Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.01.2017, Side 27

Skinfaxi - 01.01.2017, Side 27
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 27 Alexander Kárason er forfallinn áhuga- maður um hjólaíþróttir og jaðarsport. Hjólahreystibrautir fyrir almenning eiga hug hans og hjarta og hann vill sjá þær sem víðast því börn virðast sækja í skemmtilegar þrautabrautir til að hreyfa sig. „Ég hef verið mikið í sporti og verið ötull stuðningsmaður þess að allir fái aðstöðu fyrir áhugamál sín sem stuðlað geti að aukinni hreyfingu,“ segir jaðarsportistinn og orkubolt- inn Alexander Kárason, eigandi fyrirtækisins Lex Games eða Lexi eins og flestir þekkja hann. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi á hjólahreystibrautum, brettapöllum og hönnun á leik- og klifursvæðum sem henta til æfinga í parkour. Alexander hefur staðið fyrir uppsetningu á nýrri gerð hjólahreysti- brauta í Mosfellsbæ og Garðabæ. Hann vill sjá brautir sem þessar víða um land þar sem börn og ungmenni geta komið saman og skemmt sér á heilbrigðan hátt. Börnin fara fyrr í skólann Alexander segir hjólahreystibrautirnar fyrir alla sem eru á tækjum með hjólum, BMX- hjólum, fjallahjólum, hjólabrettum og hlaupa- hjólum. Fá takmörk séu fyrir því sem hægt sé að gera. Brautin í Garðbæ er á milli Garða- skóla og Flataskóla. Hún var tekin í notkun í lok mars við afar góðar undirtektir og biðu börn í biðröðum eftir því að fá að skella sér í hana. Sömu sögu er að segja af brautinni í Mosfellsbæ. „Mér finnst að svona brautir henti sem frá- bært leik- og æfingasvæði fyrir krakka en það er gríðarlega þörf fyrir alvöru svæði fyrir hjóla- bretti, BMX og hlaupahjól. Við erum frekar aftarlega á merinni í þessari þróun. Það er LEXI BÆTIR AÐSTÖÐU FYRIR FÓLK SEM VILL HREYFA SIG Lexi er formaður og stofnandi nokkurra íþróttafélaga, þar á meðal er hann í Jaðri, íþróttafélagi, sem er innan ÍBR. Innan félagsins eru vélsleðadeild, mótorhjóladeild, hjólabrettadeild og BMX-deild, en áhugi á slíkum hjólum hefur aukist mikið hér á landi upp á síðkastið. Lexi hefur að eigin sögn unnið að uppbyggingu fyrir íþróttagreinar sem hafa þurft á rödd að halda til að byggjast upp. Hann hefur sjálfur keppt mikið, er fjórfaldur Íslandsmeistari í snjókrossi og hefur keppt tvisvar á X-Games. Nýjasta hjólabrautin er í Garðabæ. Brautina kallar Alexander Pumpuna. Það vísar í líkamsbeitinguna sem þarf til að koma sér í gegnum brautina á hjóli. alveg spurning hvort við þurfum að óska eftir aðstoð eða kennslu frá þeim nágranna- þjóðum sem hafa séð þjóðfélagsþörf á að byggja upp fjölbreytta aðstöðu fyrir sem flesta,“ segir Lexi og bendir á að hlaupa- hreystibrautirnar laði að sér krakka og þau fái meiri áhuga á nærumhverfi skólans. „Börnin hafa verið að mæta hálftíma fyrr í skólann til að komast í brautina. Það er fínt að láta þau pústa þar því þá verða þau rólegri þegar inn er komið,“ segir hann. Börnin vita hvað þau vilja Alexander bendir á að brautir sem þessar gagnist börnum og ungmennum frekar en ramparnir sem hafi verið keyptir í gegnum tíðina að tilstuðlan fullorðinna sem telji sig vita hvað börnin vilji og þeir settir víða upp. Þeir séu stórir, börnin þori ekki að nota þá. Börnin kjósi frekar brautir sem henti öllum og séu öruggari. Hjólahreystibrautirnar segir hann ódýrari en ramparnir sem hafi verið settir upp og því ætti að vera á færi fleiri að setja slíkar upp með litlum tilkostnaði. Alexander segir einfaldar reglur við braut- ina, þau skiptist á að nota hana og hafi hjálma á höfði. „Það virkar,“ segir Alexander og stefnir á að gerast boðberi hreyfingar í Hreyfiviku UMFÍ í maí. Viðburðurinn, sem hann stendur fyrir, verður tengdur við hjólahreystibrautirn- ar. Þá hefur hann hug á að setja upp braut á Egilsstöðum þegar Unglingalandsmótið fer þar fram um næstu verslunarmannahelgi í sumar.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.