að hafa gaman af íþróttinni og hlaupa
með þótt maður sé byrjandi. Blakið verður skemmtilegra eftir því
sem maður hefur æft lengur og náð að til-
einka sér tækni og leikskipulag. Það var mikil
framför að mínu mati þegar byrjað var að
kenna krakkablak hjá yngstu flokkunum,
en krakkablak er leikur sem líkist blaki og
er spilaður á mismunandi stigum eftir getu
iðkenda.“
Harpa segir það líka áskorun að bjóða
upp á blak á stöðum eins og Ísafirði þar sem
er lítil blakhefð er fyrir í bæjarfélaginu. For-
eldrarnir þekki ekki íþróttina og haldi að
greinin eigi ekki mikla framtíð fyrir sér. Þá
þykir henni of lítið sýnt frá keppnum í blaki
í sjónvarpi og vanti yngri iðkendur fyrir-
myndir. Á hinn bóginn segir hún Blaksam-
band Íslands hafa staðið sig vel og félagið
átt nokkra krakka í unglingalandsliðum.
Á Harpa ráð fyrir stjórnendur félaga sem
vilja byggja upp yngri flokka í blaki?
„Það er um að gera að prófa. Ef það er
áhugasamt fólk sem stendur að baki upp-
byggingunni er mjög líklegt að vel takist til.
Svo er um að gera að senda lið á Íslands-
mót sem fyrst, ekki bíða eftir að liðið verði
„nógu gott“. Á Íslandsmótum er spilað á
mismunandi getustigum og flestir krakkar
hafa mjög gaman af því að fara á mót, kep-
pa og hitta aðra blakara. Þá eykst áhuginn
og það verður líklegra að þau haldist í
íþróttinni,“ segir Harpa.
„Það hefur verið hefð fyrir blaki á Siglufirði,
heilmikið líf í meira en 40 ár og lengi keppt
við önnur blaklið hér á Norðurlandi,“ segir
Þórarinn Hannesson, íþróttakennari á Siglu-
firði og formaður Ungmennafélagsins Glóa.
Áður voru félögin tvö, karlafélagið Hyrnan
og kvenblakfélagið Súlurnar og voru þau
aðildarfélög Ungmennafélagsins Glóa.
Siglfirðingar hafa lengi átt góð lið á öld-
ungamótum í blaki og tryggði karlaliðið,
sem Þórarinn er í, sér Íslandsmeistaratitil í
2. deild í mars sl. Þegar skilyrði voru sett um
það að lið öldunga þyrftu að vera undir
íþróttafélögum voru karla- og kvennafélög-
in sameinuð vorið 2015 í Blakfélagi Fjalla-
byggðar. Stefnt er að því að félagið verði
tekið inn í Ungmennafélag Fjallabyggðar á
næsta vorþingi.
Þórarinn bendir á að karlalið öldunga í
blaki í Fjallabyggð hafi að miklu leyti verið Siglufjörður
karlar sem voru í boltaíþróttum á árum áður. Þá hafi vantað vett-
vang til að sprikla saman. Síðustu ári hafi líka verið unnið að því
að fjölga yngri iðkendum. „Fyrir tveimur árum var boðið upp á
krakkablak í fyrsta sinn og er uppgangurinn góður. Blakfélagið
hefur fengið góðan stuðning frá sveitarstjórn Fjallabyggðar og
styrktaraðilum svo við höfum getað gert þetta almennilega. Það
sem skiptir máli er að það hefur verið öflugt fólk í þessu og and-
inn er góður,“ segir Þórarinn.
Tálknafjörður
Ísafjörður
Fyrir tveimur árum var boðið upp á krakkablak
í fyrsta sinn og er uppgangurinn góður