Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2017, Blaðsíða 19

Skinfaxi - 01.01.2017, Blaðsíða 19
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 19 „Þar lenti ég líka í því að vera á sama tíma í stjórn Ungmennasambandsins þegar Akra- nesmót var haldið. Svo var ég formaður í kennarasambandinu og starfsmaður á Húsa- fellsmótum. Ég var í Kiwanis líka, ökukennari og í sóknarnefnd kirkjunnar. En þetta gekk nú allt með góðu skipulagi og ég hafði bara gaman að því.“ Áfengisbann gerði út af við samkomurnar Hjörtur vann við samkomur á vegum Ung- mennasambands Borgarfjarðar í Húsafelli ásamt Vilhjálmi Einarssyni íþróttakappa á árunum 1966 til 1976. Þetta voru gríðarlega umfangsmiklar samkomur og þar skemmtu þekktustu tónlistarmenn landsins. Hjörtur segir að þar hafi verið mikið að gera. Þetta var erfið en skemmtileg vinna og þurfti að huga að mörgu svo að púsluspilið gengi upp. Samkomugestir voru á milli 15-20.000 þegar best lét og var fjárhagsleg velta mikil eftir því. Ungmennafélögin í Borg- arfirði höfðu miklar tekjur af sölubásum um þær helgar sem samkomurnar stóðu á hverju ári og gerði það þeim kleift að byggja upp félagsheimilin í héraðinu. „Hjá félagi nokkru var meiri velta á Húsa- fellsmóti eitt árið en í 50 ár á undan,“ segir Hjörtur og bendir á að öll félagsheimili í Borgarfirði hafi notið góðs af Húsafellsmót- unum í gegnum árin, byggt var við þau og félagsheimilin stækkuð. En halla tók undan fæti í samkomuhald- inu þegar gestir gerðu kröfu um að fá að koma með áfengi á staðinn. Hjörtur og aðrir aðstandendur ungmennafélaganna höfðu fram að því staðið á því föstum fótum að banna allt áfengi. 1980 1990 2000 2010 2017 1972–1977 : Í stjórn Ung- mennasambands Borgarfjarðar (UMSB), formaður 1975–1976. 1975: Undirbjó Landsmót UMFÍ á Akranesi. Var í fegrunarnefnd nokkur ár. 1972–1978 : Skráður félagi í Umf. Reykdæla, Borgarfirði. Var í söngnefnd og endurskoðandi. 1972–1974 : Félagi í Samkór Umf. Reykdæla. 2000–: Í nefnd eldri ungmenna- félaga (UMFÍ) sem Pálmi Gíslason og Hafsteinn Þorvaldsson stofnuðu. 2004/2009: Kynning og störf á Landsmótum UMFÍ. 2010: Tók saman greinargerð um Heimavistarskólann á Laug- um og byggingu sundlaugar- innar og sundkennslu þar. 2012–: Störf vegna Landsmóta UMFÍ 50+. „Á endanum misstum við samkomurnar frá okkur því að við vorum svo hörð á því að stöðva alla sem vildu koma með áfengi. Ég man sérstaklega eftir því árið 1972 að þá var sams konar samkoma haldin á Laugarvatni. Þar var ekki eins mikil hindrun á áfengi,“ rifjar Hjörtur upp og segir að við þetta hafi fækkað mikið í Húsafelli. „Ég man það vel að einn laugardagsmorgun var hringt í okkur og spurt hvað við gætum sent marga lögreglu- menn yfir á Laugarvatn. Við vorum með 42 lögreglumenn á fullum launum sem við þurft- um að greiða alla helgina og það var ekkert að gera hjá þeim. Við sendum lögreglurútuna með 30 manns á Laugarvatn. Það bjargaði fjárhagnum hjá okkur því að þeir tóku við launagreiðslum frá Laugarvatni frá laugar- dagsmorgni,“ segir Hjörtur.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.