Skinfaxi - 01.01.2017, Page 20
20 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Hjörtur segir löggæslukostnaðinn hafa
verið orðinn þyngsta baggann. Krafan um
áfengislausa útihátíð og mikill kostnaður við
lög- og öryggisgæslu hafi átt sinn þátt í því
að samkomurnar í Húsafelli gátu ekki borið
sig lengur.
Landsmótið 1975
á Akranesi
Stundum var það fyrirsjáanlegt, jafnvel
snemma í ferlinu, að skipuleggjendur sam-
koma í Húsafelli og móta á vegum UMSB
myndu koma út í tapi. Árið 1975 varð til dæmis
verulegt tap, upp á þrjár milljónir króna, á
Landsmóti UMFÍ sem haldið var á Akranesi.
„Við héldum fund og ákváðum að skipta
skuldinni á milli Akraness og Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar. Akurnesingar tóku
reikninga sem tilheyrðu Akranesi en UMSB
hinn helminginn. Þetta var mjög þungt. Ég
hélt fund með formönnum aðildarfélaga
UMSB. Ég benti þeim á að ef þetta hefðu ver-
Hjörtur, hver er galdurinn við að halda þreki og einbeitingu?
Ekki stendur á svari, sem er í anda Hjartar í bundnu máli:
Að njóta lífsins og líðandi stundar
Ef svangur ég verð, þá sest ég og fæ mér að borða.
Ef syfja mig tekur, ég tek mér smá blund í næði.
Ef þreytu ég finn, þá fæ ég mér hvíldarforða.
Ef finnst einhver leti, þá nýtast mér vel þau gæði!!
Íþróttaþáttur Þorsteins Einarssonar í Skinfaxa var myndrænn og útskýringarnar á einstökum greinum sem hann fjallaði
um afar nákvæmar. Hér má sjá útskýringu á þrístökki í íþróttaþætti Þorsteins í 30. árgangi Skinfaxa árið 1944.
ið tekjur myndum við skipta þeim eftir stærð
félaga. Við yrðum að hafa sama háttinn á með
skuldirnar. Við sömdum síðan við kröfuhafa
um afborganir og sum félög voru jafnvel þrjú
ár að greiða niður sinn hluta. En það sem
skipti máli var að allir voru rólegir og sáttir
eftir að búið var að semja,“ segir Hjörtur og
bætir við að hver samkoma sem kom út í tapi
hafi komið illa við rekstur ungmennafélag-
anna í Borgarfirði. Stundum var ljóst fyrir fram
að þær myndu ekki bera sig. Þá var brugðið
á það ráð að leita til skemmtikraftanna sem
koma áttu fram og samið við þá upp á nýtt.
Hjörtur rifjar upp að árið 1971 hafi samning-
ar falið í sér að þeir sem fram komu fengju
25% af áður umsaminni upphæð og það
gekk eftir.
Hjörtur segir það hafa verið lykilatriði við
skipulagningu samkoma eins og þeirra sem
voru haldnar í Húsafelli á sínum tíma að hafa
góða skemmtikrafta og hljómsveitir.
„Ingimar Eydal var konungur hljómsveit-
anna. Við gátum alveg stólað á þau. Ingimar
og hljómsveitin fór í gönguferð á morgnana á
meðan meðlimir annarra hljómsveita þurftu
að sofa úr sér,“ segir Hjörtur og hlær. „En það
þarf að hafa góða reglu á samkomunum.
Hún var of ströng og það sprengdi okkur.“
Gott að gefa
og hafa ánægju af því
Öll vinna Hjartar fyrir ungmennafélagshreyf-
inguna hefur verið í sjálfboðavinnu. Hjörtur
segir mikilvægt að hafa gaman af vinnunni
eins og öðru sem maður tekur sér fyrir hendur.
„Það skiptir máli fyrir allan félagsskap að
vinna án þess að taka laun fyrir. Maður beitir
sér betur fyrir það sem maður hefur áhuga
fyrir og af ánægju. En þá þurfa aðstæður að
vera þannig að maður hafi lífsviðurværi sem
hvíli á öðrum grunni,“ segir Hjörtur og rifjar
upp að eitt sinn hafi hann lent í núningi
vegna þessa. Það var þegar hann tók að sér
vinnu sem íþróttakennari í sjálfboðavinnu
fyrir ungmennafélag.
„Ég tók þar laun eins og íþróttakennarar
gerðu á hverjum tíma. Auðvitað var litið nei-
kvæðum augum á að ég vildi fá greiðslu fyrir
vinnuna. En þegar ég fékk útborgað bað ég
um að fá launin í 5 króna seðlum. Launin
voru formsatriði því að launin gaf ég á tom-
bólu sem sama ungmennafélag hélt. En með
því að greiða fyrir vinnuna var hún að fullu
metin. Ef ég hefði ekkert tekið hefði enginn
vitað hvers virði hún var.“
Þegar Hjörtur er spurður að því hvort hann
ætli að hægja á, nú þegar hann er kominn á
tíræðisaldurinn, lætur svarið ekki á sér
standa. „Á meðan maður hefur gaman að
þessu er engin ástæða til að draga sig í hlé.“
þú þarft
nesti
Nýtt og ferskt Nesti bíður þín hvert sem þú ferð
um landið. Sem fyrr tökum við vel á móti þér með
nýbökuðu og ilmandi bakkelsi, matarmiklum salötum,
frískandi boozti og eðal kaffidrykkjum sem þú getur
gripið með þér eða notið hjá okkur í rólegheitunum.
Nesti um land allt
N1 Nesti Ártúnshöfða • N1 Nesti Bíldshöfða • N1 Nesti Háholti • N1 Nesti Borgartúni
N1 Nesti Fossvogi • N1 Nesti Stórahjalla • N1 Nesti Lækjargötu • N1 Nesti Hringbraut
N1 Nesti Borgarnesi • N1 Nesti Staðarskála • N1 Nesti Blönduósi • N1 Nesti Egilsstöðum
N1 Nesti Hvolsvelli • N1 Nesti Selfossi
hluti af